Þjóðmál - 01.06.2012, Page 36

Þjóðmál - 01.06.2012, Page 36
 Þjóðmál SUmAR 2012 35 dómslistafélagsins í Dijon árið 1750 . Rit­ gerðar efnið var, hvort endurreisn vísinda og lista hefði leitt af sér bætt siðferði . Rousseau svaraði neitandi: Með framförum í vísindum og listum hefði siðferði hnignað, eins og dæmin sýndu . Spartverjar hefðu til dæmis verið dygðugri en Aþeningar og Germanir hinir fornu óspilltari en Róm­ verjar . Svipaður boðskapur er í söngleiknum Sveitaspámanninum, sem Rousseau samdi sumarið 1752, og í Ritgerð um uppruna ójafnaðar ári síðar . Þar lýsti Rousseau hinu náttúrulega ástandi, þar sem veiðimenn hefðu reikað um óháðir öðrum og verið allir jafnir, en enginn notað hugtök eins og yfirráð eða undirgefni . Síðan hefði borgaralegt skipulag komið til sögu: Hinn fyrsti, sem fékk þá hugmynd að girða af jarðarskika og segja: „Þetta er mín eign“ — og fann menn, sem voru nógu grunnhyggnir til að trúa honum, er hinn sanni frumkvöðull þjóðfélagsins . Hve mörgum glæpum, morðum og styrjöldum, hvílíkri ógn og eymd hefði sá maður hlíft mannkyninu við, er rifið hefði upp staurana eða fyllt upp skurðinn og hrópað til meðbræðra sinna: „Gætið ykkar! Hlustið ekki á svikara þennan . Þið eruð glötuð, ef þið gleymið því, að ávextir jarðarinnar eru eign okkar allra, en jörðin sjálf tilheyrir engum manni .“ Rousseau rakti ójöfnuð til einkaeignarréttar og verkaskiptingar . Hann sendi landa sínum, rithöfundinum Voltaire, eintak af ritgerðinni, og svaraði hann um hæl: „Aldrei hefur slíku andríki verið beitt til að gera oss að dýrum, sem þér gerið hér . Mig fer að dauðlanga til að skríða á fjórum fótum, þegar ég les rit yðar . En þar sem ég lagði þann vana niður fyrir sextíu árum, finn ég til allrar óhamingju, að mér er ómögulegt að taka hann upp aftur .“7 engin orð um svik, ósannindi, brögð, græðgi, öfund, baktal eða fyrirgefningu . Þeir girntust ekkert annað en það, sem náttúran veitti þeim hvort sem er í ríkum mæli . Þeir stunduðu að vísu mannát, en spurningin væri, hvort það væri verra en þau níðingsverk, sem daglega væru framin á Vesturlöndum . Líklegt er, að enska skáldið William Shakespeare hafi haft ritgerð Montaignes í huga, þegar hann skrifaði leikritið Ofviðrið einhvern tímann um eða eftir 1610 . Þar er ein söguhetjan villimaðurinn Kalíban, sem er að vísu langt frá því að vera göfugur, enda var Shakespeare alls ekki sammála Montaigne .6 Þótt lýsingar Kólumbusar, Montaignes og annarra á lífi frumbyggja í Vestur­ heimi væru fráleitar, höfðu þær áreiðanlega áhrif á franska heimspekinginn Jean­Jacques Rousseau, sem fyrst gat sér orð, þegar hann fékk verðlaun í ritgerðasamkeppni Lær­ Heimspekingurinn Jean­Jacques Rousseau taldi, að mann kynið hefði með menningunni glatað sakleysi sínu . Þar studdist hann við goðsögnina um göfuga villimenn .

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.