Norðurslóð - 17.12.1979, Blaðsíða 6

Norðurslóð - 17.12.1979, Blaðsíða 6
Frystihúsið að breytingum loknum - Rcett við forráðamenn o.fl. Fréttamaður lagði leið sína í frystihús kaupfélagsins á Dal- vík einn síðasta daginn í nóv- ember, rétt fyrir kosningar, til að hafa fregnir af gangi mála nú, þegar að mestu er lokið þeim áfanga í endurbótum á fiskvinnslustöðinni, sem tekinn var fyrir síðastliðið sumar og haust. Teknir voru tali þeir Árni Óskarsson frystihússtjóri og Aðalsteinn Gottskálksson fram leiðslustjóri. Ennfremur var lit- ið inn í vinnusalinn og talað við nokkrar konur, sem reyndar voru í óða önn að snyrta og pakka ýsu. Aðalsteinn var reyndar á förum til Reykjavíkur á fund fiskitækna, þar sem ræða skyldi um rafeindabúnað í fiskiðnað- inum, sem hann hefur mikinn áhuga á. Árni átti mjögannríkt, en samt gáfu þeir sér tíma til að ræða drykklanga stund við forvitinn fréttamann, sem síðan sauð saman eftirfarandi frétta- pistil úr samtalinu. Vinnsla hófst 1. nóv. Eftir nálega þriggja mánaða uppihald hófst vinnsla aftur í frystihúsinu þann 1. nóvember. Ekki er þó svo að skilja, að lokið sé öllu því, sem koma skal í þessum áfanga uppbyggingar frystihússins. T.d. er enn ókom- inn lyftari í fiskkmóttökuna og þvottakör, ennfremur aðalfisk- flutningsband í vélasaln- um. Allt er þetta þó væntanlegt innan tíðar, en á meðan er notast við bráðabirgðaútbún- að. Það er núna smátt og smátt verið að taka í notkun nýja hluta vinnslusalarins, þar sem áður voru vélar. Það er verið að prófa sig áfram með 2 tegundir vinnsluborða með tilliti til sem mestrar hagræðingar í vinnu og þæginda fyrir starfsmanninn. Það má segja að í stórum dráttum gangi þetta ljómandi vel og breytingarnar muni ná tilgangi sínum að því er varðar afkastagetu hússins og ekki síður framför í vinnuaðstöðu fólksins. Samt eru enn óleyst vandamál. Sérstaklegaerbeina- snigillinn nú vandræðabarn, það er mjög mikið vatn notað til að koma beinunum áfram og það gerir sniglinum erfitt fyrir. Á þessu þarf að ráða bót með einhverju móti. Hörgull á verkafólki. Nú væri hægt að bæta við fólki í salinn og raunar er það nauðsynlegt. En staðreyndin er, að fólk liggur ekki á lausu hér á staðnum. Það hefur verið aug- lýsst eftir stúlkum en árangur lítill orðið. (Sjá auglýsingiu hér í blaðinu) Spurt er um, hvort ekki megi ná fólki annarsstaðar frá af landinu eða erlendis frá t.d. Ástralíu. Því er til að svara, að þá koma til skjalanna húsnæð- isvandræðin. Frystihúsið hefur yFir engu íbúðarrými að ráða. Reyndar hefur mönnum dottið í hug að innrétta fyrir starfsfólk uppi í MARBAKKA þ.e. Aðal- steinshúsinu, en það er nú bara framtíðarmúsík. Hráefnismiðlun. Þegar talið barst að rekstrar- horfum með tilliti til væntan- legra, aukinna takmarkana á þorskveiðum næstu árin kemur í ljós, að forráðamenn frysti- hússins hafa leitt hugann að þessu vandamáli. Þeir Aðal- steinn og Gunnlaugurfrystihús- stjóri í Hrísey hafa nýlega átt viðræður við Bjarna Jóhannes- son útgerðarfulltrúa kaupfélags ins um