Norðurslóð - 17.12.1979, Blaðsíða 14

Norðurslóð - 17.12.1979, Blaðsíða 14
L p55 “1 Oskum öllum viðskiptavinum vorum gleðilegra jóla og farsœldar á komandi ári. Þökkum viðskiptin ! á liðnum árum. ELEKTRO CO. HF. fl Bílaverkstæði Dalvíkur SELJUM: Rafgeyma, snjódekk, keðjur, þurrkublöð, hleðslutæki, þokuljós, viftureimar og ýmsar vetrarvörur. Varahlutaþjónusta fyrir bíla og land- búnaðarvélar - Hjólbarðaþjónusta - Smurstöð Viðgerðir á bílum, bátum og landbúnaðarvélum. Smíði á stálgrindahúsum. Óskum starfsfólki okkar og uiðskiptauinum GLEÐILEGRA JÓLA og farsœls komandi árs með þökk fyrir hið liðna Framsókn vann stórsigur - en mun hún geta nýtt hann? Kosningar eru um gað gengnar og allir vita allt um útkomuna bæði hér í kjördæminu og í landinu öllu. Hér í blaðinu höfðu tveir sérfræðingar og reiknirmeistarar látið ljós sitt skína og spáð fyrir um úrslitin. Ekki verður með sanni sagt að þeir hafí hitt tiltakanlega vel í markið - eða hvað? Þeir höfðu reyndar rétt fyrir sér í einu stóru atriði, hreyfingin til baka frá Alþýðu- flokki til Sjálfstæðisflokks varð minni, og líkari því sem þeir spáðu, heldur en almennt var búist við. Hinsvegar gerðu þeir báðir of mikið úr fylgi Alþýðu- bandalags og of lítið úr afturbata Framsóknar. Hér sannast sem sé hið forn- kveðna, að það er býsna erfitt að fást við spádóma - einkum um óorðna hluti. Kosningaþátttaka hér. Það er miklu þægilegra að spá í það, sem liðið er og hér skal sagt frá þátttöku Svarf- dæla í kosningunum. í Dalvíkurkjördeild voru 758 á kjörskrá með atkvæðisrétti á kjördegi, 372 karlar og 386 konur. Á kjörstað í grunnskól- anum kusu 683 og utankjör- staðar 124, alls 807 eða 90,1%. í Svarfaðardalskjördeild voru 189 á kjörskrá, 101 karl og 88 konur. A kjörstað í Húsa- bakkaskóla kusu 149 og utan kjörstaðar 23, alls 172 eða 91%. í báðum kjördeildum var kjörfundi slitið kl. 23 á sunnu- deginum og gekk kosning vel og friðsamlega eins og við var að búast. Og eins og sagt var í síðasta blaði, að menn gætu velt fyrir sér stjórnarmyndun með þeim niðurstöðum, sem þar var spáð, þá gildir það enn og engu síður nú: Hvers konar ríkisstjórn kemur út úr þessari deiglu? Kannske verður komið svar við þeirri spurningu, þegarNorður- slóð kemur til lesenda sinna næst á nýju ári. Kannske. 14 - NORÐURSLÓÐ r Oskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsceldar á komandi ári. Þökkum samskiptin á árinu sem er að líða. Um síðastliðin áramót unnu hjá Sam- bandsverksmiðjunum rúmlega 800 Ak- ureyringar. Samvinnuiðnaðurinn á Ak- ureyri er mikið afl og því er eðlilegt að taka á með bæjarfélaginu ístöðugri við- leitni þess til að skapa íbúum sínum atvinnuöryggi og trausta lífsafkonu. Nú um hríð hefur íslenskur iðnaður átt í miklum erfiðleikum. Samvinnuiðnaður- inn hefur ekki farið varhluta af þeim. Þaðereðlilegtað íbúar hinnar blómlegu byggðar við Eyjafjörð, sem þessi iðn- aður hefur sannarlega átt mikinn og heillavænlegan þátt í að skapa, beri ugg í brjósti um framvinduna og finni betur nú en máski oftendranæraðsamvinnu- iðnaðurinn er það afl sem ekki má bresta. Akureyringar Standið vörð um samvinnuiðnaðinn IÐNAÐARDEILD SAMBANDSINS Akureyri Glerárgötu 28 - Pósthólf 606 - Simi: (96)21900 ý'ýýj$ mr & * -jf: " s» | m m tmm * * m wws * # 3$$g L * ***?*** tm* » xv'mm

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.