Ráðunautafundur - 14.02.1978, Blaðsíða 9
303
T = lengd langleggs + köggla í lærinu
F = lengd klofs úr krika og upp á hækilbrún
A = breidd langa bakvöðvans
B = dýpt langa bakvöðvans
C = fita ofan á bakvöðva
D = fita ofan á háþorni
J = yfirborðsfita efst á síðu
X = þykkt á miðri síðu að frádreginni yfirborðs-
= fitu
Y = fitulag utan á miðri síðu
S = hæð háþorns mælt frá mænugöngum.
Einkunnir voru gefnar fyrir holdfyllingu í lærum,
á mölum og baki og var hæsta einkunnin 5 og lægsta 1.
Sýnishorn voru tekin af netju, nýrmör og lifur til efna-
greiningar. Tveir skrokkar voru teknir til rannsóknar á
efnasamsetningu og kjötgæðum úr hverjum flokkanna A1, B og
F og 6 úr hverjum flokkanna C, D og E, þ.e.a.s. tveir úr
hverjum undirflokkanna 1, 2 og 3.
Niðurstöður
Meðalþungi lambanna á fæti er sýndur fyrir einstaka
flokka og undirflokka fyrir allar vigtanir í 1. töflu. Á
það skal bent, að 3 lömb féllu úr tilrauninni, eitt í A-
flokki, sem veiktist snemma á tilraunaskeiðinu og var
tekið úr flokknum, eitt lamb úr B-flokki drapst úr bráða-
pest, og eitt lamb í D-flokki slapp út úr næpuhólfinu og
fannst ekki aftur fyrr en tilraun var að verða lokið.
Meðaltöl breyttust tiltölulega lítið við þessa breytingu
í flokkunum, og hefur ekki verið leiðrétt fyrir þeim.
Þegar skipt var í flokkana voru lömbin að meðaltali
rúmlega 34,5 kg í öllum flokkum, þau þyngdust á fæti £
öllum flokkumvnema B-flokki á tilraunaskeiðinu.
í B-flokknum léttust lömbin um 1,24 kg að meðaltali,
en í hinum flokkunum þyngdust þau svipað á fæti, mest 5,94