Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Side 42

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.1995, Side 42
Röðun í launaflokka samkvœmt kjarasamningi Félags íslenskra hjúkrunarfrœðinga Hjúkrunarfræðingar grunnraðast í launaflokka eftir starfsheitum. Taflan hér að neðan sýnir röðun starfsheita í launaflokka og skilgreiningu á starfsheitum 1. október 1995: Starfsheiti Launafl 1. okt. 1995 Skilgreining starfsheita Hjúkrunarfræðingur 202 - með BS 90 einingar. Hjúkrunarfræðingur 204 - byrjandi í starfi. Hjúkrunarfræðingur 205 - eftir 3 mánuði í starfi. Hjúkrunarfræðingur 206 - eftir 1 ár í starfi. Hjúkrunarfræðingur 207 - eftir 2 ár í starfi. Deildarhjúkrunarfræðingur 1 208 - hjúkrunarfræðingur sem hefur sérstaka faglega hæfni til að leysa úr þeim hjúkrunarviðfangsefnum sem upp koma á viðkomandi deild eða heilsugæslustöð. Hann geti einnig sinnt störfum vaktstjóra í fjarveru deildar- eða aðstoðardeildarstjóra. Miðað er við að starfsheitið taki til 15% stöðugilda almennra hjúkrunarfræðinga. Deildarhjúkrunarfræðingur 2 209 - hjúkrunarfræðingur sem uppfyllir skilyrði um deildarhjúkrunarfræðing 1 og hefur jafnframt frumkvæði að því að innleiða og fylgja eftir nýjungum í hjúkrun á viðkomandi deild. Miðað er við að starfsheitið taki til 8% stöðugilda almennra hjúkrunarfræðinga. Stoðhjúkrunarfræðingur 1 210 - hefur umsjón með og ber ábyrgð á ákveðnum málaflokkum. Stoðhjúkrunarfræðingur 2 211 - ráðgefandi hjúkrunarfræðingur á sérsviði. Stoðhjúkrunarfræðingur 3 212 - hjúkrunarfræðingur. sem ber ábyrgð á og hefur umsjón með þróunar- og rannsóknarverkefnum innan stofnunar. - hjúkrunarfræðingur sem hefur umsjón með sýkingavörnum. - hjúkrunarfræðingur sem hefur umsjón með sjúklingaflokkun. - hjúkrunarfræðslustjóri. Aðstoðardeildarstjóri 209 Deildarstjóri 1 210 - á göngudeild, dagdeild eða heilsugæslustöð. Deildarstjóri 2 21 1 - á dagdeild eða göngudeild með mikið umfang - á deild sem veitir þjónustu allan sólarhringinn, færri en 18 rúm á deild eða færri en 24 starfsmenn. - á heilsugæslustöð yfir viðamiklum málaflokkum. Deildarstjóri 3 212 - á deild sem veitir þjónustu allan sólarhringinn, þ.m.t. skurðstofur og svæfingadeildir, 18 rúm eða fleirl á deild og/eða 24 starfsmenn og fleiri. - á þeim deildum heilsugæslustöðva sem veita sólarhringsþjónustu. Hjúkrunarframkv.stjóri 1 214 - við minni stofnun. Hjúkrunarframkv.stjóri 2 215 - á sjúkrahúsi. Hjúkrunarframkv.stjóri 3 216 - á sjúkrahúsi, yfir stórum einingum. Til stórra eininga teljast handlækn,- og lyflækningadeildir RSP og BSP, geðdeild BSP og kvennadeild RSP og aðrar einingar af svipaðri stærð. Miðað er við að stærð eininga sé a.m.k. 80 legurúm og/eða a.m.k. 80 stöðugildi starfsmanna. Hjúkrunarforstjóri 1 213 - á heilsugæslustöð, íbúar svæðis færri en 6000. Hjúkrunarforstjóri 2 215 - á heilsugæslustöð, íbúar svæðis 6-12.000. - á sjúkrahúsi með allt að 49 rúm. Hjúkrunarforstjóri 3 216 - á heilsugæslustöð, fbúar svæðis fleiri en 12000. - á sjúkrahúsi með 50-99 rúm. Hjúkrunarforstjóri 4 217 - á sjúkrahúsi með 100-199 rúm. Hjúkrunarforstjóri 5 219 - á sjúkrahúsi með 200-499 rúm. Hjúkrunarforstjóri 6 220 - á sjúkrahúsi með yfir 500 rúm. Aðstoðardeildarstjóri skal ekki raðast lægra en 2 launaflokkum fyrir neðan grunnröðun viðkomandi deildarstjóra. Þannig raðast aðstoðardeildarstjóri á deild, þar sem deildarstjóri er deildarstjóri 3, í launaflokk 210 (gr. 1.3.5 í kjarasamningi). 148 rÍMARlT HJÚKRUNARFRÆÐINGA 4. tbl. 71. árg. 1995

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.