Málfríður - 01.10.2015, Blaðsíða 10

Málfríður - 01.10.2015, Blaðsíða 10
Tvær áhugaverðar kynningar Það sem stendur upp úr eftir þátttökuna er aðdáun vegna þess góða starfs sem víða er unnið í þágu mála- flokksins. Laurent Filliettaz hélt til dæmis mjög áhuga- vert erindi, þar sem sálfræðileg nálgun er mikilvæg. Svissnesk rannsókn á vinnustaðaþátttöku útlendinga, þar sem notast var við upptökur á samtölum á vinnu- stað, sýnir að erlendur starfsmaður þarf oft að rökstyðja mál sitt á nýja málinu. Það reynist oft torvelt og verður jafnvel til þess að hann verði fyrir einelti, sé skilinn útundan og verði mögulega að athlægi. Þá skilur hann oft ekki húmor og annað sem varðar aðlögun og vinnu- staðamenningu. Þetta sýnir nauðsyn þess að tungu- málakennarar sem undirbúa starfsþjálfun útlendinga, yfirmenn og starfsmenn fyrirtækja sem taka við þeim fái góða fræðslu um móttöku útlendinga á vinnustað. Í Þýskalandi og Sviss eru t.d. haldin 3–5 daga námskeið fyrir yfirmenn til að stuðla að bættri móttöku, máltöku og aðlögun innflytjenda á vinnumarkaði. Kersten Sjosvard,frá Svíþjóð, kynnti mjög áhugavert verkefni sem kallast Arbetsam (http://www.aldre- centrum.se/Utbildning1/TDAR/). Það byggir á mik- illi örvun frá vinnuumhverfinu við notkun nýja tungu- málsins. Yfirmenn öldrunarheimila vinna markvisst að því að virkja erlent starfsfólk í umönnun svo það geti talað sem mest við vistmenn. Tungumálanámskeið okkar eru vitan lega mislangt komin varðandi aðlögun og þjónustu við innflytjendur. Margir vildu sjá betra starf af hálfu yfirvalda. Má þar nefna fulltrúa Kýpur og Grikklands þar sem flóttamannastraumur veldur nú hrikalegum vanda og ástandið var slæmt fyrir. Verkefni vinnustofunnar Verkefnið Tungumál á vinnumarkaði hefur heimasíðuna http://languageforwork.ecml.at/ en vinnustofan í Graz var sú síðasta í fjögurra ára verkefni. Verkefnið var sett á laggirnar í þeim tilgangi að efla evrópskt tengsl- anet rannsakenda, fulltrúa kennslustofnana, verka- lýðsfélaga og stefnumótenda. Tengslanetinu er ætlað að aðstoða meðlimi þess við að deila starfsaðferðum og þróa þær. Fluttar voru áhugaverðar kynningar um máltöku og aðlögun innflytjenda á vinnumarkaði og opnar umræður fylgdu. Einnig var hópavinna þar sem umræðuefnum var útdeilt og tók hver og einn þátt í þremur vinnustofum. Þá hófu þátttakendur að skrifa á sameiginlega samskiptavefsíðu verkefnisins; svonefnt „Padlet board“ http://padlet.com/alex76/LFW. Mér fannst mjög áhugavert að sjá hversu merkilegar rann- sóknir eiga sér stað á sviði tungumálakennslu fyrir inn- flytjendur á vinnumarkaði og á heimasíðu ECML má finna heilmikið efni sem kennarar og skipuleggjendur kennslu annars tungumáls geta nýtt sér. 10 MÁLFRÍÐUR

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.