Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Page 10

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Page 10
hegðunarraskanir, sértækir námserfiðleikar og áfallastreita í kjölfar ofbeldis eru þættir sem hafa mikil áhrif á líðan unglinga og þar með á hættuna á þróun þunglyndis (Hammen o.fl., 1999; Olsson og Von Knorring,1999; Mazza og Reynolds,1999; Pine o.fl., 1998; Puskar o.fl.,1999). GREINING OG TÍÐNI Þunglyndi hjá unglingum er yfirleitt flokkað sem alvarleg geðlægð (major depressive disorder) eða óyndi (dysthymic disorder). Til að uppfylla greiningarviðmið fyrir alvarlega geðlægð þarf viðkomandi unglingur að hafa sýnt einkenni í að minnsta kosti 2 vikur (APA-American Psychiatric Association, DSM-IV - The Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders, 1994; WHO - World Health Organization, ICD-10 - International Statistical Classification of Diseases and Related Health Problems, 1996). Óyndi er vægara form þunglyndis og er skilgreint sem lækkað geðslag í að minnsta kosti 1 ár (APA, DSM-IV, 1994). Ýmsar rannsóknir benda til þess að þeir unglingar, sem uppfylla greiningarviðmið fyrir óyndi, greinist síðar með alvarlega geðlægð. Þegar slíkt ástand skapast uppfyllir viðkomandi einstaklingur greiningarviðmið fyrir bæði óyndi og alvarlega geðlægð og er það kallað tvöföld geðlægð (double depression) (Myers og Troutman, 1993). Þegar greining er gerð er oftast farið eftir viðmiðum DSM-IV (APA.1994) eða ICD-10 (WHO, 1996) greiningarkerfanna. Auk þess er nauðsynlegt að meta heilsufarssögu unglingsins sjálfs og foreldra hans (Olsson og Von Knorring, 1999). Þunglyndi má einnig meta með hinum ýmsu matskvörðum sem hafa verið útbúnir til að mæla sértæk þunglyndiseinkenni barna og unglinga. Slíkir listar hafa verið staðlaðir á íslensku úrtaki og eru leyfðir til notkunar I rannsóknum. Því miður er notkun listanna ekki leyfð í klínískri vinnu. Algengi óyndis og þunglyndis í Bandaríkjunum er talin á bilinu 2-9% af öllum unglingum og mælist í svipaðri tlðni og hjá fullorðnum (Hazell, OOonnell, Heathcote, Robertson og Henry, 1995; Lewinsohn o.fl., 1999; Puskaro.fi., 1999). Ein rannsókn hefur sýnt svipaðar tíðnitölur óyndis og þunglyndis meðal unglinga hér á landi og í Bandaríkjunum (Arnarson, Smári, Einarsdóttir og Jónasdóttir, 1994). Tíðni skammdegisþunglyndis hjá fullorðnum virðist hins vegar lág hér á landi og ætla má að sama gildi um unglinga á grundvelli ofangreindra upplýsinga. Orsakir þessa eru óljósar en tengjast ef til vill erfðum og aðlögun (slendinga (Magnússon, Axelsson, Karlsson og Óskarsson, 2000). Tíðni þunglyndis vex hratt með hækkandi aldri unglinga, sérstaklega á milli 11 og 15 ára aldurs (Brage o.fl., 1995; Lamarine, 1995; Pine, Cohen, Cohen og Brook, 1999; Pullen o.fl., 2000; Ryan, 1992). Á aldrinum 11-13 ára er lítill kynjamunur hvað varðar tíðni þunglyndis. Á unglingsárun- um fer það hins vegar að breytast og helmingi fleiri stúlkur en piltar greinast þunglyndar. Þessi kynjamunur helst fram á fullorðinsár en konur eru helmingi líklegri en karlar til að 234 greinast með þunglyndi (Castiglia, 2000; Cicchetti og Toth, 1998; Lamarine, 1995; Lewinsohn o.fl., 1999; Myers og Troutman, 1993; Puskar o.fl., 1999; Sheeber o.fl., 1997). Ýmsar skýringar hafa verið settar fram varðandi þennan kynjamun: erfðir, tengsl við algengi kvíða hjá stúlkum og ýmsir aðrir þættir s.s. sjálfstraust, sjálfsmat og líkamsímynd stúlkna (Birmaher o.fl., 1996; O'Hannessian, Lerner, Lerner og VonEye, 1999) Ljóst er að sjálfsmynd unglingsstúlkna er slakari en pilta á sama aldri þó að sú útskýring ein og sér skýri ekki kynjamun varðandi þunglyndi á unglingsárum (O'Hannessian o.fl., 1999). Margar rannsóknaniðurstöður styðja það að þunglyndi hjá unglingum sé að aukast og færist neðar í aldursflokk- ana (Birmaher o.fl., 1996; Castiglia, 2000; Myers og Trout- man, 1993; Ryan, 1992). Vaxandi þekking heilbrigðis- starfsmanna í Bandaríkjunum á þunglyndiseinkennum endurspeglast meðal annars í 80% aukningu á þung- lyndislyfjagjöf hjá börnum og unglingum á tímabilinu 1994- 1996. Aukin tíðni þunglyndis er þó ekki talin skýrast ein- vörðungu af betri greiningu sjúkdómsins heldur, eins og fram hefur komið, virðist þunglyndi verða æ algengara í vestrænum samfélögum (Castiglia, 2000; Hammen o.fl.,1999; Olsson og Von Knorring, 1999; Myers og Troutman, 1993). Samfara aukinni þunglyndistíðni vextíðni sjáifsvíga. Ýmis teikn eru á lofti um fjölgun sjálfsvíga meðal unglinga en tölur sýna að sjálfsvíg í þessum aldursflokki hafa aukist uggvænlega sl. 10-20 ár (Blackman, 1995; Offerog Schonert-Reichl, 1992; Puskaro.fi., 1999). EINKENNI OG AFLEIÐINGAR Þunglyndi hjá unglingum einkennist af depurð, pirringi og minnkandi áhuga á athöfnum sem unglingnum þótti áður áhugaverðar. Oft er um að ræða truflanir á svefnmynstri, viðkomandi á erfitt með að festa svefn, vaknar upp á næt- urnar eða á erfitt með að vakna á morgnana. Truflanir á matarlyst geta einnig komið fram, annaðhvort sem lystar- leysi eða sem of mikil matarlyst. Almennt eirðarleysi er til staðar og þreyta og/eða orkuleysi er áþerandi. Greina má einbeitingartruflanir og framtaksleysi. Oft fylgja hugsanir um að vera einskis virði, vera til trafala og oft er um að ræða óhóflega sektarkennd. í alvarlegu þunglyndi er til staðar vonleysi og hugsanir um dauða og sjálfsvíg (APA, DSM-IV, 1994; Ryan, 1992). Ofangreind einkenni eru í megindráttum svipuð og sjást hjá fullorðnum en meta má þunglyndiseinkenni unglinga með öðrum viðmiðunum. Stöðug depurð getur til dæmis birst á þann hátt að unglingurinn klæðist ætíð dökkum fatnaði og leggur litla áherslu á útlit sitt. Einnig er algengt að þunglyndi þirtist með því að unglingurinn hlustar ein- göngu á dapurlega tónlist með tilvitnunum í vonleysi og dauða. Ljóðagerð með þunglyndislegu ívafi er einnig algeng hjá döprum unglingum. Svefntruflanir geta birst á þann hátt að unglingurinn vakir yfir sjónvarpi eða tölvu á Tímarit hjúkrunarfræðinga • 4. tbl. 77. árg. 2001

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.