SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 8

SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 8
SJUELSLhJaðiö ' Atak í söfnun aðila í stoðdeild Enn er blásið til sóknar fyrir nýbyggingarnar á Reykjalundi. Hér eru kynnt áform sem iíkleg eru til árangurs, bœði til fjáröflunar og eflingar félagsstarfsins innan SÍBS. A sameiginlegum fundi Kynningar- og markaðsnefndar og Félagsmálanefndar þriðjudaginn 18. janúar var ákveðiö að heija söfnun aðila í Stoðdeild SÍBS og að stofn- fundur Stoðdeildar verði haldinn laugardag- inn 16. september næstkomandi að Reykjalundi. Gert er ráð fyrir að söfnunin fari fram í skipulögðu sjálfboðaliðsstarfi félaga SÍBS og án kostnaðar íyrir samtökin. Formenn nefndanna hafa þegar haft samband við formenn deilda SIBS og kynnt þeim málið. Þess er vænst að stjórnir deildanna skipuleggi átakið í samráði við nefndarformennina og skrifstofu stjórnar SIBS. Æskilegt er að einstakir félagsmenn ræði persónulega viö vini sína og kunningja um að aðild sé tekin á dagskrá þar sem þeir kunna að hafa áhrif í fyrirtækjum, félagssamtökum og starfshópum. Þessi aðferö er í fyrsta lagi hugsuð til þess að tryggja árangur og í öðru lagi til þess að hver króna í væntanlegu framlagi nýtist markmiðum SÍBS. A öðrum stað í blaðinu er gerð grein fyrir byggingaráformunum á Reykjalundi sem er stærsta verkefnið í næstu framtíð. í viðræðum um aðild að Stoðdeild er eðlilegt að vísa til þess árangurs sem samtökin hafa náð í þágu landsmanna allra í uppbyggingu og stjórnun Reykjalundar, Múlalundar, Múlabæjar, Hlíðabæjar og HL-stöðvanna. Þá má nefna að framlög til Stoðdeildar geta fyrirtæki dregið frá skatti og félög og starfshópar eiga vinningsvon í Happdrætti SÍBS. Við undirrituð heitum á félaga okkar úti í deildunum að taka vel á i söfnuninni. Margrét Ragnars og Þorsteinn Sigurðsson Stoödeild SÍBS Á 31. þingi SÍBS 24.-25. október 1998 var eftirfarandi grein bætt inn í lög samtakanna: 6. gr. Stoðdeild 6.1. Heimilt er að stofna Stoðdeild SÍBS. Atvinnufyrirtæki, stofnanir og félög, sem vilja styrkja félagsstarfsemi og uppbyggingu stofnana sambandsins, geta orðið aðilar að stoðdeildinni. 6.2. Sambandsstjórn setur reglur um aðild að Stoðdeild og starfshætti hennar. Reglur um aðild að Stoðdeild SÍBS og starfshætti hennar 1. Hlutverk Stoödeildar er að styrkja félagsstarfsemi og uppbyggingu stofnana SÍBS. 2. Aðilar að Stoðdeild verða atvinnufyrirtæki, stofnanir, félög og starfshópar með kaupum á hlut sem annaðhvort felst í fimm þúsund króna mánaðarlegu framlagi i byggingarsjóð Endurhæfingarmiöstöðvar- innar á Reykjalundi eða áskrift aö átta miðum í Vöruhappdrætti SÍBS. 3. Aðilar að Stoðdeild geta átt fleiri en einn hlut. Hver hlutur veitir einum fulltrúa félagsaðild að Stoðdeild. Stjórnir atvinnufýrirtækja og stofnana, félaga og starfshópa tilnefna fulltrúa í Stoödeild í hlutfalli við hluti sína. 4. Aðalfundur Stoðdeildar skal haldinn í septembermánuði ár hvert. Á aðalfundi skal kosin fimm manna stjórn deildarinnar, svo og starfsnefndir eftir nánari ákvörðun aðalfundar. 5. Stjórn Stoðdeildar hefur sömu félagslega stöðu og fastanefndir SÍBS, svo sem málfrelsi og tillögurétt á þingum og formannaráðstefnum SIBS. 6. Stjórn Stoðdeildar skipuleggur í samráði við stjórnir SÍBS og Reykjalundar forvarnarþjónustu á sviði hjarta- og lungnasjúkdóma fyrir aðila Stoðdeildar. 8

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.