Ráðunautafundur - 14.02.1978, Blaðsíða 106
400
Nokkur lifrarsýni voru send til Skotlands til rannsókna
£ von um að vísbending fengist um hvaða efni væri helst ástæða
til að athuga, en niðurstöður hafa ekki borist ennþá.
Áður hefur Þorsteinn Þorsteinsson (1977) gert grein fyrir
niðurstöðum úr blóðrannsóknum 1975 og 1976.
Bötun lamba á káli.
Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar hér á landi með bötun
sláturlamba á káli (Halldór Pálsson og Pétur Gunnarsson 1961,
ðlafur G. Vagnsson 1968 og Sigurjón Jónsson Bláfeld 1976).
Aðallega hefur verið um rannsóknir á fallþunga að ræða, en þó hafa
aðrir þættir einnig verið rannsakaðir s.s. líffæraþungi, blóð-
sýni o.fl. (Sigurjón Jónsson Bláfeld 1976) en niðurstöðurnar
hafa því miður ekki allar verið birtar.
Áður hefur verið skýrt frá bráðabirgðaniðurstöðum úr kálbeitar-
tiiraunum á Hesti 1975 og 1976 (Halldór Pálsson 1977). Þessum
rannsóknum var haldið áfram sumarið 1977 og svipuð tilraun auk
þess gerð í Kálfholti. Auk hefðbundinna afurðamælinga voru
ýmis líffæri vegin og sýni tekin. Því miður liggja efnagreininga-
niðurstöður ekki fyrir, en hér verður stuttlega gerð grein fyrir
bráðabirgðaniðurstöðum sem fyrir hendi eru.
Á Hesti voru 16 lömb sem gengið höfðu á óframræstri mýri og
16 lömb sem gengið höfðu á hálfframræstri mýri sett á 1,1 ha
káls (28,4 hkg/ha) 8 . ágúst. Landið var siðan aukið um 1,5 ha
káls (30,9 hkg/ha) 29. ágúst. Reyndar hafði kálræktin mistekist
þannig að meiri hluti uppskerunnar varð arfi á báðum stykkjunum.
Þrjátíu og tvö lömb gengu áfram undir mæðrum sínum á mýrinni.
Öllum lömbunum var slátrað 23. sept. og eru helstu niður-
stöður sýndar í 5. - 7. töflu. Eins og árið 1976 voru lömbin
á mýrinni og kálinu svo til jafn þung á fæti en vegna arfans var
fallþungaaukningin aðeins 1,3 kg (5. tafla) en var árið 1976 um
3,6 kg (Halldór Pálsson 1977) þ.e. 2,3 kg hærri. Þetta veldur
því einnig að gæðamat er mjög svipað milli mýrar- og kállambanna
(6. tafla). Enginn munur var á þunga gæra og netju mýrar- og
káliambanna, en nýrnamör, nýru og lifur voru þyngri hjá kálhópnum.
(7. tafla).
1