Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 23

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda - 01.01.1988, Blaðsíða 23
HVERT ER HLUTVERK ENDURSKOÐENDA? INNGANGUR Eftirfarandi grein er byggð á bæklingi frá sænska endurskoðendafélaginu, FAR, sem nefnist „Hvad gör en authoriserad revisor?" Hann var gefinn út í janúar 1988. Þýðingu annaðist Ómar Kjartansson, lögg. endur- skoðandi. Greinin birtist hér staðfærð og nokkuð stytt. Ætlan Félags löggiltra endurskoðenda, FLE, með grein þessari er að auka þekkingu lesandans um endur- skoðun og verksvið löggilts endurskoðanda. Hér verður fyrst og fremst fjallað um endurskoðun í hlutafélögum. Flest af því sem sagt verður, á einnig við um önnur fé- lagsform og önnur rekstrarform. HVERN MÁ TILNEFNA SEM ENDURSKOÐANDA? Aðalfundur eða stjórn félags velur endurskoðanda. Stundum eru endurskoðunarskrifstofur tilnefndar sem endurskoðandi. í slíkum tilfellum verður að tilnefna einn af endurskoðendum skrifstofunnar sem ábyrgan aðila varðandi endurskoðunina. Öll hlutafélög með hlutafé meira en 300.000 krónur verða að hafa hið minnsta einn löggiltan endurskoðanda í þjónustu sinni. HVERJIR GETA ÖÐLAST LÖGGILDINGU? AF HVERJU AÐ ENDURSKOÐA? í hlutafélögum takmarkast ábyrgð eigenda á skuld- bindingum félags við framlagt hlutafé. Þessi takmörkun á ábyrgð eigenda krefst ákveðinna reglna um gerð árs- reikninga slíkra félaga. Eigendur, lánveitendur, birgjar, viðskiptamenn, starfsmenn og samfélagið í heild verða að geta treyst ársreikningum þessara félaga. Þess vegna er að finna í lögum ákvæði um endurskoðun á ársreikn- ingum hlutafélaga. Endurskoðandinn er ýmist kjörinn af aðalfundi viðkomandi hlutafélags eða ráðinn af stjórn þess. Þrátt fyrir þetta ber honum í starfi sínu að taka tillit til hagsmuna allra er ársreikningurinn kann að varða. Fjármálaráðherra veitir endurskoðendum löggildingu að undangengnum verklegum prófum. Til að öðlast löggildingu er krafist brottfararprófs frá viðskiptadeild Háskóla íslands af endurskoðunarkjörsviði og að við- komandi vinni alhliða endurskoðunarstörf í a.m.k. 3 ár undir handleiðslu löggilts endurskoðanda. Samkvæmt lögum er þeim einum heimilt að nota orð- ið endurskoðandi í starfsheiti sínu sem til þess hafa hlotið löggildingu ráðherra. Ráðherra getur veitt löggiltum endurskoðanda við- vörun eða svipt hann löggildingu, ef hann gerist brot- legur í starfi, þ.e. víkur frá þeim meginreglum, sem í heiðri skulu hafðar innan stéttarinnar. HVER GETUR ORÐIÐ FÉLAGI í FLE? HVERT ER HLUTVERK ENDURSKOÐANDANS? Endurskoðandanum ber að kanna ársreikning við- komandi félaps og segja álit sitt á honum í endurskoð- unarskýrslu. I áliti endurskoðandans kemur fram hvort ársreikningurinn sé í samræmi við lög, reglur og góða reikningsskilavenju. Hið síðast nefnda þýðir að við gerð ársreikningsins hafi verið beitt aðferðum, sem tíðkaðar eru og viðurkenndar af samtökum endurskoð- enda. Endurskoðandinn ákveður sjálfur umfang og að- ferðir er hann beitir við rannsókn sína. Fyrirtækið, sem endurskoðunin beinist að, er skylt að veita allar upplýs- ingar, sem endurskoðandinn kann að óska eftir. Að endurskoðun lokinni áritar endurskoðandinn ársreikn- ing félagsins. Allir félagsmenn FLE eru löggiltir endurskoðendur. Þeim er skylt að fylgja leiðbeinandi reglum og siðaregl- um FLE. Þessar reglur ganga lengra en ákvæði laga um hlutafélög og lög um löggilta endurskoðendur. Löggiltir endurskoðendur á íslandi eru að verða tvö hundruð. Flestir þeirra eru meðlimir í FLE. U.þ.b. helmingur þessa hóps er yngri en 40 ára. Tiltölulega fáar konur eru í hópi endurskoðenda, en hlutur þeirra fer vaxandi. ENDURSKOÐUN BYGGIR Á TRÚNAÐI Til að endurskoðandi geti rækt hlutverk sitt, verður hann að njóta óskoraðs trausts. Þessi trúnaður felst í því að endurskoðandinn sé óháður, hæfni hans óum- 23

x

Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Álit: tímarit löggiltra endurskoðenda
https://timarit.is/publication/1258

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.