Skólavarðan - 01.11.2013, Qupperneq 12

Skólavarðan - 01.11.2013, Qupperneq 12
10 Skólavarðan 2. tbl 2013 kjaramálkjara ál Veturinn framundan verður annasam- ur hjá formönnum og öðrum starfs- mönnum stéttarfélaga. Nánast allir kjarasamningar landsins renna út á næstu mánuðum og mikil vinna mun fara í að endurnýja þá. Það hefur aldrei verið auðvelt að sækja kjarabætur og á því verður örugglega engin breyting nú. Á fundi sem forsvarsmenn ríkis- stjórnarinnar boðuðu 11. september síðastliðinn með aðilum vinnumark- aðarins voru skilaboðin skýr. Fjármála- ráðherra talaði um hófstilltar kröfur og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu- lífsins lagði þunga áherslu á að ekkert svigrúm væri til launahækkana. Undir það tóku fulltrúar sveitarfélaganna. KaUpMÁTTUriNN rÝrNar Það útheimtir mikla vinnu að endur- nýja kjarasamning og vinnan er flókin. Það er því til mikils að vinna að reyna að einfalda samningaferlið. Ríkissátta- semjari hefur síðustu misseri, í samráði við aðila vinnumarkaðarins, beitt sér fyrir breyttu og bættu vinnulagi við samningagerðina. Í tengslum við það hafa tveir vinnuhópar verið að störfum síðustu mánuði. Annar fjallaði um laun og skoðaði meðal annars launaþróun hinna ýmsu stétta frá árinu 2006 til dagsins í dag. Hinn hópurinn fór yfir stöðu efnahagsmála. Oddur S. Jakobs- son, hagfræðingur KÍ, var fulltrúi Kenn- arasambandsins í báðum hópunum. „Laun framhaldsskólakennara hafa frá árinu 2006 hækkað minna en laun annarra hópa sem við skoðuðum. Launaþróun í tónlistarskólum hefur einnig verið afar slök og kennarar og skólastjórnendur hjá sveitarfélögun- um eru lítið betur settir. Kaupmáttur allra hópa innan KÍ hefur rýrnað á tímabilinu. Ef við berum saman laun framhald- skólakennara og annarra sérfræðinga sem starfa hjá ríkinu þá kemur í ljós að dagvinnulaun kennaranna voru um 17% lægri í maí síðastliðnum en hinna sérfræðinganna. Félagsmenn KÍ í grunn-, leik- og tónlistarskólum eru síðan með um 19% lægri laun en við- miðunarhópar sem starfa hjá sveitar- félögunum. Ef launin eru borin saman við það sem gengur og gerist hjá sérfræðingum og stjórnendum sem starfa á almennum vinnumarkaði þá er munurinn miklu meiri.“ SaMið TiL SKaMMS TÍMa? Kennarar finna þetta á eigin skinni um hver mánaðamót og gera því kröfu um alvöru launaleiðréttingu nú, en þar verður á brattann að sækja. Sú hefð hefur skapast í vinnu við endur- nýjun kjarasamninga að fyrst er samið um kjör starfsmanna á almennum vinnumarkaði. Samningar þessa hóps renna út 30. nóvember og vinna við endurnýjun þeirra er þegar hafin. Flest stéttarfélög sem koma að þeirri vinnu hafa lýst þeirri skoðun að rétt sé að gera skammtímasamning og leggja áherslu á hækkun lægstu launa. Áhrifa þessara samninga mun gæta langt út fyrir raðir þeirra sem fá greidd laun eftir samningnum, því öðrum hópum er ætlað að semja á sömu forsendum. eNgar eiNFaLDar LaUSNir Skammtímasamningur þýðir venju- lega að gerðar eru minniháttar launa- leiðréttingar en vinnu við að leysa stærri mál er frestað og þar með launa- leiðréttingum einstakra hópa, þó fyrir liggi að þeir hafi sannarlega dregist aftur úr og að góð rök séu fyrir leiðrétt- ingu. Þessir hópar, þar á meðal kenn- arar, þurfa að ákveða hvað þeir ætla að gera. Er rétt að sætta sig við skamm- Samningar leiðréttinga eða brostinna vona? það eru ekki bara kennarar sem gera kröfu um sérstaka leiðréttingu í samningunum nú. Margar heilbrigðisstéttir hafa t.d. að undanförnu minnt með áberandi hætti á slök launakjör sín og mikið álag.

x

Skólavarðan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólavarðan
https://timarit.is/publication/1179

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.