Norðurslóð - 17.12.1979, Blaðsíða 2

Norðurslóð - 17.12.1979, Blaðsíða 2
KRISTJÁN ELDJÁRN: Blíðviðrisdagur á hausti Það líður á ævina og minningar koma. Minningarúrbernsku og æsku, þegar lífið var einfalt, tryggt og gott. Minningar um unaðsdaga, vetur, sumar, vor og haust, og þó fremur öllu haustdaga, eins og þeir voru stundum langtímum saman fyr- ir norðan. Lognkyrrir sóldagar, þegar allt hvíldist, náttúran sjálf, sem var að búa sig undir vetur, og bændafólkið, sem vissi að vel var heyjað, fé komið af fjalli og allt tilbúið að taka móti hverju sem var. Fólkið hvíldist en þó ekki við iðjuleysi, heldur við hæglátt dútl haustsins og rósemd hugans. Allt var tryggt, ekki þurfti að hamast, tilvalið að dytta að. laga og bæta þetta eða hitt. Það var mikil lífs- nautn. Á einum slíkum haustblíðu- degi segir faðir minn við mig, ellefu ára snáða og lítinn eftir aldrei: ,,Ég ætla að senda þig ofan á Dalvík, Danni minn, og vita hvort ekki er hægt að fá í soðið hjá honum Balda gamla. Þú ferð á honum Litla-Brún og reiðir undir þér pokana ef þú færð eitthvað. Það væsir ekki um ykkur í þessari guðs bless- aðri blíðu.“ Ég var þaulvanur hestum, meðal annarra Litla-Brún, sem var einn af félögum bernsku minnar, en ekki höfðum við börnin ástríki á honum, eins og t.d. Blesa gamla, sem umgekkst börn eins og nærgætin fóstra. Litli-Brúnn var ekki vondur, en hann yar ekki mannelskur og enn síður barnelskur, og verst var að hann var viðkvæmur á taugum, í einu orði sagt: hann var hvumpinn. Þetta vissi ég vel, en var þó hvergi smeykur við að fara til Dalvíkur á þeim brúna, heldur lagði ótrauður af stað í þessa haustferð í heimilisins þágu. Allt gekk vel á leiðinni ofan eftir. Ég hitti Balda gamla, fékk soðninguna, og hann lét hana haganlega í tvo poka, sem hann lagði þvert yfir hnakkinn, óbundna en í jafnvægi niður á bæði hnakklöfin, setti mig svo ofan á alk samaan og bað fyrir kveðju fram eftir. Og við Litli-Brúnn lögðum af stað heim á leið. Ég gladdist í hjarta mínu yfir björginni sem ég reiddi undir mér og allt var yndi á himni og jörðu. Ég fór fetið ekkert lá á, enda óviturlegt að láta skokka með lausa fiskpoka undir sér í hnakkn- um. Fyrir neðan Hrappstaði var Gultjörnin fast neðan við veg- inn, díki sem sagt var botnlaust, þótt hófsóleyjar hefðu þar bólfestu. Mér stóð alltaf stugg- ur af Gultjörn þegar ég var barn, því ég þóttist viss um, að sá, sem í hana dytti, hvort sem var maður eða skepna, mundi sökkva á kaf og aldrei koma upp aftur. Um þetta var ég að hugsa þegar Litli-Brúnn fer allt í einu að hlaupa. Ekki tókst mér að halda aftur af honum, heldur jók hann ferðina, enda slettust nú fiskpokarnir til og frá á síðum hans. Von bráðarvarðég gagntekinn þeirri vissu að ég hlyti að detta af baki. Það brást ekki heldur. Fyrst brokkaði sá brúni, síða.n fór hann að stökkva og þá gaf ég upp alla tilburði til að halda mér í hnakknum, steyptist síðan af baki og þar næst pokarnir með fiskinum. 2 - NORÐURSLÓÐ En Brúnn hélt sprettinum upp litla brekku, sem liggur upp á Holtsmóana, þar sveigði hann út af brautinni og hljóp niður eftir móbarðinu. Þar stansaði hann, en ég staulaðist á fætur, ómeiddur með öllu en hálf- volandi, og fór að stumra yfir fiskpokunum. Sá ég fljótt, að ég mundi ekki hjálparlaust ná hestinum, láta upp pokana og komast á bak á Litla-Brún, svo viðkvæmur sem hann var. Áhyggjuþungur og hálfsneypt- ur fór ég að hugsa mitt ráð. En mikil var blessuð blíðan. Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst. Hver kemur ríð- andi framan að annar en Magnús í Koti, bóndinn á fremsta bænum í Svarfaðardal, með kreppta fætur í stuttum ístaðsólum og berjandi fóta- stokkinn sem ákafast. Hann ,,Já, þú getur trútt um talað,“ segir Magnús. ,,Lengi hef ég nú vitað að þú varst illa innrættur, en að þú værir annað eins varmenni, það hefði mér aldrei dottið í hug. Að senda blessað barnið til Dalvíkur á þessu bölvuðu villidýri og ætlast til, að drengurinn reiddi stóreflis fiskpoka undir sér alla leið fram í Tjörn. Það er sannarlega ekki þinni dyggð að þakka, að ekki brotnaði hvert bein í barninu og þín vegna hefði hann allt eins getað verið dauðrotaður.