Norðurslóð - 18.02.1986, Side 1
10. árgangur Þriðjudagur 18. febrúar 1986 2. tölublað
BöggvisstaðaQall
Paradís skíðamanna
Bikarmót Skíðasambands fslands um síðustu helgi. Sjá opnu.
Biðröð við nýju skíðalyftuna. Síðustu helgina í janúar var nýja skíðalyftan tekin í notkun. Myndin er tekin við
það tækifæri.
Mörg er búmarksraunin
Fréttir af mjólkurmálum
„Þat er hús mest“
Stórhýsi á Holtstúni.
Framleiðslutakmarkanir á mjólk
eru án efa heitasta umræðuefni í
sveitum landsins um þessar
mundir og reyndar líka meðal
manna, sem ekki eiga beinna
hagsmuna að gæta í landbúnað-
inum.
Svarfaðardalur er dæmigerð
mjólkurframleiðslusveit í þeim
skilningi, að bændur hafa
mikinn meirihluta tekna sinna
af mjólkursölu. En hvað fram-
leiða þeir þá mikið allir saman,
og hvcr og einn að meðaltali og
hverjir framleiða mest? Þessu
getum við svarað eftir samtal
við Vernharð Sveinsson hjá
Mjólkursamlaginu á Akureyri.
Framleiðslan 1985
Á almanaksárinu 1985 sendi
Svarfdæladeild Mjólkursam-
lagsins 3.485.117 lítra til
Samlagsins, en það er 0,82%
aukning frá 1984. Meðalfitan
var 3,941. Innleggjendur eru 44
og með deilingu kemur út, að
meðalinnlegg er rúmlega
79.000 lítrar.
Þess skal getið, að heildar-
mjólkurmagn, sem Samlaginu
barst var 22.43Í.922 lítrar, svo
hlutdeild Svarfdæla er rösk-
lega 15,5% af innlegginu.
Eftirtaldir innleggjendur
höfðu yfir 100.000 lítra fram-
leiðslu. Þetta flokkurinn: er meistara-
Hofsárkot 149.772
Sakka, félagsbú 149.682
Hóll fram 138.736
Jarðbrú 135.611
Steindyr 124.854
Ytra-Hvarf 122.372
Hofsá 117.176
Þverá, félagsbú 114.069
Hrafnsstaðir 113.230
Vellir 108.607
Dæli 104.689
Tjörn 102.500
Þetta eru 12 bæir, sem hafa
samanlagt 42,5% af framleiðslu
deildarinnar.
Framleiðslurétturinn
1985-’86
Þetta var um hið liðna, en nú er
flestum ofar í huga, hver réttur
þeirra til mjólkurframleiðslu
verður á þessu verðlagsári
fullvirðisréttur.
Nú er það vitað, að skerðing
frá framleiðslu síðasta verð-
lagsárs á Eyjafjarðarsvæði
verður ca. 1,1 milljón lítra -
minna en 5%.
Það mætti því ætla að ef þessi
skerðing deildist hlutfallslega á
framleiðsluna á svæðinu fengi
Svarfdæladeild 15,5% hennar
eða svo sem . 160-170 þús. lítra
skerðingu.
Nú hefur blaðamaður fengið
að sjá skrá hjá Búnaðarsam-
bandinu þar sem m.a. skerð-
ingin er reiknuð út hjá ein-
stökum framleiðendum. Þar
kemur fram heildarskerðing í
Svarfdæladeild upp á ca. 465
þúsund lítra. Þá ber þess að
gæta að eftir er að útdeila 5
prósentunum, sem Búnaðar-
sambandið hefur til ráð-
stöfunar. Ef við segjum að það
jafngildi 1 milljón mjólkur-
lítra og þeim væri skipt út
hlutfallslega við mjólkurmagn
milli deildanna, þá fengi Svarf-
dæladeild 155 þús. lítra út úr því
magni. Þá væri skerðingin í
deildinni samt yfir 300 þúsund
lítrar þ.e.a.s. ca. tvöföld skerð-
ing á við heildina.
Hverju sætir nú þetta? Jú,
skýringin er einfaldlega sú, að
"Svarfdælir hafa framleitt þetta
miklu nær búmarki, allir teknir
í Gylfaginning í Snorra-Eddu
segir svo um hýbýli Asa-Þórs:
„Hann á þar ríki, er Þrúðvangar
heita, en höll hans heitir Bil-
skirnir. í þeim sal eru 5 hundruð
gólfa ok 4 tugir. Þat er hús mest,
svá at menn viti.“
Ása-Þór er löngu fallinn og
höll hans Bilskirnir horfin af
yfirborði jarðar. Aftur á móti er
að rísa í landi Ytra-Holts hús
eitt, sem hlýtur að vera hið
stærsta, sem um er vitað a.m.k.
hér á Norðurlandi. Hér er að
sjálfsögðu átt við refaskála
Þorsteins Aðalsteinssonar, sem
nú þessa góðviðrisdagana er
verið að þekja rauðu þakjárni
með glærum plastplötum á
milli, svo byggingin verður
röndótt á að sjá.
