Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Page 49

Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.10.2001, Page 49
Ingunn Sigurgeirsdóttir fjármálastjóri kYt^Y'fdAY'sjóðuY' BHM Hinn 24. október 2000 var undirritað samkomulag Bandalags háskóla- manna, BSRB og Kennarasam- bands (slands annars vegar og fjármálaráðherra fyrir hönd ríkis- sjóðs, Reykjavíkurborgar og Launa- nefndar sveitafélaga hins vegar um tiltekin atriði er varða réttindi starfs- manna í ofangreindum samtökum. Þriðji kafli þessa samkomulags fjallar um fjölskyldu- og styrktarsjóð. Fjölskyldu- og styrktarsjóður hefur það hlutverk að taka við iðgjöldum launagreiðanda og ávaxta þau, að taka við umsóknum, ákvarða og annast greiðslur til félagsmanna í fæðingarorlofi og taka ákvarðanir um frekari ráðstöfun sjóðsins skv. nánari ákvörðun sjóðsstjórnar. Iðgjald í sjóðinn er 0,41% af heildarlaunum starfsmanna sem launagreiðandi greiðir frá og með 1. janúar 2001. 0,11% iðgjaldsins fara til að greiða laun í fæðingarorlofi og 0,3% eru lögð í styrktarsjóð. í framhaldi af þessu sam- komulagi var styrktarsjóður BHM stofnaður og fjallað um það hér á eftir. Skipulagsskrá sjóðsins var samþykkt á stofnfundi hans sem haldinn var 13. júní 2001. Þá var kjörin sjóðsstjórn sem vinnur nú að því að setja reglur fyrir sjóðinn. Samkvæmt skipulagsskrá styrktarsjóðs BHM er hlut- verk hans að styrkja sjóðfélaga með fé og koma þannig m.a. til móts við - tekjutap vegna ólaunaðrar fjarveru frá vinnu vegna veikinda sjóðfélaga eða nákominna eða annarra persónulegra ástæðna, - útgjöld vegna andláts sjóðfélaga; - útgjöld sjóðfélaga vegna ýmiss konar heilbrigðisþjónustu; - óbætt áföll vegna óvæntra starfsloka eða annarra óvæntra áfalla sjóðfélaga. Styrktarsjóður BHM mun gegna svipuðu hlutverki fyrir félagsmenn aðildarfélaga BHM sem starfa hjá ríki, Reykja- víkurborg og sveitarfélögum og sjúkrasjóður BHM gegnir fyrir félagsmenn aðildarfélaganna sem starfa á einkamark- aði. Réttur til úthlutunar úr sjóðnum er háður því að greitt hafi verið styrktarsjóðsframlag fyrir sjóðfélaga í 6 mánuði. Ekki verður hægt að sækja um greiðslur úr sjóðnum fyrr en 1. janúar 2002. Sú ákvörðun var tekin af stjórn sjóðsins þar sem úthlutunar- og starfsreglur fyrir sjóðinn liggja ekki fyrir og séð er fram á að það taki þann tíma að setja starf- semi sjóðsins ramma. Réttur sjóðfélaga til greiðslu úr sjóðnum hefur í fyrsta lagi orðið til 1. júlí 2001 og munu umsóknir vegna styrkveitinga úr sjóðnum frá þeim tíma verða teknar til afgreiðslu eftir 1. janúar 2002. Stjórn sjóðsins skipa: Ingunn Sigurgeirsdóttir formaður, Helga Hauksdóttir varaformaður, Helga Túliníus gjaldkeri, Viktor Smári Sæmundsson ritari og María H. Þorsteins- dóttir meðstjórnandi. Starfsmaður sjóðsins er Halla S. Sigurðardóttir, upplýsingafulltrúi BHM. Stjórnin hefur fund- að vikulega frá 8. ágúst og mun halda því áfram þar til úthlutunar- og starfsreglur sjóðsins eru fullfrágengnar. Sjúkrasjóður BHM var stofnaður 25. apríl 1998 á aðal- fundi BHM. Sjúkrasjóðurinn er opinn félagsmönnum aðildarfélaga BHM sem starfa á almennum vinnumarkaði. Samkvæmt lögum nr. 19/1979 ber einkafyrirtækjum að greiða 1 % af heildarlaunum starfsmanna sinna í sjúkrasjóð. Þau aðildarfélög, sem eiga aðild að sjúkrasjóði BHM, eru: • Dýralæknafélag (slands (DÍ) • Félag Islenskra fræða - kjaradeild (FÍF-K) • Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga (FÍH) • Félag Islenskra náttúrufræðinga (FÍN) • Meinatæknafélag íslands (MTÍ) • Stéttarfélag háskólamanna á matvæla- og næringar- fræðasviði (SHMN) • Útgarður - félag háskólamanna (ÚTG) Sjúkrasjóður BHM greiðir m.a. dagpeninga vegna sannanlegs tímabundins tekjutaps sjóðfélaga vegna veik- inda og slysa. Greiddur er útfararstyrkur og tímabundið framfærslutap vegna andláts sjóðfélaga. Þetta á þó aðeins við ef atvinnurekandi eða tryggingarfélag greiða ekki bætur af sama tilefni. Sjúkrasjóður BHM getur greitt sjúkradag- peninga vegna veikinda á meðgöngu sjóðfélaga og vegna vímuefnameðferðar. Lögbundnar greiðslur einkafyrirtækja I sjúkrasjóð BHM eru samkvæmt ofangreindu 1% af heildarlaunum en greiðslur I styrktarsjóð BHM eru 0,3% af heildarlaunum og er mismunur á þessum greiðslum skýrður með því að veikindaréttur starfsmanna ofangreindra aðila, sem standa að greiðslum í styrktarsjóðinn, er mun sterkari en réttur starfsmanna á almenna markaðinum. Það hefur skort á að launagreiðendur hjúkrunarfræð- inga á almenna markaðinum greiði sjúkrasjóðsiðgjaldið til sjúkrasjóðs BHM. Þeir hjúkrunarfræðingar, sem óska eftir því að félagið hafi samband við vinnuveitendur þeirra vegna innheimtu þessa iðgjalds, eru beðnir um að hafa samband við Ingunni Sigurgeirsdóttur, fjármálastjóra félagsins, í síma 540 6403. Tímarit hjúkrunarfræðinga ■ 4. tbl. 77. árg. 2001 273

x

Tímarit hjúkrunarfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit hjúkrunarfræðinga
https://timarit.is/publication/1159

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.