Norðurslóð - 17.12.1979, Blaðsíða 7

Norðurslóð - 17.12.1979, Blaðsíða 7
( Hafnargerðin r a v Dalvík 40 ára y Á þessu ári eru 40 ár síðan byrjað var á framkvæmdum við hafnargerð á Dalvík. Þegar þetta barst í tal við einn ritstjóra Norðurslóðar, spurði hann mig að því hvað mér væri efst í huga í sambandi víð minningar um undirbúning og byrjun á hafn- arframkvæmdunum. í þessu sambandi er margs að minnast, en ég held að undir- búningurinn verði mér efst í huga. Fyrstu hafnarlög á íslandi munu fyrst og fremst hafa verið sett í sambandi við verslunar- viðskipti íslendinga við útlönd og fyrstu hafnarlögin eru sett fyrir Reykjavík 1911 og síðan 6 þau næstu öll fyrir verslunar- hafnir, það er fyrst 8. hafnarlög- in, sem sett eru á Alþingi 1931 fyrir Dalvík og lögfest 8. október að hafnarlög miðast við fiskihöfn. Hafnarlögin voru byggð á uppdrætti og áætlun, sem Finn- bogi Rútur Valdimarsson hafði gert árið 1930. Taldi hann að heppilegast væri að gera höfn- ina á Hólskrók með brimbrjót á Hólstöng og var kostnaðar- áætlun 1200 þúsund krónur. Hafnarlögin 1931 voru síðan sett á grundvelli þessarar áætl- unar. Ekki skyldi maður undrast, þó hreppsnefndir í fámennum byggðarlögum kinokuðu sérvið að ráðast 1 fjárfrekar fram- kvæmdir á þeim tíma, enda verðmat og ábyrgðatilfinning með öðrum hætti en nú virðist gerast, og sjóðir engir til. Þá voru menn líka óánægðir með staðarval hafnarinnar, sérstak- lega útgerðarmenn, sem áttu sín mannvirki, bryggjur og hús fjarri hafnarstaðnum. Lá því hafnarmálið niðri um hríð. Að tilhlutan Ungmennafé- lags Svarfdæla komst skriður á hafnarmálið árið 1934 en þá var kosin hafnarnefnd fyrir Dalvík. í þessari fyrstu nefnd voru: Sigurður Jónsson, kaupmaður kosinn af sýslunefnd Eyjafjarð- arsýslu, Sveinbjörn Jóhanns- son, útgerðarmaður og Tryggvi Jónsson, verslunarmaður, kosn ir af hreppsnefnd Svarfaðar- dalshrepps. Fljótlega var ákveðið í sam- ráði við Vitamálaskrifstofu ís- lands að láta framkvæma nýjar mælingar og gera áætlanir um hafnargerð þar sem hún var síðar byggð. Var sú áætlun tilbúin 1937 og hljóðaði upp á 777 þúsund krónur. Á fundi hreppsnefndar og hafnarnefndar 27. febrúar 1937 var samið og samþykkt svo- hljóðandi símskeyti: „Alþingismennirnir Einar Árnason og Bernharð Stefáns- son Reykjavík. Á fundi í dag samþykkti hreppsnefnd Svarf- aðardalshrepps að hefja bygg- ingu hafnar á Dalvík á grund- velli síðustu rannsókna umgerð og kostnað hafnarinnar með Tryggvi Jónsson. væntanlegu samþykki ríkis- stjórnarinnar. Skorar nefndin hér með á yður heiðruðu alþingismenn að flytja þetta mál inn á Alþingi það sem nú stendur yfir og fá fjárveitingu í þessu augnamiði tekna á fjárlög nú.“ Undir skeytið rituðu: Þor- steinn Jónsson, Þorsteinn Ant- onsson, Stefán Hallgrímsson, Þórarinn Kr. Eldjárn og Helgi Símonarson. Á fjárlögum fyrir 1938 var veitt kr. 9000 til hafnargerðar á Dalvík á móti væntanlegu framlagi frá Svarf- aðardalshreppi, sem þurfti þá að vera kr. 4.500. Hreppsnefnd- in sótti um lán hjá Sparisjóði Svarfdæla allt að kr. 5000. Þetta þóttu allmiklar upp- hæðir í þá daga og þá sérstak- lega i framkvæmdir, sem voru ærið draumkendar í hugum margra, en ljóst var að afla þyrfti verulegs láns til þess að framkvæmdir gætu hafist. Var árið 1938 notað til að athuga um lánsmöguleika og gera efnisrannsóknir. Var ákveðið að taka efni i Brimnesgili, sem