Þorsteinn loðdýrabóndi er
inntur fregna af þessu mikla
fyrirtæki. Gefur hann ljúfmann-
lega upplýsingar í þeim mæli,
sem honum finnst hæfilegt, en
heldur eftir því, sem honum
finnst engan varða um nema
hann sjálfan. Þetta finnst okkur
blaðamönnum ósköp eðlilegt.
Hugmyndin er í stuttu máli
sú, að flytja fram í skálann seint
í vetur eða snemma í vor frá
Böggvisstöðum blárefalæður,
komnar undir got. Það þykir
hæfilegt að flytja dýrin á 45. degi
meðgöngutímans, sem allur er
52 dagar. Þarna á að verða pláss
fyrir 800 læður plús tilheyrandi
karldýr plús alla hvolpana,
vonandi 6-7 á læðu. Þá geta
snjallir reikningsmenn fundiðút
(með hjálp tölvu) hve dýrin
verða mörg alls.
Þorsteinn er bjartsýnn ungur
maður og treystir á, að allt gangi
í haginn. Hvaðan koma pening-
arnir í fjárfestingu sem þessa, 30-
40 milljónir eða jafnvel meir,
þegar allt er talið? Þarna verður
Þorsteinn leyndardómsfullur í
svörum, en nefnir, að við eigum
margar peningastofnanir á Is-
landi, bæði nær og fjær, og að í
fáu sé nú álitlegra að fjárfesta en
loðdýrarækt í þessu landi.
Og hér kemur önnur spurning
sem blaðamanni liggur á hjarta
af sérstökum ástæðum. Verður
lögð hitaveita fram í hinn nýja
Bilskirni? Þarna er Þorsteinn
mjög bjartsýnn. Nefnir að með
nýrri tækni sé kostnaður við
flutning á heitu vatni orðinn að
saman, heldur en meðaltals-
bíndinn í Eyjafirði.
Það eina, sem gæti breytt
þessari niðurstöðu, væri það, að
menn hér fengju meira en
þennan reiknaða skerð af 5% -
unum. Þaðerþóekkilíklegt. Til
fróðleiks skal þess getið, að
fram kemur á nefndri skrá, að
skerðingin frá framleiðslu 1984-
85 hjá svarfdælskum bændum
er afskaplega misjöfn. Hjá 7
manns er hún engin en yfir 15%
hjá 15 mönnum allt upp í 30%
hjá einum. (Og hér má ekki
gleyma 5% - unum, sem
auðvitað lækka meðaltalsskerð-
inguna sem þeim nemur.)
litlu broti af því, sem var fyrir
fáum árum. Já, hann á alveg
von á, að það mál geti leyst
átakalítið. (hér skal því skotið
inn í, að fjarlægðin milli Ytra-
Holts og Húsabakka í Svarf-
aðardal er 3 km og á þeirri leið
eru ein 5-6 heimili og ein kirkja).
Vegfarendur munu hafa tekið
eftir því meðan jörð var enn auð,
að búið var að jafna land og
útbúa miklu stærri grunn en
þann, sem Bilskirnir hinn nýi
stendur á og er hann þó nærri
hálfur hektari.
Þorsteinn og blárefurinn.
Þorsteinn játar að þetta sé
rétt. Þarna gætu hugsanlega
risið 2-3 jafnstórir skálar aðrir,
segir hann, ef svo vill verkast í
framtíðinni. Það er alltaf hægt
að láta sig dreyma, er nokkuð
ljótt við það? Nei, nei, alls ekki.
Á þá kannski að flytja frá
Böggvisstöðum? Ekki í bráð, en
varla verð ég nú þar að eilífu.
Ætli tíminn leysi ekki það mál,
ef hann má hafa sína hentisemi
og þarf ekki að flýta sér of
mikið. Framtíðarmúsik er nú
einu sinni músík framtíðar-
innar, ekki satt?
Með þessum leyndardóms-
fullu orðum látum við lokið
samtali við þennan hugumstóra
brautryðjanda loðdýraræktar,
sem heitinn ereftirÁsa-Þórmeð
steinvölu aftan í, Þór-Steinn.
Ljúkum svo spjallinu með
tilvitnun í Gylfaginningu, þar
sem Gangleri fregnar af Þór:
„Engi er svá fróðr at telja
kunni öll stórvirki hans. En
segja kann ek smá mörg tíðendi
frá honum, at dveljask mundu
stundirnar, áðr en sagt er allt,
þat er ek veit.“
Um allt þetta mætti segja
margt og margt og fylla heila
Norðurslóð. En til þess er
hvorki pláss né vilji. Það er ljóst,
að hér verður margur maður
fyrir alvarlegum skell en skellur-
inn er reyndar mjög svo mis-
þungur.
Að lokum skal það upplýst,
að Búnaðarsambandið er að
undirbúa útsendingu á Fregnum
og fróðleik, þar sem auglýst
verður eftir umsóknum í 5% - in
á meðsent eyðublað. Frestur til
10. mars. Þá má búast við að
margur maður fari á stúfana og
skrifi bréf.