Skólavarðan - 01.10.2014, Blaðsíða 9
Í grein sem Guðríður Arnardóttir,
formaður Félags framhaldsskólakennara,
og Ólafur H. Sigurjónsson, formaður
Félags stjórnenda í framhaldsskólum,
rituðu í Fréttablaðið 17. september er þetta
harðlega gagnrýnt. „Hlutfall fullorðinna
án framhaldsskólaprófs er með því lægsta
á Íslandi af OECD-ríkjunum og hafa 20%
einstaklinga undir 24 ára aldri á Íslandi
HNNLORNLèIUDPKDOGVVNyODSUy¿HèDHUX
ekki skráðir í nám. Í Hvítbók um umbætur
í menntun eru sett fram markmið um
nám í framhaldsskóla um hækkað hlutfall
þeirra sem ljúka námi á tilsettum tíma og lækkun brottfalls.
Fjárlagafrumvarp 2015 varðar ekki rétta leið að þeim mark-
miðum...“ segir meðal annars í greininni. Áformin hafa einnig
verið gagnrýnd af stjórn KÍ. „Styrkur íslenska framhaldsskólans
hefur falist í sveigjanlegum námstíma og aðgengi. Þessi stefna
boðar gjörbreytingu á menntapólitík í landinu,“
segir m.a. í ályktun frá stjórn Kennarasambands-
ins.
Hjalti Jón Sveinsson gagnrýnir þessi áform
einnig. Hann bendir á að ekki séu gerðar sömu
kröfur til kennara í þeim námsleiðum sem verið
er að ýta nemendunum inn í. „Ég er ekki að segja
að námið þarna sé ekki jafn gott og í framhalds-
skólunum, heldur aðeins að kröfurnar séu ekki
þær sömu. Það er því engin trygging fyrir því að
námið standist kröfur, ekki síst þær faglegu. Það
þarf því að skoða málið vel“.
Hann bendir einnig á að sparnaður og fækkun nemenda
bitni sérstaklega illa á litlum skólum á landsbyggðinni.
Ä/LWOXVNyODUQLUKDIDDOOWDIìXUIWDèEHUMDVWI\ULUOt¿VtQXRJ
sú barátta á eftir að harðna ef nemendum fækkar. Þetta þarf því
að skoða og til að mynda mætti velta fyrir sér hvort hægt væri
Guðríður Arnardóttir,
formaður Félags fram-
haldsskólakennara
Ólafur H. Sigurjóns-
son, formaður Félags
stjórnenda í framhalds-
skólum