var í eigu hreppsins og að leggja þangað járnbraut. Var þetta rúmlega eins kílómetra leið. Það var mikið rætt um hafnarmálið þessa mánuði og sýndist hverjum, þeim, sem töldu framtíð kauptúnsins væri undir þessu máli komin ogaðrir sem töldu að ef í þetta væri ráðist mundi það verða hreppn- um ofviða og hann binda sér þá skuldabagga, sem hann risi ekki undir. Hreppsnefnd og hafnar- nefnd ræddu málin og voru nokkuð einhugaa um að vinna að framgangi þeirra eftir getu. Verður ekki sagt að hrepps- nefndarmennirnir úr sveitinni hafi á nokkurn hátt látið sitt eftir liggja með áhuga frekar en nefndarmennirnir úr kauptún- inu. Það var síðari hluta febrúar 1939 að þeir lögðu af stað til Reykjavíkur Þorsteinn Jóns- son, oddviti og Tryggvi Jóns- son, formaður hafnarnefndar og skyldi gerð úrslitatilraun til að afla fjár til að hægt væri að byrja á hafnargerðinni, upphæð sú, sem reyna átti að fá var 50.000 krónur. Þegar suður var komið reynd ist útlitið ekki glæsilegt. Nýlega þá hafði lánastofnunum borist fyrirmæli frá fjármálaráðuneyt- inu um að lána ekki til fjárfest- inga og ef þær hefðu fé til ráðstöfunar væri ætlast til að þær keyptu ríkisskuldabréf. Þá kvað Vitamálastjóri að þyrfti að sækja um til Gjaldeyris- og innflutningsnefndar um heimild til innflutnings á nauðsynleg- ustu verkfærum og efni vegna hafnargerðarinnar. Þegar rætt var við hlutaðeigandi aðila kom strax: „Hafið þið fjármagn, það er ekki til neins að tala við okkur fyrr en þið hafið ein- hverja peninga“ og „Hafið þið innflutningsleyfi, það þýðir ekki að tala við okkur fyrr en þið hafið innflutningsleyfi.“ Þegar málið var lagt fyrir ráðherra, sagði hann: „Það sem þið eruð raunverulega að biðja um er að meiga hefja mjög fjárfreka framkvæmd þar sem ríkissjóður verður að sjá um meiri hluta kostnaðar sam- kvæmt hafnarlögunum, fimm- tíu þúsund krónurnar eru að- eins . .byrjuiiin.'1 Sýnilegt var að ef árangur ætti að nást með innflutningsleyfi og fjár- magni tæki það langan tíma að sækja þau mál, því varð það að Frá trébryggjutímanum á Dalvík. ráði að Þorsteinn fór heim en Tryggvi varð eftir. Eftir 7 vikna starf Tryggva var afhent skjal í Fjármálaráðuneytinu, sem efn- islega var á þessa leið. „Ráðuneytið mælir með því að Söfnunarsjóður fslands veiti Svarfaðardalshreppi lán að fjár hæð kr. 50 þúsund samkvæmt hafnarlögum fyrir Dalvík. Hafi þetta fé áður verið ætlað til kaupa á ríkisskuldabréfum mun ráðuneytið ekki gera athuga- semdir við það.“ Að þessum áfanga var náð var ekki síst að þakka einstæð- um stuðningi þeirra Emils Jóns- sonar, vitamálastjóra og Bern- harðs Stefánssonar, alþingis- manns.. í maí 1939 var síðan byrjað á undirbúningi til hafnargerðar- innar. Járnbrautateinarnir, sem voru notaðir við hafnargerðina í Reykjavík voru fluttir til Dalvíkur. Verkfæri voru engin til nema hamrar, axir og sagir. Rekaviður var notaður í „svell- ur“ en það eru bindistykkinn milli járnbrautateinanna. Engin sög var til og þurfti að byggja sög, sem var drifín af mótorvél. Þá þurfti að smíða stóran fleka fyrir rammbúkka, smíða járn- brautar brú yfir Brimnesá, ofl. o.fl. Undirstaða undir járn- brautina var sléttuð með skófl- um. Smíða þurfti flutninga- vagna að öllu leyti nema hjólin. Dráttarvélin var innflutt og gekk fyrir bensíni. I þennan undirbúning allan fór allt sum- arið og aðeins lítið magn af efni komst