Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995 - 01.06.1995, Blaðsíða 2

Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995 - 01.06.1995, Blaðsíða 2
Verkfrteðingur hjá opinberri stofnun 41 Hventer verða þau jafn mikils virði LAUNAJAFNRETTI Kvenfrelsi verður ekki náð án leiðréttingar launamun- arins milli karla og kvenna. LAUNAMISRETTI - MANNRÉTTINDABROT Hjúkrunarfrœðingur hjá opinberri stofnun 4 ára háskólanám Grunttlaun: Kr. 88.003,- Heildarlaun, m/ vaktaálagi: Kr. 127.340,- Núverandi kjör kvenna hefta möguleika þeirra á að stjórna eigin lífi. Hefðbundin barátta verkalýðshreyfingarinnar hefur skilað konum litlum árangri og gömlu stjórnmálaflokkarnir hafa horft fram hjá því mannréttindabroti sem, launamisréttið vissulega er. Kvennalistinn hefur flutt fjölmörg frumvörp og tillögur um launamál. Nægir þar að nefna lögbindingu lágmarkslauna, endurmat á störfum kvenna, úrbætur í málum gerviverktaka og endurmat á störfum kennara. Kvennalistinn krefst leiðréttingar launamisréttisins, m.a. með ókynbundnu starfsmati og algjörri uppstokkun á launakerfi hins opinbera. Tryggja þarf aukið eftirlit með jafnréttislögunum svo þau nái tilgangi sínum. Kvennalistinn telur fullreynt að launamunur kynjanna muni ekki minnka nema með frumkvæði og undir forystu Kvennalistans innan ríkisstjórnar. Launajafnrétti er öllum í hag, ekki síst í samfélagi þar sem jafnan þarf tvær fyrirvinnur til að framfleyta fjölskyldu. Það mun ekki aðeins fela í sér réttarbætur fyrir konur heldur aukið fjárhagslegt öryggi og valfrelsi bæði kvenna og karla. 4 ára háskólanám Grunnlaun: Kr. 98.751,- óunnin yfirvinna: Kr. 41.040,- hílastyrkur: Kr. 21.716,- Heildarlaun: Kr. 161.507,- Konur hafa að meðaltali 70% aflaunum karla og háskólamenntaðar konur hafa einungis um 64% af launum karla með sambœriíega menntun. Konur í einkageiranum hafa það aðeins skár en kynsystur þeirra sem vinna hjá ríkinu. En á móti kemur að konur eiga erfiðara með að fá vinnu hjáeinkafyrirtækjum. Karlar fá fremur hvatningu í starfi, eru frekar sendir á ráðstefnur, vinna lengri vinnudag, fá fleiri aukagreiðslur, eiga auðveldara með að fá launahækkun og svona mætti lengi telja. Þetta eru m.a. niðurstöður úr könnun um launamyndun og kynbundinn launamun sem unnin var á vegum Norræna jafnlaunaverkefnisins. Kjarakönnun Verzlunarmanna- félags Reykjavíkur sýnir það sama: Konur gegna yfirleitt lægra launuðum störfum en karlar og starfsstéttir kvenna fá í heild mun lægri laun en karlar. Nóg er komið afkönn- unum ogfögrum orðum • aðgerða er pörf.

x

Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pilsaþytur: kosningablað Kvennalistans 1995
https://timarit.is/publication/1232

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.