Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2007, Síða 14
14 FIMMTUDAGUR 1. NÓVEMBER 2007
Bílar DV
BÍLAPRÓFANIR FÍB f DV
Höfundur er Stefán Ásgrímsson. Stefán
starfar hjá FÍB og er ritstjóri FÍB-blaösins
og fréttavefjar FlB.
Gjörbreyttur Freelander
Kominn með svip af Range Rover.
Gott útsýni er úr ökumannssætinu
Skjárinn fýrir miðju mælaborði erfyrirGPS-
leiðsögukort og margs konar upplýsingar
um búnað bílsins, þar á meðal útvarpið.
Mðurstaða
+ Góður akstursbíll á vegum og
jafnvel torfærum.
"■ Óvissa um áreiðanleika og
endingu. Hátt verð.
Helstu upplýsingar:
■ Land Rover Freelander 2 S TD4
■ Verð: 4.540 þús. kr.
■ Lengd/breidd/hæð í m:
4,50/1,91/1,74
■ Eigin þyngd: 1770 kg.
■ Vél: Dfsil 2.179 rúmsm 160 hö
/4000 sn. mín.
■ Vinnsla: 400 Newtonm / 2000 sn.
mín
■ Gírkassi: 6 hraða sjálfsklpting m.
handvali.
■Viðbragð 0-100:10,9 sek
■ Hámarkshraði: 181 km/klst.
■ Oliueyðsla: 7,5 1/100 km (
blönduðum akstrl.
■ Helstu keppinautar: Hyundai
Santa Fe, Toyota RAV4, Honda CR-
V, Dodge Nitro o.fl.
BILJOFUR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
Staðsetning í Mjódd
www.ovs.is
fcoDriiriiig
& andalag íslenskra bflablaða-
, manna tilkynnti síðastliðinn
: = föstudag að Land Rover Free-
lander 2 hlyti að þessu sinni titilinn
Bill ársins og aflienti Kristján Möller
samgönguráðherra fulltrúum B&L
farandgripinn Stálstýrið. Land Rover
Freelander 2 er gerbreyttur frá eldri
gerð og í rauninni nýr bíli. Freeland-
erinn er afar Jtægilegur í akstri og
umgengni með ágæta aksturseigin-
leika á vegum og götum og lfka góða
eiginleika sem torfærubíll þótt ekki
sé hann jeppi í hinum hefðbundna
skilningi, það er að segja með hátt
og lágt drif og allt það. Þótt Jressi nýi
Freelander virki vel á mann að flestu
leyti verður ekki komist hjá að nefna
tvennt: í fyrsta lagi er Freelander
fremur dýr jepplingur. Ilann kostar
frá 4.540 þúsund krónum sem er svu
sannarlega í hærri kantinum. í öðru
lagi er svo það að gamli Freeland-
erinn var misiukkaður að því leyti
að hann var og er óþolandi bilana-
gjarnt og óáreiðanlegt farartæki, sér-
staklega gerðin með fjögurra strokka
bensínvélinni. Sú vél er reyndar ekki
í Iroði lengur sem hetur fer og fyr-
irrennarar beggja núverandi véla
hafa verið mjög ábyggilegir aflgjaf-
ar þannig að ekki er líklegt að sag-
an endurtaki sig í þeim efnum. Þótt
Freelander 2 sé algerlega nýr bíll og
meira að segja ekki lengur byggður
í verksmiðjunni í Solihull, heldur í
Liverpool, hlýtur spurning engu að
síður aö vakna og hún er þessi: Hafa
Bretarnir hjá Land Rover tekið sér
tak í gæðamálunum eöa ekkiV Það
mun koma í ljós.
Öflug og hljóð dísiivél
Hér á landi og í flestum öðrum
Evrópulöndum er Freelanderinn nýi
hoðinn með tveimur vélargerðum:
Sú fyrrnefnda er 2,2 1 túrbínudísil-
vél frá PSA (Peugeot/Citroen). Ein-
mitt sú vél var í reynsluakstursbíln-
unr og var mjög viðkunnanleg, bæði
öflug og hljóðlát en sparneytin. Atlið
er 160 hö og vinnslan er 400 Nm. Auk
þessarar ágætu dísilvélar er í boði sex
strokka línuvél sem upphaflega kem-
ur frá Volvo. Hún er 3,2 iítra og 233 ha.