“ „Naumast er að þú vandir mér kveðjurnar'V segir faðir minn, „eða ertu kannski að telja það eftir þó þú hjálpaðir drengnum á bak. Kannski líka þetta séu þakkirnar fyrir natrón ið, sem ég gaf þér hérna í sumar, þegar þú komst heim til mín og varst að drepast úr brjóstssviða , w Dalabóndinn með trússahestana. svo þú gast varla hangið á hestinum.“ „Já, já, gat verið“, sagði Magnús. „Ætlarðu nú að bæta gráu ofan á svart með því að sjá eftir þessari hungurlús af natróni, sem þú gafst mér.“ Mér leist ekkert á blikuna. En í þessum orðum fara báðir að skellihlæja og þá vissi ég hvað klukkan sló. Karlarnir veltast um af hlátri svo að tárin renna úr augunum, síðan þurrka þeir Tjörn í Svarfaðardal, skömmu fyrir 1930. Lambhúsið næst til vinstri. nálgaðist óðum og sér fljótt hvað um er að vera, hestinn úti í móum og mig að baksa við fiskpokana á brautinni. Hefur hann nú hröð handtök, nær hestinum og róar hann, herðir á gjörðinni, kemur pokunum hag anlega fyrir í hnakknum, hjálp- ar mér síðan á bak, biður mig að fara nú varlega, og síðan kveðjumst við með virktum og fór hvor sína leið. Og áfram héldum við Litli- Brúnn og bar ekki til tíðinda. Komumst við heilu og höldnu heim með fiskinn, og sagði ég söguna af óhappi mínu og góðri hjálp Magnúsar í Koti við mig. Faðir minn var suður og upp við lambhús að gera fyrir hey, það var eitt af haustverkunum, að ganga frá, laga til, búa heyið undir vetur. Fór ég að hjálpa til, bera að torfuskekla og steina og taka þátt í verki eftir því sem vit og kraftar leyfðu. Mér leið vel, búinn að ljúka trúnaðar- starfi mínu og komast heill heim í öryggið, friðinn og haustdýrð- ina. Og leið nú dagurinn og sól fór að ganga til viðar. Þá gerðist það, að maður kemur ríðandi neðan að og lemur fótastokkinn: Magnús í Koti að koma úr kaupstaðnum. Þegar hann kemur á móts við lambúsið víkur hann hesti af vegi og ríður til okkar. Snarast þar af baki, kastará okkur kveðju. „Æ, komdu blessaður, Magnús minn,“ segir faðir minn, „og þakka þér innilega fyrir hvað drengilega þú hjálpaðir strákn- um. Það hefði orðið heldur lítið úr honum, ef þú hefðir ekki komið til hjálpar.“ sér stynjandi um augun, setjast, fá sér í nefið, spyrjast almæltra tíðinda, fara með gamanmál eða alvöru eftir atvikum, meðan sólin lækkar á lofti og býst til að hverfa bak við fjallið. En Magnús á langa leið fyrir höndum fram í Kot og má ekki tefja lengi. Hann stendur upp, kyssir pabba fast og lengi og segir: „Vertu blessaður, Þórarinn minn, og guð blessi þig fyrir allt gott.“ „Já, vertu ævinlega blessað- ur Magnús minn“, segir faðir minn „og ég þakka þér aftur fyrir strákinn og alla vináttu fyrr og síðar og guð veri með þér.“ Og enn kyssast karlarnir. Dalabóndinn stígur á bak og skokkar af stað, fæturnir berjast við síður hestsins eins og vængir á fugli, þar sem hann fjarlægist óðum suður brautina. Eftir stöndum við feðgar með hlýju vináttunnar í huganum, léttir í skapi, röltum síðan heim. Góður dagur er að kvöldi kominn. Faðir- minn gáir til veðurs, það lítur út fyrir að blíðan ætli að haldast. Drengurinn sefur vært í ljúfu skjóli foreldrahúsanna. Minn- ingin lifir í huga hans, og mun lifa með honum meðan hann sjálfur lifir og veit til sín. Ein minning af mörgum, einn blíð- viðrisdagur á hausti norður í Svarfaðardal. Kristján Eldjárn. Óskum Svarfdælum í bæ og byggð GLEÐILEGRA JÓLA og farsæls komandi árs með þökk fyrir ánægjuleg viðskipti / a árinu 1979. Svarfaðardalur Ásgríms Jónssonar (frummynd) Gjöf Snorra Sigfússonar fv. námstjóra til Sparisjóðs Svarfdæla TOSgarisióöur&atóœla

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.