aukna miðlun milli þessara húsa. Miðlun hefur reyndar verið nokkur og vaxandi. Einkum hefur það þó verið á þann bóginn, að flutt hefur verið frá Dalvík til Hríseyjar m.a. í sumar vegna uppihaldsins hér og í þorskveiðibanninu í maí. Hinsvegar, með væntanlegri aukningu karfa- og grálúðu- veiða, er líklegt að hentugt þyki að eftirláta Dalvík a.m.k. karfa- vinnsluna, þar sem ekki er til í eyjunni tækjakostur fyrir þá vinnslu. Um þetta hafa engar ákvarð- anir verið teknar en hér eru samt fólgnir vissir möguleikar, sem e.t.v. verður líka auðveld- ara að nýta með tilkomu Hríseviarferiunnar nviu. Úr vinnslusal frystihússins. Tilkyrming um happdrœttisumboð á Dalvík Um áramótin verður sú breyting á, að umboð happdrætta vorra, sem verið hefur í höndum Jóhanns G. Sigurðssonar, ílyst nú í bókabúðina Sogn. Um leið og vér flytjum Jóhanni bestu þakkir fyrir ágætt samstarf á liðnum árum viljum vér nota tækifærið og færa Dalvíkingum og Svarfdælingum jóla- og nýárskveðjur með ósk um góð og vaxandi viðskipti á komandi árum. G/eðileg jól - farsœlt komandi ár. Happdrætti Háskóla íslands. Happdrætti Dvalarheimilis aldraðra sjómanna. Happdrætti Sambands ísl. berklasjúklinga. Arni Oskarsson frystihússtjóri, Aðalsteinn Gottskálksson fram- leiðslustjóri og Magnús Guðmundsson verkstjóri. I vinnslusalnum. Blaðamaður labbaði sér inn í salinn, þar sem konur voru niðursokknar í snyrtingu og pökkun ýsuflaka. Ein leit sem snöggvast upp úr bónusnum og kallaði! „Fyrir hvaða flokk ert þú hér, ljúfurinn? Þeir eru búnir að koma hingað í löngum röðum á undan þér.“ „Fyrir Sólskinsflokkinn auðvitað“ svaraði maðurinn í von um að einhver færi að hlæja, en enginn hló. Við næsta borð voru þær Kristín Ásgeirsdóttir og Lilja Hannesdóttir og unnu hröðum höndum. Aðspurð sagði Kristín að hún væri nú búin að vinna hér í fiski í 22 ár og þar áður fyrir vestan. Lilja sagðist bara vera byrjandi, búin að vinna í „aðeins" 5 ár. Þær létu mjög vel af vinnuaðstæðum eftir breytinguna. Það er miklu rýmra um mann og svo er svo mikill munur að vera laus við véladyninn úr Súlnasalnum. En hitastigið? Það er alveg eins og það á að vera, en reyndar var það líka vandræðalaust fyrir breytinguna. Við önnur borð tóku stúlk- urnar alveg undir þessi ummæli. Hildur Jóhannsdóttir er skoðunarmaður og hefur eftirlit með vinnugæðunum. Hún er líka trúnaðarmaður stúlknanna gagnvart fyrirtækinu. Hún sagði að nú ynnu þarna 25 konur og plássins vegna mætti Qölga þeim nú þegar. Einnig hún tók undir það álit kvenn- anna, að salurinn væri miklu meira aðlaðandi vinnustaðuren áður var. Það er bara ekki allt komið í lag ennþá, sagði hún, vantar t.d. aðalfæribandið og fleira. Vinnslutölur 1/1 - 30/9 1979. Hér eru að lokum nokkrar tölur um hráefnismagn og fram- leiðsluflokka fyrstu 9 mánuð yfirstandandi árs. Samanburð- ur við 1978 er þýðingarlítill vegna stoppsins í ágúst/sept. en þess skal þó getið að fyrri helmin ársins þ.e. jan-júní var magnaukning upp á 22%. í frystingu fóru 2,647,455 kg. í salt 2,193,133 kg. í