Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 38

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1978, Blaðsíða 38
barst bréf frá þeim þar sem þeir óska eftir að fá að kynnast uppbygg- ingu heilsuverndar á íslandi, svo og að fara í skoðunarferðir um landið, s. s. til Veslmannaeyja, Gullfoss og Geysis. Leituðu þeir aðstoðar HFI varðandi skipulagningu og fól stjórn- in móttökunefnd, sem skipuð er eftir- töldum aðilum að annast hana: Björg Olafsdóttir, Svanlaug Arna- dóttir, Ingibjörg Árnadóttir, Berg- Ijót Líndal, Þuríður Backman og Ragnhildur Guðmundsdóttir. Á fyrsta fundi nefndarinnar var samþykkt að Björg Ólafsdóttir yrði formaður, Ingibjörg Árnadóttir varaformaður og Bergljót Líndal rit- ari. Nefndin hefur þegar boðað Ingi- björgu R. Magnúsdóttur, deildarstj. i lieilbrigðisráðuneytinu, og form. deildar heilsuverndarhjúkrunarfræð- inga til fundar. Þeir sem áhuga hafa á frekari upp- lýsingum snúi sér vinsamlegast til móttökunefndarinnar. Jólatrésskemmtun HFÍ ’77 Jólatrésskemmtun fyrir börn hjúkr- unarfræðinga var haldin á Hótel Sögu, Súlnasal, miðvikudaginn 28. desember sl. og hófst kl. 15.00. Mikið fjölmenni var á skemmtun- inni og fór hún vel og skipulega fram. Hljómsveit Ragnars Bjarna- sonar, ásamt Þuríði Sigurðardóttur, lék og söng jóla- og barnalög. Hópur jólasveina kom í heimsókn. Sungu þeir og dönsuðu af hjartans list. Einnig léku tvær níu ára stúlkur, Helga A. Jónsdóttir og Gréta Guð- mundsdóttir, nokkur lög á blokk- flauturnar sínar. Börnin tóku ríkulega þátt í öllu því er fram fór og skemmtu sér auð- sjáanlega hið besta. í undirbúningsnefnd voru þær Dóra Þorgilsdóttir, Mínerva Sveins- dóttir, Guðrún I. Jónsdóttir og Ragnhildur Jóhannsdóttir. Sjúkrahótel Rauða krossins Ákveðið hefur verið að Rauði kross- inn haldi áfram rekstri sjúkrahótels- ins við Skipholt fyrst um sinn og að tíminn fram til 1. júlí verði notaður til þess að koma traustari grundvelli undir reksturinn og setja ákveðnar reglur um starfsemina. Eins og komið hefur fram í tíma- ritinu, hefur sjúkrahótelið í Reykja- vík verið í miklum fjárhagserfiðleik- um og hafði stjórn Rauða krossins ákveðið að loka því um áramótin. Til þessa kom þó ekki. Var hald- inn fundur fulltrúa Rauða krossins og heilbrigðisráðherra og einnig trúnaðarráðsfundur Rauða krossins, og ákvörðun tekin um að halda rekstrinum áfram fyrst um sinn, eins og fyrr segir. Jólagleði Jólagleði Reykjavikurdeildarinnar fór fram föstudaginn 2. desember sl. í Fóstbræðraheimilinu við Lang- holtsveg. Munu miðar hafa selst upp og íærri fengið en vildu. Var hátið- in því fjölmenn og mikið fjör og kæti ríkti. Á borðum hafði verið komið fyrir grenigreinum, mandarínum og döðl- um. Setti þetta sinn svip á salinn, en þetta ásamt öðrum framkvæmdum í sambandi við hátíðina var verk stjórnar deildarinnar, sem átti bæði hrós og þakkir skilið fyrir framtak sitt. Vonandi verður þetta ekki látið niður falla. Námskeið fyrir trúnaðarmenn HFÍ Fyrirhugað er að halda námskeið fyrir trúnaðarmenn HFI fimmtu- daginn 9. og föstudaginn 10. mars nk. Námskeiðið verður haldið í nýj- um húsakynnum Bandalags starfs- manna ríkis og bæja að Grettisgötu 89, Reykjavík. Á námskeiðinu er gert ráð fyrir að kynnt verði eftir- farandi: Slarfsemi BSRB og HFÍ. Lög um kjarasamninga. Sérkj arasamningar. Aðalkj arasamningur. Utskýrður launaseðill. Lífeyrissjóður hjúkrunarkv. Réttindi og skyldur. Hlutverk trúnaðarmanna. Samtalstækni. Takmarka verður þátttöku við 30 -35 trúnaðarmenn. Dagskrá verður send þátttakendum. Ekki þarf að greiða þátttökugjald, en trúnaðarmönnum úti á landi er bent á að hafa samráð við hjúkrun- arforstjóra og stjórn sinnar svæðis- deildar varðandi greiðslu ferða- kostnaðar og launa meðan á nám- skeiðinu stendur. Miklar fyrirspurnir hafa verið um námskeið fyrir trúnaðarmenn og mikill áhugi virðist ríkja. Fræðslurit Landlæknisembættið befur gefið út tvö smárit með spurningum og svörum um pilluna og lykkjuna. Þetta eru fyrstu fræðsluritin, sem gefin eru úr samkv. lögum nr. 25/ 1975, þar sem landlækni er falin yfir- umsjón með fræðslu og ráðgjöf varðandi kynlíf og barneignir, fóst- ureyðingar og ófrjósemisaðgerðir. Bæklingar þessir hafa verið send- ir til heilsugæslu- og heilsuverndar- stöðva sem hafa eftirlit með vanfær- um konum og sjá um fræðslu ungra stúlkna. Auk þess mun menntamála- ráðuneytið í samráði við skólayfir- lækni dreifa þeim í skólana. Fræðsluritin voru unnin í sam- vinnu við Sigurð S. Magnússon pró- fessor sem staðfærði ritin. f þeim er 32 HJUKHUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands
https://timarit.is/publication/1250

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.