Norðurslóð - 18.02.1986, Side 5
á Dalvík
lýsingu á keppninni svo sem,
„keppandi sýnir mikið öryggi“,
,,hér fer mikil valkyrja" og ,,hún
glímir faglega við hliðin“ sagði
hann um keppenda frá Glímu-
félaginu. Einn keppandi var frá
Dalvík, Ingigerður Júlíusdóttir.
í fyrri umferð hlekktist henni á og
var þar af leiðandi með lélegan
tíma. Spenna var þess vegna
minni varðandi seinni umferð-
ina hjá henni. Inga fór brautina
mjög vel og náði þriðja besta
brautartímanum, en það nægði
ekki til verðlauna vegna fyrri
umferðarinnar. Inga varð í öðru
sæti daginn áður.
Tilkynnt varð strax eftirstór-
svigið að skoðun svigbrautar
hjá körlum stæði yfir. Það
merkti, að keppendur höfðu um
það bil klukkustund til að
kynna sér brautina. Að þessu
loknu komu undanfarar og
síðan keppnin. Greinilegspenna
var í lofti. Okkar maður Daníel
Hilmarsson var með bestan
tíma úr fyrri umferð. Hann var
með rásnúmer 5, svo helstu
keppendur hans voru ræstir á
undan honum. Guðmundur
Jóhannsson frá ísafirði var
þriðji af stað og fór af miklu
öryggi niður og náði góðum
tíma. Næstur var Haukur Bjarna-
son KR. sem náði aðeins betri
tíma. Þá var komið að Danna
og spennan orðin mikil. Starfs-
fólk í stjórnstöð hafði við orð að
erfiðast væri að sinna störfum
þegar mikið lægi við hjá okkar
fólki.
En í stjórnstöð fór allt fum-
laust fram og Danni lagði af
stað. Það fór ekki framhjá
neinum að snillingur fór nú
brautina. Satt best að segja er
Danni í algjörum sérflokki
íslenskra skíðamanna. Yfirburðir
hans eru algjörir. Heimamenn
horfðu stoltir á sinn mann. Tími
Danna var lang besti til þessa og
sigurinn virtist í höfn. Næsti
keppandi var ræstur og keppnin
hélt áfram. Blaðamaður veitir
því athygli að ýmsir eru farnir
að stinga saman nefjum og á
viðkomandi kemur mikill alvöru-
svipur. Það er farið að kvissast
að Danni hafi sleppt hliði og
verði þar með af sigrinum.
Eftir smá stund kom stað-
festing á þessum orðrómi og
mátti sjá á mönnum að þeim var
brugðið. Kappinn sjálfur var
manna hressastur og sagði sem
svo, að þegar reynt er að ná sem
mestum hraða leggi menn mikið
undir og þá heppnasl kanski
ekki alltaf allt.
Jón Halldórsson t.v. og Jón Ásgeir Jónsson t.h.
Mjög góð aðstaða
segir eftirlitsmaður Skíðasambands íslands.
Eftirlitsmaður frá Skíðasam-
bandi íslands með mótinu var
Jón Ásgeir Jónsson frá Reykja-
vík. Við hittum hann að máli og
spurðum hann um mótið.
Jón sagði að um helgina
hefðu verið tvö mót hér á
Dalvík. Annað var seinni hluti
svokallaðs Hi-Ci móts, sem
fresta varð í Bláfjöllum um
síðustu helgi. Hitt var svo
púnktamót Skíðasambandsins
sem ákveðið var að halda hér
um þessa helgi. Mótin gengu
mjög vel, enda taldi hann
aðstöðu mjög góða hér á
Dalvík. Framkvæmd mótsins
hefði tekist vel og stjórn þess
verið í góðum höndum.
Keppendur eru ánægðir hér
og sagði hann vekja athygli
aðkomumanna hve mikil upp-
bygging hefði verið hér í fjallinu.
Miðað við stærð bæjarfélagsins
væri óvenju vel að þessari upp-
byggingu staðið.
„Að mínu mati er hér á Dal-
vík eitthvert skemmtilegasta
skíðasvæði landsins. Fjallið
hérna býður upp á óvenju fjöl-
breyttar skíðabrekkur hvort
heldur er fyrir almenning eða
keppnisfólk“ sagði Jón Asgeir
að lokum.
3ð.
>rn
frá
YÍð
sar
egt
ndi
við
Aukin aðsókn
Svæðisstjórinn tekinn tali.
Skíðafélag Dalvíkur var stofnað
1972. Þá var sett upp togbraut
sem leyst var af hólmi nú í
janúar þegar nýja lyftan var
tekin í notkun. Á vegum félags-
ins hefur verið og er unnið
mikið starf. Sigurjón Kristjáns-
son er svæðisstjóri félagsins.