fram í flæðarmálið um haustið og peningarnir meira en búnir, en það er önnur saga. Þrátt fyrir það að stubburinn væri stuttur, sást þó þríhyrnu- vottur af logni með flóði í norðan golu, sem gaf góð fyrir- heit. Verkstjóri þetta fyrsta sumar var Eyþór Þórarinsson, sem hafði verið verkstjóri við höfnina í Hafnarfirði og Vita- málastjóri taldi sinn besta verk- stjóra. Verkfræðingur var Þor- lákur Helgason, sem hafði num- ið hafnarverkfræði og hann hafði teiknað höfnina. Var hann verkfræðingur hafnarinn- ar næstu árin og að mínu áliti mjög fær verkfræðingur. Þegar maður rennir hugan- um til baka, til sumarsins 1939 og ber saman þá tækniþekkingu sem þá var og sem nú er, finnst manni óhugsandi að ráðist væri í hafnargerðir með þeim verk- færum sem þá voru fyrir hendi. T.d. þurfti þá að lyfta grjótinu upp á vagnana með þrífæti og talíu, en tækniþróun næstu ára varð mjög hröð og áframhald hafnargerðarinnar leikur einn miðað við byrjunina og má raunar sama segja um fjármál- in. Ég álít að enginn dragi í efa þann þátt, sem Dalvíkurhöfn hefur átt í þróun byggðarlagsins og að það hafi verið farið af stað með framkvæmdir á sem næst réttum tíma. En hafa skyldi í huga að hafnir verða aldrei fullgerðar, þær verða að fylgja eftir þeirri þróun sem verður í samskiptum láðs og lagar. Ég leyfi mér að vona að Dalvíkur- höfn verði ætíð hlutverki sínu vaxin. Tryggvi Jónsson SNJÓTROÐARI Skíðafélag Dalvíkur hefur beð- ið Norðurslóð að birta eftirfar- andi fréttatilkynningu: Skíðafélag Dalvíkur hefur að undanförnu haft til athugunar kaup á snjótroðara, eins og fram kom í síðasta blaði Norð- urslóðar. Ástæða þess að Skíðafélagið hefur tekið þessa ákvörðun er sú að mikill og vaxandi fjöldi bæjarbúa sækir nú í skíðasvæð- ið. Margt ungra skíðamanna er að staðaldri við skíðaiðkun og æfingar á svæðinu. Nokkrir' þessara ungu skíðamanna eru þegar á landsmælikvarða hvað getu snertir. Þessir skíðamenn rista brekkurnar svo að þær verða nánast ófærar fyrir hinn almenna skíðamann (trimmar- ann) og er þegar farið að bera á að fólk sækir frá Dalvík í skíðalönd Akureyrar. Snjótroðari sá, sem félagið hefur haft í athugun að kaupa, er af gerðinni Kassbonhrer og er búinn ýtutönn og bretti til að jafna brekkurnar, einnig sleða til að leggja gönguslóðir. Troð- arinn er með Benz-dísilvél, 60 hestöfl og vökvadrif. Getur troðarinn klifrað allt að 100% halla (45°). Björgunarsveit SVFÍ á Dal- vík var boðin aðild að kaupum troðarans og yrði hann þá ávallt tilbúinn til notkunar í neyðar- og slysatilfellum. Skíðafélagið hefur sótt um bæjarábyrgð fyrir þeim lánum sem þarf að taka vegna kaup- anna. Einnig hefur verið farið fram á að bæjarsjóður styrki kaupin á svipaðan hátt og lyftukaupin. í því sambandi má geta þess að troðarakaupin eru á núgildandi verðlagi svipað átak og lyftukaupin voru á sínum tíma, sem allir vita að var stórt framfaraskref og flestir skilja nú hvað það var nauðsyn- legt. Kaup á troðara yrðu ekki minni framfarir til bættrar aðstöðu skíðafólks, auk þess sem troðnar brekkur draga mjög úr slysahættu. Með vaxandi skilningi á þörf fyrir hreyfingu og útivist er mjög nauðsynlegt að halda áfram uppbyggingu skíðaað- stöðunnar með tilliti til þess að skíðaíþróttin er mest stundaða almannaíþróttin á Dalvík. Skíðafélag Dalvíkur. NORÐURSLÓÐ - 7

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.