Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Qupperneq 26

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.08.1995, Qupperneq 26
Fyrir greinahöfunda Stefna Stefnt er að útgáfu Tímarits hjúkrun- arfræðinga sex sinnum á ári. Pað er vettvangur fræðilegrar og félagslegrar umræðu um hjúkrun. I faglega hluta tímaritsins eru birtar greinar um hjúkrunarstörf, nýjar rannsóknir í hjúkrun, viðtöl við fólk um hjúkrun og aðrar faglegar upplýsingar sem eiga erindi til hjúkrunarfræðinga. I félags- lega hluta blaðsins eða fréttahlutanum er greint frá kjaramálum og því sem er að gerast hjá félaginu. Ritstjóri ber ábyrgð á að efni, út- gáfa og rekstur blaðsins sé í samræmi við ritstjórnarstefnu þess í samvinnu við ritnefnd. Formaður l'élagsins ber ábyrgð á félagslegu efni J>ess öðru en aðsendum greinum. Höfundar aðsendra greina bera ábyrgð á efni þeirra. Skoðanir sem í þeim birtast þurfa ekki að sam- rýmast stefnu Félags íslenskra hjúkr- unarfræðinga. Ritstjóri ásamt ritnefnd leggur metnað í að tímaritið sé vantlað að því er varðar málfar, útlit og efni. Áhersla er lögð á að faglegar greinar standist vísindalegar kröfur. Þess vegna setnr ritnefnd reglur um J>að hvernig höf- undum ber að skila efni til blaðsins. Ritnefnd áskilur sér rétt til að birta greinar eða hafna Jteim og til að setja greinar upp og aðlaga að útliti blaðsins. Avallt er leitað umsagnar utanaðkomandi aðila um rannsókna- og fræðigreinar. Leiðbeiningar um ritun fræðigreina Greinahöfundar eru vinsamlegast beðnir um að skila greinum til Tímarits hj úkrunarfræðinga, Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík. Ef um rannsókna- greinar er að ræða J)á tekur vinnsla þeirra lágmark tvo mánuði eftir að þær berast til blaðsins. Yl'irleitt tekur skemmri tíma að ganga frá öðru efni í blaðið. Greinum skal skilað í þríriti hverju sinni. Endanlegri gerð skal skila á tölvudisklingi. Hafið 4 sentimetra spássíu á alla vegu. Þannig verður línu- lengdin 13 sentimetrar á A4 en 14 senti- metrar á „US letter“ síðustærð. Jafnið vinstra megin en ekki hægra megin, notið tvöfalt línubil og 12 punkta Times letur. Heimildalisti takmarkast af tilvís- unum í viðkomandi grein. Málfar: Vandið málfar og íslenskið erlend orð ef unnt er. Sé um sjaldgæfa þýðingu orða að ræða skal setja er- lenda orðið aftan við það íslenska í sviga. Skammstafanir skulu útskýrðar í fyrsta skipti sem J)ær koma fram. Myndir og teikningar skulu vera nægi- lega skýrar til að hægt sé að prenta eftir þeim. Uppsetning greinanna skal vera samkvæmt reglum ameríska sálfræð- ingafélagsins. Upplýsingar um þær er að finna í bókinni Publication Manual of tlie American Psychological Associa- tion (APA) og í íslenskri þýðingu í bók- inni Gagnfræðakver handa háskóla- nemum eftir Friðrik H. Jónsson og Sigurð J. Grétarsson. Heimildir: Fylgið reglum APA og J)á sérstaklega íslensku þýðingunni í Gagnfræðakverinu. Fylgið J)essum regl- um nákvæmlega og frá byrjun, J>að sparar mikla vinnu áður en yfir lýkur. Ljósrit af reglum J)essum er hægt að fá hjá Tímariti hjúkrunarfræðinga. Rannsóknagreinar Auk framangreinds gildir um rann- sóknagreinar sérstaklega: Titilsíða: Þar skal koma fram nafn greinar og höfunda(r), starfsheiti og upplýsingar um náms- og starfsferil. Utdráttur: Utdráttur á að vera stuttur (hámark 150 orð) og ensk þýð- ing á honuin skal fylgja. I útdrættinum á að koma fram: Tilgangur rannsókn- arinnar, aðferð í grundvallaratriðum, helstu athuganir, niðurstöður og álykt- anir. 74 TÍMARIT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 2.-3. tbl. 71 árg. 1995 Fræðilegur bakgrunnur: í inngangi J)essa kafla á tilgangur rannsóknarinn- ar að koma skýrt fram. I fræðilegri umfjöllun skal vísa á nauðsynlegar heimildir en ekki gera víðtæka fræði- lega úttekt á viðfangsefninu. Athugið vel að heimildalistar og tilvísanir séu rétt og samræind. Aðferð: Lýsið úrtaki, rannsókn- araðferð (tilraun, könnun, magnbund- in, gæðahundin o.s.frv.), mælitæki/- spurningalista og tölfræðiathugunum nægilega vel til að aðrir geti endurtekið rannsóknina. Vísið í heimildir að J)eim aðferðum sem beitt er ef J)ær eru til. Getið þess ef leyfi rannsókna- eða siða- nefnda var fengið til að gera rannsókn- ina. Niðurstöður: Niðurstöður skulu settar skipulega fram með töflum og myndum sem skal vísað skýrt í í texta. Endurtakið ekki nákvæmlega í textan- um það sem töflurnar sýna heldur dragið saman aðalatriði. Stundum næg- ir að setja einstaka niðurstöður fram með fáum orðum í texta. Umfjöllun: Hér skal leggja áherslu á þau atriði í rannsókninni sem eru ný og ályktanir sem draga má af þeim. Dragið ekki saman niðurstöður úr næsta kafla á undan. Látið koma fram hvaða máli niðurstöður rann- sóknarinnar skipta, takmarkanir þeirra og tengsl við aðrar rannsóknir. Skoðið niðurstöðurnar út frá tilgangi rannsóknarinnar en varist alhæfingar sem ekki eru studdar af niðurstöðum. Gefið hugmyndir að nýjum rannsókn- um og tilgátum. Þakkir: Berið einungis fram þakkir til fólks sem hefur veitt mikla aðstoð við verkefnið og að fengnu leyfi við- komandi.

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.