Starf svæðisstjóra er að hans
sögn fólgið í því að sjá um alla
aðdrætti og viðhald mannvirkja
t.d. lyftanna. Þá sér Sigurjón
um miðasölu í lyfturnar. Við
spurðum hann um það hvort
aðsókn hafi aukist eftir að nýja
lyftan var tekin í notkun.
- Jú hún hefur aukist vildi
Sigurjón meina. Hann sagði
það reynslu liðinna ára, að
þegar að ný mannvirki eru tekin
í notkun ykist aðsókn á svæðið.
Nýja lyftan er alveg ótrúleg
umbylting, svo líkur eru á því að
aukningin núna verði viðvar-
andi. Byrjendur eru miklu betur
settir núna en á meðan tog-
brautin varnotuð. Smáirkrakk-
ar geta bjargað sér í þessari
lyftu, sem gekk ekki með þá
gömlu. Skíðasvæðiðstækkarog
verður fjölbreyttara.
Sigurjón sagði að það hefði
komið í ljós á mótinu um helg-
ina að fólk gat leikið sér á
skíðum samhliða mótinu. Það
var ekki hægt áður. Það virtist
ekki vera nóg pláss til þess. Það
má merkja aukinn áhuga að-
komufólks á aðstæðum hér. Nú
heyrist af fólki sem hefur boðað
komu sína um páskana, til að
eyða tímanum á skíðum hér.
Aðspurður sagði Sigurjón að
þegar væri farið að ræða og
huga að næsta áfanga í fram-
kvæmdum. Þar ræða menn
mest um að byggja skála. I
grófum dráttum er framkvæmda-
annáll Skíðafélagsins eitthvað í
þessum dúr. Togbraut sett upp
1972. Efri lyftan sett upp 1977.
Troðari keyptur 1981 og þessi
nýja lyfta sett upp 1985-86.
Rúmlega 100 manns
á námskeiðum
Skíðaþjálfarinn okkar Björgvin
Hjörleifsson lagði sjö af tólf
brautum á mótunum hér um
helgina. Björgvin var spurður
um þær og síðan um þjálfara-
störf hans. Fyrst var hann
spurður hvort brautirnar hafi
verið erfiðar.
Sumar en aðrar ekki. Þetta er
eins og gengur. Annars háði
snjóleysi svolítið. Svigbrautin
var í styttra lagi. Stórsvigsbraut-
in kom betur út. Seinasta
daginn vorum við með brautina
sunnar í fjallinu en áður. Ég held
að þar sé eitthvert besta brautar-
stæði á landinu.
Þegar Björgvin var spurður
um námskeiðin á vegum Skíða-
félagsins sagði hann að ígrófum
dráttum skiptust þau í tvennt.
Kennslu fyrir yngstu börnin, og
svo þjálfun fyrir þau eldri, sem
þá miðaði að keppni. Allra
yngstu börnin eru á sínu nám-
skeiði í kirkjubrekkunni svo-
kölluðu (það er neðan við
kirkjuna) þar eru um 50 börn í
tveimur hópum tvisvar í viku.
Upp í fjalli er síðan kennsla fyrir
börn upp að 12 ára aldri.
Þjálfun sem miðar að keppni er
síðan fyrir eldri en 12 ára.
Þrekþjálfun byrjaði strax í
haust. Síðan 2. janúar hafa
síðan verið skipulagðar æfingar
fjórum sinnum í viku. Um
helgar eru keppnir t.d. fara
nokkrir á aldrinum 13-14 ára á
mót til Reykjavíkur um næstu
helgi. Danni þjálfar á vegum
landsliðsins og fer þar eftir stífu
prófgrammi. Inga Júl. er í
undirbúningslandsliði og þjálfar
á vegum þess. Þau tvö hafa náð
mjög góðum árangri og eru í
stöðugri framför.
Það kom fram að Björgvin
þjálfar í Ólafsfirði tvo daga í
viku og helgarnar fara í kringum
námskeið og keppnir svo frítími
er ekki mikill.
Björgvin sagði að mótin um
helgina hefðu gengið mjög vel.
Aðstaðan væri orðin mjög góð.
en það væri ekki síður því að
þakka hve krakkarnir væru
dugleg að vinna við framkvæmd
svona móts. „Þaðeróneitanlega
gaman að taka þátt í þessu þegar
krakkarnir eru jafn dugleg og
raun ber vitni hvort heldur það
er við æfingar eða framkvæmd
móts eins og núna um helgina,“
sagði Björgvin að lokum.
NORÐURSLÓÐ - 5