Öldrun - 01.02.2003, Qupperneq 5
5ÖLDRUN – 21. ÁRG. 1. TBL. 2003
atriðanna heldur sér í þeim 8 löndum, þar sem þetta
hefur verið athugað.2 3 Í Bandaríkjunum hefur verið
sýnt fram á margvíslegan ávinning af RAI mælitækinu
á hjúkrunarheimilum4:
1. Meiri og nákvæmari upplýsingar eru nú til staðar í
sjúkraskrám vistmanna.
2. Víðtækari hjúkrunarferli eru nú skráð sem taka á
stærri hluta af heilsufarsvandamálum, áhættu-
þáttum og mögulegum leiðum til ávinnings vist-
manna.
3. Margvísleg áhrif á umönnunarferlið, svo sem lífs-
gæði, aukin þátttaka ættingja í meðferðaráætl-
unum, betri skráning á meðferðaróskum við lífslok,
bætt meðferð við hegðunarvandamálum, aukin
virki og minni notkun á neikvæðum úrræðum svo
sem fjötrum og þvagleggjum.
4. Marktæk minni hrörnun vistmanna svo sem í lík-
amlegri færni til athafna daglegs lífs, vitrænni getu
og þvagleka.
5. Marktæk minnkun á sjúkrahúsinnlögnum án þess
að aukning hafi orðið á dánartíðni.
RAI í heimaþjónustu og fleiri mælitæki,
ein samofin heild.
RAI mælitækið fyrir heimaþjónustu var þróað 1996
af alþjóðlegum hópi fag- og vísindamanna, Inter-RAI,
og prófað í mörgum löndum áður en lokaútgáfan sá
dagsins ljós. Heimaþjónustumælitækið er víðtækara
en hjúkrunarheimilistækið til þess að ná utan um þá
þætti sem eru sérstakir fyrir heimaþjónustu, svo sem
mat á óformlegri þjónustu, almennum athöfnum dag-
legs lífs (IADL) svo sem matargerð, meðferðarheldni,
forvarnir og margt fleira. Þetta mælitæki er engu að
síður styttra en hjúkrunarheimilistækið. Tækinu fylgja
30 matsferlar sem vísað er til ef ákveðnir þættir í mats-
tækinu flaggast. Notuð eru sömu atriði í heima- og
hjúkrunar-heimilistækinu þar sem það er mögulegt og
er það í um það bil 200 atriðum. Þetta á sérstaklega við
ADL færni, vitræna getu, andlega líðan, hegðun, sjón,
og þvagheldni. Þetta gefur möguleikann á því að fylgj-
ast með þessu þáttum þó að einstaklingar færist milli
þjónustustiga, svo sem frá heimaþjónustu yfir í stofn-
anaþjónustu. Þetta er í anda þeirrar hugmyndafræði að
RAI mælitækin myndi eina samhæfða heild, óháð þjón-
ustustað.5 Rökin fyrir því að líta á mælitækin sem eina
heild eru sett fram í töflu 6. Áreiðanleiki mælitækisins
var jafnhár í þeim 5 löndum, þar sem þetta var athugað
og í upphaflegu þróuninni.6 Í framhaldinu hafa verið
þróuð mælitæki fyrir bráðaþjónustu, öldrunarlækn-
ingadeildir, líknarþjónustu, geðdeildir og þjónustu-
íbúðir. Þessi þróun styrkir enn frekar hugsunina um að
matið fylgi einstaklingi milli þjónustustiga. Hér er því
Bakgrunnsupplýsingar Líkamleg færni
Samskipti/heyrn Vitræn geta
Sjón Andleg líðan og hegðun
Félagsleg vellíðan Virkni munstur
Lyf Húð og fætur
Sérstök meðferð, þjálfun, hjálpartæki Heldni á þvag og hægðir
Sjúkdómsgreiningar/einkenni Munnhol/næringarástand
Tannástand
Tafla 2; Þættir RAI mælitækisins
Óráð Vitræn geta, heilabilun
Sjón Samskipti
ADL færni/endurhæfing Þvagheldni, þvagleggir
Félagsleg vellíðan Andleg líðan
Hegðunarvandamál Virkni
Byltur Næringarástand
Næringarsondur Þurrkur/vökvabúskapur
Tannástand Legusár
Geðlyfjanotkun Höft
Tafla 3; Matsþættir RAI mælitækisins