Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 25

Náttúrufræðingurinn - 2015, Qupperneq 25
25 Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags byggðar með harða, svarta gljá- andi skel, áberandi liðskiptar, með sterklega fætur og höfuð, og með langa, liðskipta fálmara (2. mynd). Þær eru svipaðrar gerðar og lirfur annarra tegunda undirættarinnar. Fullþroska þriðjastigslirfur grafa sig ofan í jarðveginn til að púpa sig. Bjallan er rauðbrún á lit þegar hún skríður úr púpu. Að fjórum til fimm dögum liðnum dökknar skelin og verður svört. Þó finn- ast brún litarafbrigði af tegundinni (forma pedemontana F., undirtegund brunnea Hrbst.).7,8 Langir og grannir kjálkar bjöll- unnar eru einkar áberandi. Þeir hafa þróast með þessum hætti vegna þess hvernig bjallan ræðst til atlögu við bráð sína, sem oftast er stór snigill með kuðungsskel (3. mynd). Bjallan skríður upp á kuðunginn og þegar snigillinn dregur sig inn í skelina þrengir hún hausnum inn í kuðungsopið. Fyrst nærist bjallan á varnarslíminu sem snigillinn gefur frá sér en síðan leggst hún á sjálfan snigilinn og leysir hann upp með sérstökum meltingarvökva. Lirfan ber sig svipað að.6 Þegar sniglanárakki verður fyrir árás hugsanlegs afræningja seytir hann dropa af illa þefjandi vökva úr kirtlum við endaþarminn. Að öllum líkindum þjónar vökvinn sem efnavörn og finnst hjá flestum full- orðnum bjöllum ættarinnar. Kjörlendi og útbreiðsla í Evrópu Sniglanárakki er dæmigerð skógar- bjalla, algeng á meginlandi Evrópu þar sem hún heldur sig undir berki og mosa og í rotnandi trjálurkum.2,6 Hún kýs rakan jarðveg, væntan- lega vegna þess að hann er bráðinni nauðsynlegur.6 Á meginlandi Evrópu athafna bjöllurnar sig og æxlast fyrri hluta sumars, frá miðjum maí fram í byrjun júlí.9 Þetta fellur vel að fundartíma fyrstu bjöllunnar. Þá tekur við uppvaxtarskeið lirfanna sem síðan púpa sig þegar líður að hausti. Ný kynslóð fullþroska bjallna skríður þá úr púpum og leggst í vetrardvala. Sniglanárakki er útbreiddur í Evrópu og er tegundin þekkt í 35 Evrópulöndum.1 Útbreiðslusvæðið liggur síðan austur um Rússlands til Kína og Japans. Hann hefur ekki fundist í N-Ameríku. Meginút- breiðslan er í norðanverðri Evrópu og finnst tegundin um öll Norður- lönd, í Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Danmörku, en til þessa hvorki 1. mynd. Fyrsta eintak sniglanárakka (Phosphuga atrata) á Íslandi, fannst á Mógilsá 20. maí 2012. – First Icelandic specimen of the carrion beetle Phosphuga atrata found at Mógilsá, SW Iceland 20 May 2012. (Ljósm./Photo: Josepha Mayer). 2. mynd. Þriðja stigs lirfa sniglanárakka á Mógilsá 29. ágúst 2014. – 3d larval instar of the carrion beetle Phosphuga atrata found at Mó- gilsá, SW Iceland 29 August 2014. (Ljósm./Photo: Erling Ólafsson). 3. mynd. Atlaga sniglanárakka að snigli. – The carrion beetle Phosphuga atrata attacking a snail. (Teikning/Drawing: H. Rühmkorff í Heymons o.fl. 19276).
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.