Báðar vélarnar eru þverstæðar í vél-
arhúsinu.
Líkiegast er að dísilvélin verði
fvrsti kostur flestra kaupenda Land-
Rover Freelander 2 vegna þess hve
hagkvæm hún er en jafnframt iiflug.
Uppgefm meðaleyðsla er einungis
7,5 lítrar og I\TÍr utan sparneytnina er
vélin tnjög „hrein". Á útblásturskerf-
inu er til dæmis sótagnasía og sjálf-
virkur hreinsibúnaöur hreinsar út-
blásturskerflð og brennir sótagnirnar
Jtegar þær hafa náð að safnast fyrir.
Gírkassarnir, sem í boði eru, eru sex
gíra, hæði sjálfskiptir og handsldpt-
ir, og í reynsluaksturshílnum var sex
hraða sjálfskipting með handvali.
Haldex-fjórhjóladrif
Eins og í gamla Freelandernum er
dril'ið í venjulegum akstri að rnestu
á framhjólunum. I eldri gerðinni var
það seigjutengsli sem miðlaði afl-
inu rnilli fram- og afturhjóla. Seigju- vélin er ræst bvggist upp vökvaþrýst-
tengslið er farið og í Jtess stað er kom- ingur til [tess að tengslið sé tilbúið unt
ið tengsli frá hinu sænska Haldex. leið og veggrip minnkar undir öðru
Haldex-tengslið er eins konar fjöl- eða báðum framhjólum. Um leið
diskatengsli eða kúpling sem stjórn- og framhjól byrjar að spóla miðlar
ast af vök\'aþrýstingi. Strax þegar Haldex-tengslið afli til afturhjólanna.
Þetta gerist s\'o snöggt og átakalaust
að nánast ekkert verður vart við það
nema á Jrann hátt að bíllinn er afar
stöðugur í öllum akstri og h'tið gefinn
fyrir að spóla. Þetta kerfi er raunar
rnjög svipað því sem er í hinum nýja
V\V Tiugan senr Ijallað var um hér í
blaöinu í síðustu viku. 1 Freeiander 2
er sams konar sjálfvirkni sem heml-
ar sjáltvirkt niður brattar breldcur og
setur handbremsuna sjálfvirkt á ef
stansa þarf í brattri breldcu. Þegar svo
tekið er af stað á ný fer handbrems-
an sjálfvirkt af á rétta augnablik-
inu. Freelander 2 er byggður á sama
grunni og nokkrir aðrir bílar frá Ford-
samsteypunni, til dæmis hinn nýi
Ford S-Max, Galaxy, Volvo S80 og nýi
Ford Mondeo-bíllinn, en vitanlega er
sá grunnur hér lagaður að þeim verk-
efnum sem jeppi/jepplingur þarf að
geta tekist á við.
Akstur og öryggi
Freelander 2 er ágætur akstursbíll.
Eins og alltaf þegar Land Rover/Range
Rover á í hlut situr ökumaður hátt í
þægilegu sæti og sér vel út á stóra og
flata vélarhlífina og fram á horn henn-
ar og á því auðvelt með að staðsetja
bílinn á veginum. Stýrið er tiltölulega
létt en skilar þó ágætri tilfínningu fyrir
veginum. Bíllinn er rásfastur og svar-
ar mjög vel stýrinu. Sítengt aldrifið og
Haldex-ketftð í samvinnu við ESC-
stöðugleikakerflð sér svo til að hann er
mjög trausturíakstiiogviðráðanlegur.
Þetta var þrautprófaö á lokuðu akst-
urssvæði við Krísuvíkurveg í tengslum
við val á bt'l ársins og reyndist þessi
jeppi/jepplingur með bestu aksturs-
bílunum þar - merkilegt nokk.
Mikið er lagt upp úr öiygginu.
