Skólavarðan - 01.03.2005, Qupperneq 31

Skólavarðan - 01.03.2005, Qupperneq 31
31 SKÓLAVARÐAN 2.TBL. 5. ÁRG. 2005 Undirrituð er kennari við Menntaskól- ann við Hamrahlíð þar sem kennt er eftir áfangakerfi og fjallar grein þessi fyrst og fremst um áhrif núgildandi námskrár á áfangakerfisskóla. Haustið 2000 hófst kennsla í framhalds- skólum samkvæmt nýrri námskrá og við gildistöku hennar var einingum í stærð- fræði fækkað verulega á náttúrufræði-, eðlisfræði-, félagsfræði- og málabraut þrátt fyrir eindregin mótmæli m.a. Félags raungreinakennara í framhaldsskólum og Íslenzka stærðfræðafélagsins. Rögnvaldur Möller stærðfræðingur og fræðimaður við HÍ ritaði grein sem birt- ist í Morgunblaðinu 19. mars 1999. Þar segir: „Þjóðfélagið hefur þörf fyrir fleira fólk menntað í tæknigreinum, verkfræði, raunvísindum, lífvísindum, viðskiptafræði og félagsvísindum. Þetta eru allt greinar sem reyna verulega á færni í stærðfræði og nám í þeim krefst góðs undirbúnings í stærðfræði.“ Í svargrein Jónmundar Guðmarssonar aðstoðarmanns þáverandi menntamála- ráðherra, sem birtist í Morgunblaðinu 30. mars 1999 undir heitinu Nýir tímar í raun- greinanámi, kom m.a. fram: „Framhaldsskólalögin gera ráð fyrir aukinni sérhæfingu í námi á bóknáms- brautum. Nám á einstökum brautum skal taka mið af lokamarkmiðum brautarinnar. Meginmarkmið með þessari skipan er að auka þekkingu og færni nemenda á sér- sviðum bóknámsbrauta, það er í tungu- málum á málabraut, í félagsvísindum á félagsfræðibraut og stærðfræði á nátt- úrufræðibraut... Ég tel víst að þessi skipan muni geta af sér bæði markvissara og árangursríkara nám í framhaldsskólum.“ Fækkun eininga í stærðfræði eftir brautum samkvæmt nýju námskránni var þessi: Á eðlisfræðibraut úr 24 í 15, (37,5%) á náttúrufræðibraut úr 21 í 15 (tæp 30%), á félagsfræðibraut úr 15 í 6 (60%) og á málabraut úr 12 í 6 (50%). Vorið 2004 var fyrsti stúdentahópurinn sem lauk námi á fjórum árum útskrifaður samkvæmt nýju námskránni. Í eftirfarandi súluritum er borinn saman einingafjöldi í stærðfræði hjá stúdentum frá MH árið 2001 (gamla námskráin) og árið 2004 (nýja námskráin) og eins og sést hefur meðaleiningafjöldi í stærðfræði lækkað verulega á öllum brautum. Einnig hefur þeim nemendum fækkað sem ljúka mörgum umframeiningum í stærðfræði. SMIÐSHÖGGIÐ Fækkun eininga í stærðfræði á framhaldsskólastigi FRAMHALD Á NÆSTU SÍÐU Ragna Briem

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.