Bókasafnið


Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 10

Bókasafnið - 01.06.2016, Blaðsíða 10
10 Bókasafnið 40. árg – 2016 Útdráttur Fjallað er um þjónustukönnun fyrir bókasafn Menntavís- indasviðs Háskóla Íslands. Markmiðið var að komast að því hversu ánægðir nemendur sviðsins eru með þjónustu safns- ins. Notuð var megindleg aðferðafræði og var rafræn könn- un send til allra nemenda á sviðinu. Alls bárust 375 svör. Almennt voru notendur safnsins ánægðir með þjónustu þess. Mest var ánægjan með upplýsingaþjónustu og viðmót starfsfólks og safnkost en minnst með aðstöðuna á safninu. Konur voru ánægðari en karlar með netviðmót og safnkost safnsins. Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild var óánægðari með safnkostinn en Uppeldis- og menntunar- fræðideild og Kennaradeild. Einnig er Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild óánægðari en Kennaradeild með af- greiðslutíma. Uppeldis- og menntunarfræðideild er ánægðari með netviðmót safnsins en Íþrótta-, tómstunda- og þroskaþjálfadeild. Nemendur í framhaldsnámi eru ánægðari með aðstöðu en grunnnemendur og hér mælist einnig munur á heildarskori ánægju þar sem framhaldsnem- ar eru ánægðari. Inngangur Greinin fjallar um rannsókn sem unnin var sem lokaverk- efni í MLIS námi í bókasafns- og upplýsingafræði við Há- skóla Íslands. Gerð var þjónustukönnun fyrir bókasafn Menntavísindasviðs Háskóla Íslands sem lögð var fyrir nemendur sviðsins. Þótt safnið sé starfrækt á tveimur starfs- stöðvum, Stakkahlíð og Laugarvatni er hér lögð áhersla á Stakkahlíð þar sem mjög lítill hluti þátttakenda í rannsókn- inni svaraði könnuninni út frá því að þeirra aðalsafn væri á Laugarvatni. Að ná til notenda Aukið framboð á upplýsingaveitum, einkum þegar kemur að internetinu, gerir það að verkum að auðveldara er fyrir fólk að leita annað en til bókasafna eftir upplýsingum. Það er því nauðsynlegt fyrir háskólabókasöfn að viðskiptavinir þeirra séu ánægðir með þá þjónustu sem þeir fá þar, að öðrum kosti er hætt við að þeir láti hjá líða að nota hana. Upp úr 1990 hafa bókasöfn brugðist við með því að horfa til þeirra aðferða sem eru við lýði í þjónustumiðuðum fyrirtækjum til að bæta þjónustu sína (Alire og Evans, 2010). Markaður fyrir bókasöfn hefur breyst umtalsvert og kröfur notenda samfara því. Með aukinni tækni og netvæðingu hafa rannsakendur í vaxandi mæli kosið að birta niðurstöður sínar á samfélagslega tengdum miðlum. Ein af afleiðingum þess er sú að bókasöfn hafa fengið samkeppni um hlutverk sitt sem upplýsingaveita. Þessi þróun hefur gert það að verkum að námsmönnum og fræðimönnum er gert kleift að sneiða hjá bókasöfnum þegar kemur að öflun upplýsinga og heimilda (Ross og Sennyey, 2008). Sem dæmi má nefna að könnun við háskólabókasafn Háskólans á Möltu, sem fram- kvæmd var á árunum 2003 til 2004, leiddi í ljós að starfsfólk háskólans hafði aðgang að upplýsingaveitum sem þóttu skilvirkari en háskólabókasafnið. Háskólabókasafnið var því ekki lengur miðlæg upplýsingamiðstöð fyrir háskólasamfé- lagið (Broady-Preston og Felice, 2006) en það hlýtur að vera staða sem öll háskólabókasöfn vilja forðast. Kennsla í upplýsingalæsi er sérstaklega mikilvægur þáttur í starfsemi háskólabókasafna. Vegna þess að nemendur eru almennt vel kunnugir tölvutækni og internetinu telja þeir sig gjarnan vera vel færa í upplýsingalæsi. Sú er samt sem áður ekki endilega raunin og því er kennsla á þessu sviði nauðsynleg (Chen og Lin, 2011). Þegar kemur að því að velja upplýsingaveitur eru kröfur gerðar um skilvirkni, ein- faldleika og gagnsæi og helst með grípandi og snjallri markaðssetningu. Þessar kröfur gera það að verkum að oft eru rafrænar heimildir, sem auðvelt er að nálgast, teknar fram yfir prentaðar heimildir af betri gæðum. Aðgengi er sett í fyrsta sæti á kostnað gæða (Ross og Sennyey, 2008). Þetta ætti ekki aðeins að vera áhyggjuefni fyrir bókasöfn heldur einnig fyrir háskólana sem starfrækja þau, því gæði þeirra heimilda sem nemendur nota hafa áhrif á og endur- spegla námið. Bókasafn Menntavísindasviðs Háskóla Íslands – Þjónustukönnun Eyrún Sigurðardóttir er með BA gráðu í sálfræði frá Háskóla Íslands, MA gráðu í auglýsingagerð (MA of Advertising) frá Queensland University of Technology og MLIS gráðu í bókasafns- og upplýsingafræði frá Háskóla Íslands. Hún starfar nú sem sérfræðingur hjá Rannís (Rannsóknamiðstöð Íslands). Ágústa Pálsdóttir er með doktorsgráðu í upplýsingafræði frá Åbo Akademi University í Finnlandi. Hún starfar sem prófessor við námsbraut í upplýsingafræði við Háskóla Íslands.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bókasafnið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.