Orð og tunga - 01.06.2008, Blaðsíða 60
50 Orð og tunga
Leiðbeiningar um aldur og útbreiðslu í Í03 (sbr. íslenska orðabók 2002:xiii-xiv)
t fomt eða úrelt mál
gam. gamallegt mál eða gamaldags, þó ekki horfið úr nú- tímamáli
skáld. skáldamál, orð sem helst em notuð í ljóðum (einkum fomum kvæðum og rímum)
sögul. sögulegt efni (viðáttan horfin)
stb. staðbundið málfar (nú stundum mjög sjaldgæft)
sjaldg. sjaldgæft
Hér ber helst til tíðinda að til er merkið gam. sem er notað fyrir gamal-
legt mál eða gamaldags sem þó er ekki horfið úr nútímamáli. í þriðju
útgáfu er gam. notað um orð eins og lakasótt og lakastífla2 sem bæði
merkja ,sjúkdómur í meltingarfærum jórturdýra, afleiðing af doða';
landsími í merkingunni ,sími út um land' og líðilegur sem merkir ,níð-
ingslegur, þrælslegur, argvítugur'. Orð merkt gam. eru nú um 1000.
Þessi orðaforði íslenskrar orðabókar með fornu máli og gömlu,
skáldamáli, staðbundnu máli og sjaldgæfu er óneitanlega mjög sér-
stakur og umfangsmikill. Lætur nærri að honum tilheyri um 15.000
orð. Vissulega má í honum finna tengingu tungumálsins við eldri texta
og notendur bókarinnar hafa vanist á að þennan orðaforða megi finna
í þessari bók en það má hugsa sér að talsverður hluti hans eigi allt eins
heima annars staðar, þá í fommálsbókum og söfnum Orðabókar Há-
skólans. Þennan orðaforða þarf að skoða mjög gaumgæfilega en ekki
vannst tími til þess nema að litlu leyti fyrir þriðju útgáfu enda þarf
oft talsverðar rannsóknir til að sjá hvaðan þessi orð koma og hvort
þau eigi heima í íslenskri orðabók. Nokkuð var þó tekið út af fomu
máli en þar var umtalsvert af stakdæmum, m.a. úr dróttkvæðum og
eddukvæðum. Staðbundni orðaforðinn er um þriðjungur þessa alls
og er margslunginn. Sjaldgæf orð eiga trúlega ekki að vera í miklum
mæli í íslenskri orðabók en erfitt getur verið að meta vægi þeirra, t.d.
er ógrynnin öll að firtna af sjaldgæfum orðum í verkum Halldórs Lax-
ness sem má svo sannarlega færa rök fyrir að eigi að vera hægt að
fletta upp í íslenskri orðabók.
Aldursmerkingar orða og afdrif þeirra eru líka háð útgáfutíman-
2Þau dæmi, sem tekin eru hér, eru valin úr Z-stafkafla íslenskrar orðabókar en þau
voru einnig notuð sem dæmi í fyrirlestri sem Mörður Árnason hélt á Rask-ráðstefnu
árið 2003.