skreið 572,753 kg. Samtals 5,413,341 kg. Til viðbótar er svo endur- seldur fiskur 329,996 kg. svo allt keypt hráefni nemur 5,743,337 kg-, Úr þeim fiski, sem í frystingu fór, fengust 1,136,378 kg. af söluvöru. Er það 17,8%minnk- un miðað við 9 fyrstu mánuði ársins 1978. Þarna kemuruppi- haldið í ág-sept. til skjalanna. Nýting í frystingu er góð. Þannig er nýting í þorski einum sér 43,9% sem er mjög gott. Nýr frystihússtjóri eftir ára- mótin. Komið hefur fram í fréttum frá kaupfélaginu, að Árni Ósk- arsson hefði nú ákveðið að láta af störfum sem frystihússtjóri um áramótin. Hann hefurgegnt starfinu við almennar vinsældir síðastliðin 5 ár, en alls hefur hann unnið þar í 18 ár. Við starfi hans tekur þá Aðalsteinn Gottskálksson, sem undanfarið hefur verið fram- leiðslustjóri í húsinu. Hann er Reykvíkingur 27 ára gamall, fisktæknir að mennt. Blaðið þakkar þeim félögum upplýsingarnar og óskar þeim heilla í störfum. Dalvíkingar undir smásjánni Snemma í þessum mánuði voru hér á ferð nemendur úr M.A. og hafði Norðurslóð af því spurnir að þeir hyggðust gera einskon- ar úttekt á bæjarfélaginu. Við nánari skoðun kom í ljós að hér voru á ferð nemendur úr 6. bekk, félagsfræðideild, og að könnun þessi er liður í námi þeirra í félagsfræði. Kennari þeirra, Sigríður Sigurðardóttir, stjórnar verkinu og sneri bl.m. sér til hennar í leit að nánari upplýsingum um tilgang og til- efni. Sigríður sagði að í 6. bekk væru gjarnan tekin stærri verk- efni og væri megintilgangur þeirra að þjálfa nemendur í ýmsum vinnubrögðum og að- ferðum varðandi kannanir eða rannsóknir á ákveðnu efni. í vetur yrði þessi önn notuð til þess að gera úttekt á litlu sam- félagi og spáð í hvað réði búsetu manna á svona stað. Dalvík varð fyrir valinu vegna nálægð- ar við Akureyri. Nemendur hafa reynt að kynna sér staðinn og sögu hans í skólanum með lestri blaða og bóka s.s. Sögu Dalvíkur, Norð- urslóðar, kjördæmisblaðanna og fl. Einnig hafa þau rakið garnirnar úr nemendum sem ættaðir eru héðan. Eftir þennan undirbúning lá beinast við að fara á vettvang. Nemendur skiptu sér í hópa sem hver vann að sínu verkefni. Þeir kynntu sér m.a. fyrirtæki staðarins og töluðu við verkafólk og stjórn- endur þeirra. Einnig var opin- ber þjónusta skoðuð og farið í heimsókn á heimili aldraðra, Krílakot og í skólann. Félagslíf bæjarbúa var svo og rannsakað og í því skyni rætt við formenn hinna ýmsu félaga sem hér starfa. Að sögn Sigríðar var þetta aðeins fyrsta ferð þeirra hingað, en hún taldi víst að þau kæmu aftur þegar þau sæu betur hvað þau eru komin nú þegar. Ekki hefði heldur náðst í alla þá sem þau hefðu viljað tala við. Ann- ars var hópurinn mjög ánægður með viðtökur bæjarbúa og alla fyrirgreiðslu á staðnum. Ef þeim gengur verkið vel munu þau gefa út skýrslu um verkið í janúar og megum við þá vænta þess að nokkur eintök verði send hingað ,til Dalvíkur og getur vissulega orðið spennandi að sjá hvað út úr þessu kemur. 6 - NORÐURSLÓÐ

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.