SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 22

SÍBS blaðið - 01.03.2000, Blaðsíða 22
FréttirÉ- Atvinrmleg endurhæfing B-S±daðið Frá teymi um atvinnulega endurhæfmgu á Reykjalundi hefur blaðinu borist þessi ánœgjulega frétt um nýbreytni á þessu sviði sem miklar vonir eru bundnar við. Sigríður Jónsdóttir Frá upphafi hefur atvinnuleg endur- hæfing verið stór þáttur í starfsemi Reykjalundar, en af ýmsum ástæðum dregist saman síðustu árin. Það hefur verið draumur margra hér á staðnum að blása nýju lífi í þessa starfsemi og á s.l. ári hófst undirbúningur að því marki. Kannað var hvernig best væri að standa að atvinnulegri endur- æfingu með þeirri þekkingu sem er til staðar í dag á þessu sviði og miðað við þær kröfur sem þjóðfélagið gerir nú. I upphafi árs var gerður samningur við Tryggingastofnun ríkisins um tilraunaverkefni í atvinnulegri endurhæfingu. Fulltrúar Tryggingastofnunar velja þá einstaklinga sem koma i þessa meðferð. Gert er ráð fyrir fimm þátttakendum til að byrja með. Vinna er samofin sjálfsmynd okkar og kemur sterklega fram í þessari algengu kynningar- spurningu „og hvaö gerir þú?“. A Islandi er litið á vinnuna sem dyggð og það eiga allir að vinna, hvernig sem þeim líður. Fólk er tilbúið að leggja mikið á sig til að halda sjálfsmynd sinni sem útivinnandi einstakl- ingur. Einstaklingurinn vill vera virtur og virkur þjóðfélagsþegn og finna að vinna hans er metin og hann er ekki byrði fyrir aðra. Þess vegna leggja margir alla sína orku í vinnuna, koma svo heim til að safna kröftum fyrir næsta vinnudag og hafa enga orku afgangs til að sinna öðrum þáttum lífs síns. Þetta er ekki farsælt til lengdar, því jafnvægi í daglegu lífi er undirstaða góðrar heilsu. Ef ekki er hægt að stunda sitt fyrra starf eins og áður, getur verið nauðsynlegt að skoöa nýjar leiðir til að framkvæma vinnuna og sætta sig við að gera hana á annan máta. Jafnvel getur verið þörf á að skipta um vinnu og hver á þá sú vinna að vera? Á sviði atvinnulegrar endurhæfingar hér á Reykjalundi munum við leggja áherslu á að einstaklingurinn setji sér markmið um þaö sem hann vill stefna að og veröi virkur í allri framkvæmd meðferðarinnar. Unnið verður einstaklingsbundið og f hópum, þar sem megináherslan verður vinnuefling sem felst í því að auka vinnuþol með fræðslu og æfingum og vinnuprófun við ýmis verk innan staðar og utan. Jafnframt verður lögð áhersla á vinnuaðlögun þar sem er athugað hvort hægt er að breyta vinnuumhverfi, vinnutíma og/eða vinnuferli. Einnig gefst kostur á atvinnuskoðun þar sem einstaklingurinn skoðar hvar áhugi og færni hans liggur, stuðningi við atvinnuumsóknir og skoðun á vinnumarkaðinum. Sett hefur verið á laggirnar sérstakt teymi sem í verða iðjuþjálfar, félagsráðgjafi, sálfræðingur, læknir, sjúkraþjálfari og hjúkrunarfræðingur, einnig höfum við aðgang að öðrum starfsstéttum staðarins eftir þörfum. Einstaklingarnir sem einungis munu verða hér á daginn geta nýtt sér þá aðstöðu sem er til staðar á Reykjalundi í þeim hléum sem gefast. Sigríður Jónsdóttir iðjuþjálfi Gott aö vita Italir segja að kamillujurtin lækni allt nema blankheit. Eru bollarnir á heimilinu litaðir af kaffi eða tedrykkju? Rakur uppþvottabursti með matarsóta (natroni) leysir litinn upp á augabragði. Ekki spara matarsótann. Skyldi ekki líka vera hægt aö hvítta í sér tennurnar með sömu aðferð? HITAVEITA SUÐURNESJA BREKKUSTÍG 36 • 260 NJARÐVÍK SÍMI 422 5200 • TELEFAX 421 4727 S©RPA SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS bs 22

x

SÍBS blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.