Þegar er búið að árekstursprófa Free-
lander hjá EuroNCAP með þeim ár-
SERHÆFÐ ÞJONUSTA FYRIR
í stað hurðar er hér hleri sem
opnast neðan frá og upp Varadekk-
ið sem fest var á hurðina á eldri gerð
Freelanders er nú komið inn og er
undir gólfi farangursrýmisins eins og í
hefðbundnum skutbíl.
angri að hann er fímm stjörnu bíll
og þar með eftir Jivr sem við besl vit-
um, eini fimm stjörnu bíllinn í flokki
jeppa ogjepplinga.
Loftpúðar eru alls sjii talsins, sá sjö-
undi er undir mælaborðinu til að verja
fótleggi og ekki síst hné ökumanns.
ESC-stöðugleikabúnaður er staðal-
búnaður og í kerfinu er smá auka-
ktydd ef svo má segja, sem fyrst kom
ffam í Volvo XC90. Þessi auka-„fíd-
us" vinnur þannig að ef skynjari met-
ur hliðarkrafta í heygju, sem svo að
bfllinn sé við það að velta út úr beygj-
unni, hemlaytri hjólin í hringferlinum
til að rétta bílinn af út úr hringnum og
forðast veltu. En ef bíllinn veltur eða ef
ekiö er inn í hliðina á honum, eru sér-
stiik krumpusvæði í hliðunum (hurð-
unum) auk hinna hefðbundnu að
framan og aftan.
Innrétting í Freelander er talsvert
vönduð. Framstólarnir eru ágætir og
útsýn úr bílnum stórfi'n eins og áður
er nefnt. Mælar eru skýiir og auð-
læsilegir. Fljótlega eftir að ekið er af
stað læsast dyrnai' sem er öiyggisat-
riði til dæmis í borgum þar sem eitt-
hvert gangsteraliö á það vríst til að ryðj-
ast inn í bíla sem stöðva til dæmis við
gatnamót, og ræna og rupla fólki og
fémæti. Fjarstýringin sem opnar og
læsir dyrum bflsins virkar þannig að
þegarýtt er einu sinni á opnunartakk-
ann opnast bara ökumannsdymai'. Ef
ýtt er tvisvar á Ufldcann opnast allar
d\T. Þetta er líka öiyggisauiði gagnvait
fyrrnefndri vá.
Þægindabúnaður
Rými í aftursæti er ágætt og aft-
ursætið er þægilegt. Tveggja metra
maður sem settist í aftursætið hafði
þó á orði að hann hefði þegiö aðeins
meira fótarými en kv'artaði annars
ekki að öðru levti. Farangursrýmið er
rúmgott og hægt aö stækka það með
þvi að Ivfta upp setunni í aftursætinu
að aftanverðu og fella síðan sætisbak-
ið fram. Þá myndast slétt flutningsgólf
frarn að framsætum. Aðgengi í far-
angursrýmið er ágætt og afturhlerinn
opnast flá stuðara og upp. Varadekkið,
sem er í fullri stærð, er undir gólfi far-
angursrýmisins. I lljómtæki eru fastur
fylgilflutur ásamt CD-spilara og tengi
fvrir MP3- eða iPod-spilara. Hæðar-
stillingar eru á báðum framsætum og
stýrishjólið er sullanlegt á bæði hæð-
ina og lengdina. Á stýrishjólinu eru
stillingar fyrir meðal annars hljóm-
tælcin, fyrir síma og fleira.
Land Rover Freelander er ágætur
akstursbíll með örugga aksturseigin-
leika. Hann er vel hljóðeinangraöur
og því hljóðlátur sem er mikill kostur,
ekki síst á langferðaleiðum. Hann er
einnig með ágæta torfærueigiifleika,
það er tiltölulega hátt undir hann og
drifbúnaðurinn greinilega hugsaöur
með það fvrir augum að hægt sé að
leggja hann í ýmislegt sem jeppling-
um sérstaklega hugsuðum til aksturs
á götum og vegum er ekki bjóðandi. í
Jiví efni sldlur hann sig frá sumum nýj-
um bflum í sama flokki.
Næsta námskeið hefst
2.nóvember n.k.
UPPLYSINGAR OG INNRITUN í SÍMA 588-1414