Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 45

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2007, Blaðsíða 45
43 Tímarit um menntarannsóknir, 4. árgangur 2007 Að kenna í ljósi fræða og rannsókna hugsmíðahyggju byggir fólk sjálft sína þekkingu – úr þeirri reynslu sem það verður fyrir. Trúi kennari þessu breytist hlutverk hans úr fræðaranum í meðhjálparann: Hlutverk hans er ekki að koma þekkingunni til skila heldur að skapa nemendum góð skilyrði til náms, menntandi reynslu. Þegar kennari verður hallur undir hugsmíðahyggju beinist athyglin eðlilega að nemandanum, hvernig honum gangi þekkingarsmíðin, en líka því sem hann hefur áður smíðað: forhugmyndum hans. Sé hann kennaranemi vaknar sú spurning hvaða hugmyndir hann sé með í farteskinu um skólastarf og hvaða áhrif þessar hugmyndir hafi á nám hans í kennaraskólanum. Þetta skýrir að einhverju leyti þá staðreynd að á næstu árum (9. og 10. áratugnum) urðu fræðimenn á sviði kennaramenntunar mjög uppteknir af forhugmyndum kennaranema (sem þeir kölluðu „prior beliefs“ eða „entering beliefs“) og þá einkanlega hugmyndum þeirra um þekkingu, nám og kennslu. Í yfirlitsgrein sem Virgina Richardson (1996) skrifar um þessar rannsóknir á forhugmyndum kennaranema kemur fram • að þeir trúa því flestir að reynslan sé besti kennarinn • að hugmyndir þeirra um kennslu eru yfirleitt óljósar • að þeir hafa alla jafnan mótað sér ákveðnar kennarafyrirmyndir, bæði jákvæðar og neikvæðar • að þessar fyrirmyndir hafa oft sterk áhrif á afstöðu þeirra til kennaranámsins, jafnvel í þá veru að sumum finnst þeir vita hvernig eigi að kenna • að margir þeirra eru hallir undir pósitívíska þekkingarfræði: líta svo á að kennarinn afhendi nemendum sínum þekkingu og að hlutverk þeirra sé að muna hana. Niðurstöður á borð við þessar í bland við ný viðhorf til náms og þekkingar (hugsmíðahyggju) höfðu brátt mikil áhrif í mörgum kennaraskólum, jafnvel svo að líkja má við hallarbyltingu eða „paradigm shift“ eins og fræðimenn segja gjarnan þegar meiriháttar breytingar verða á viðhorfum fólks. Meginmarkmið kennaramenntunar samkvæmt hinni nýju sýn er ekki að „koma þekkingunni til skila“ heldur að hjálpa kennaranemum „að umbreyta duldum (tacit) og lítt ígrunduðum hugmyndum um kennslu, nám og námskrá í meðvitaðar og rökstuddar hugmyndir“ (Richardson, 1996, bls. 105). Segja má að hin nýja sýn sem Richardson útlistar í grein sinni hafi fengið byr undir báða vængi í annarri yfirlitsgrein um rannsóknir á kennaranámi sem birtist tveimur árum seinna (Wideen, Mayer-Smith og Moon, 1999). Þar eru teknar til skoðunar yfir 90 reynslurannsóknir (empirical studies) á kennaranámi í þeim til- gangi að átta sig á því hvort kennaramenntun skilar árangri og þá hvernig. Meginniðurstaða Wideen og félaga er sú að kennaraskólar sem byggja á hugsmíðahyggju og vinna út frá forhugmyndum kennaranema nái betri árangri en kennaraskólar sem vinna á hefðbundnari nótum. Þegar þeir tala um „betri árangur“ er viðmiðið breytingar á grunnhugmyndum kennaranema um skólastarf, hvort þær eigi sér stað eða ekki og í hve ríkum mæli. Það sem einkennir gjarnan hefðbundna kennaraskóla er sterk áhersla á fræðin, að koma „því sem er vitað“ til skila en lítil áhersla á það hvernig kennaranemarnir túlka það sem þeir heyra og lesa um. Það er eins og menn geri ráð fyrir því að ef þekkingin kemst til skila komi kunnáttan eða verklagið í kjölfarið. Þar sem menn styðjast við hugsmíðahyggju er hins vegar gert ráð fyrir því að námið sé nokkurs konar samningar eða sáttagjörð: Nemandinn kemur með sinn farangur og kennararnir með sín fræði og síðan fer af stað umræða um það hvernig megi stilla saman persónulegan farangur nemans og það sem aðrir hafa verið að hugsa (Bullough, 1992; Sumara og Luce-Kapler, 1996). Með öðrum orðum, námið verður persónulegt uppbyggingarferli: Nemandinn skoðar hug- myndir sem hann hefur sjálfur smíðað sér um skólastarf og mátar þær við hugmyndir sem sprottið hafa af rannsóknum og fræðastarfi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160
Blaðsíða 161
Blaðsíða 162
Blaðsíða 163
Blaðsíða 164
Blaðsíða 165
Blaðsíða 166
Blaðsíða 167
Blaðsíða 168
Blaðsíða 169
Blaðsíða 170
Blaðsíða 171
Blaðsíða 172

x

Tímarit um menntarannsóknir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.