Jón á Bægisá - 01.12.2006, Page 105

Jón á Bægisá - 01.12.2006, Page 105
TófraUknirinn Francisco Martín skrásetjarinn Gonzalo Fernández de Oviedo segir: „Lækningaaðferðir hans fólust í því að rymja og blása og bölva, en þann starfa hafði hann meðal þeirra og var mikils metinn". Samt sem áður hefur krafturinn sem Martín tileinkaði sér valdið af- brýði, því litlu munaði í þrjú skipti að hann yrði drepinn, eftir því sem hann sagði. En „göfug indíánakona af sama ættbálki, sem hann lagðist með og var kona hans í nefndum löndum ..., bjargaði honum í öll skiptin frá dauða“16 „og fyrir hennar skuld hélt hann lífi.“17 Til að afstýra frekari banatilræðum reyndi hann að sannfæra indíánana um að hann væri ekki Spánverji, heldur af öðru kyni innfæddra, þeirra Pacabueymanna sem héldu til á þeim slóðum þar sem Alfinger hafði orðið eftir. Þar á ofan reytti hann skegg sitt. Þegar Martín hafði lokið frásögn sinni krafðist hann þess að fá skjalfest að hvorki væri hann liðhlaupi né hefði gengið af trúnni. Hann tók nú aftur upp klæðaburð Evrópumanna og lýsti því yfir „sem kaþólikki og sannur maður“ að „það sem hann hafði gert fram til þessa hefði stafað af ótta við indíána en ekki verið gert Guði til skapraunar, heldur svo hann mætti bjarga lífi sínu, og að dag hvern hefði hann í hjarta sínu beðið guðsmóðurina þess að honum bærust kristnir menn“.18 Túlkurinn Esteban Martín mæltist til þess „að héðan í frá... skyldi hann aldrei framar fylgj a athöfnum indíána, heldur skrifta líkt og sérhverj um sönn- um manni og kristnum ber að gera, að ekki alls íjarri væri guðsmaður til þess, sömuleiðis bera sig líkt og hvítur maður, sem hann og var, að viðlagðri dauðarefsingu“. Þetta voru fyrirmæli sem Francisco Martín „kvaðst mundu hlíta og væri reiðubúinn að framfylgja, sem hann og gerði“.19 Eins og gefúr að skilja hefur indíáninn hvíti varla kært sig um að verða Rannsóknarréttinum að bráð, því síður vasklegri hreinsun flokksforingjans. En sannleikurinn var allur annar. Francisco Martín, þessi fyrrum her- maður var orðinn óforbetranlegur trúskiptingur og indíáni eins og síðar átti eftir að koma í ljós löndum hans til mikillar skelfingar. Skrásetjarinn Aguado segir: „Hættir indíána voru orðnir honum svo tamir, líkt og þeir hefðu fóstrað hann frá barnæsku".20 I reynd voru eiðar Franciscos Martín um tryggð við landa sína heldur veikir. Sjálfur hafði hann ekkert aðhafst til að komast aftur til samlanda sinna, jafnvel þótt hann væri fullfær um að ferðast um skóginn, eins og 16 Yfirlýsingar Franciscos Martín frá 18. ágúst 1534 frammi fyrir skrifaranum Juan de Villegas. Archivo General de Indias (Skjalasafn Indíalanda), Sevilla. Dómsmál, skjalahirsla 1 003. 17 Gonzalo Fernández de Oviedo, sama rit. 18 Yfirlýsing Franciscos Martín, fyrrnefnt skjal. 19 Sama skjal. 20 Bróðir Pedro de Aguado, Historia de Venezuela, Madrid, 1918-1919. & I DAG HEYRA SÖNGGYÐJURNAR TIL ÞIN 103
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.