Þjóðmál - 01.06.2012, Side 16

Þjóðmál - 01.06.2012, Side 16
 Þjóðmál SUmAR 2012 15 Vilhjálmur Eyþórsson Barrabas — og beina lýðræðið Frægasta „þjóðaratkvæðagreiðsla“ sög­unn ar fór fram í Jerúsalem fyrir tæpum tvö þúsund árum, þegar Barrabas var kosinn, en Jesús krossfestur . Ég minni á þetta vegna þess að upp á síðkastið hafa orðið æ háværari hrópin um „beint lýðræði“, að „þjóðin“ eigi að ráða og koma að ákvarðanatöku um hin aðskiljanlegustu mál . Ýmsir halda því fram, að ákvarðanir skuli teknar með sífelldum skoðanakönnunum meðal lýðsins . En væri það skynsamlegt? „Lýðræði“ er, eins og „mannréttindi“, eitt af þessum fallegu orðum sem menn, einkum þó vinstri menn, endurtaka ótt og títt án þess að botna upp né niður í því hvað í orðinu felst . Í meginatriðum felur það í sér að meirihluti kjósenda eigi að ráða . En: „fái þjóðirnar að kjósa milli kúgunar og stjórnleysis, velja þær alltaf kúgarann“, sagði Aristóteles . Í mörgum löndum er „lýðræði“ nefnilega einungis annað orð fyrir aðgerðaleysi, spillingu og upplausn og það er alls ekki sjálfgefið að almenningur kjósi lýðræði, fái hann að velja . „Fólkið“ eða „þjóðin“ vill stundum fá „nýja menn“ til valda í stað stjórnvalda, sem eru ekki talin vanda sínum vaxin . Þetta var t .d . raunin á Ítalíu og í Þýskalandi millistríðsáranna . Það voru nefnilega ekki illmenni heldur kjánar sem settu Hitler og Mussolini á valdastóla, Þeir komust báðir til valda með víðtækum stuðningi almennings, sem vildi fá til valda „nýja menn“ með „nýjar lausnir“ . ÍWeimar­lýðveldinu höfðu andstæðingar lýðræðis, kommúnistar og nasistar, meiri hluta atkvæða samanlagt . Í Alsír reyndi herforingjastjórn að halda lýðræðis­ legar kosningar, en þá kom í ljós að yfir­ gnæf andi meirihluti þegnanna kaus islam­ ista, and stæð inga lýðræðis sem einnig vildu af nema flest það sem við nefnum grund­ vall ar mann réttindi að dæmi Khomeinis eða talíbana . Kosningarnar voru ógiltar og eru „mann rétt indafrömuðir“ síðan með bögg­ um hildar út af öllu saman . Hvert eiga þeir að snúa sér með vandlætingu sína og for dæm ingu? Eiga þeir að býsnast út í her­ for ingjana sem vildu koma á vestrænum gildum, svipað og Íranskeisari á sínum tíma, eða á að fárast út í lýðræðislegan vilja kjósenda sem vildu afnema allt sem heitir lýðræði og mannréttindi? Ekki aðeins íranskur almenningur, heldur líka Amnesty og gjörvöll vinstri hreyfingin á Vestur löndum studdi Khomeini til valda,

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.