Fréttablaðið - 13.01.2018, Side 55

Fréttablaðið - 13.01.2018, Side 55
Hveragerðisbær leitar að öflugum starfsmönnum Í boði eru áhugaverð störf í barnvænu og skemmtilegu um- hverfi. Hveragerði er ört vaxandi sveitarfélag með um 2.600 íbúa. Samgöngur við bæjarfélagið eru framúrskarandi en einungis er um 30 mínútna akstur til Reykjavíkur. Öll þjón- usta er eins og best verður á kosið, leikskólar, grunnskóli, tónlistarskóli og framhaldsskóli innan seilingar. Íþrótta- og menningarlíf er í miklum blóma og umhverfi bæjarins gefur kost á fjölbreyttri útivist í fallegu umhverfi. Forstöðumaður bókasafns Leitað er eftir kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi til að leiða öflugt og líflegt starf bókasafnsins í Hveragerði. Um 100% stöðu er að ræða. Starfið felur í sér allt sem viðkemur starfsemi bókasafns svo sem rekstur, manna- forráð, gerð fjárhagsáætlana, innkaup, grisjun, stjórnun, skipulag safnkennslu, umsýslu og fleira. Forstöðumaður kemur fram fyrir hönd safnsins og sér um kynn- ingarmál þess, skipuleggur þjónustu safnsins og leiðir faglega starfsemi þess. Menntun, reynsla og hæfniskröfur: • Háskólapróf í bókasafns- og upplýsingafræði er skilyrði • Starfsreynsla á almenningsbókasafni og/eða skóla æskileg • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum og kunnátta á bókasafns- kerfið Gegni, er kostur • Góð þekking á menningarstarfi • Sjálfstæði í vinnubrögðum, frumkvæði og skipulagshæfni • Góð tölvukunnátta • Leiðtogahæfileikar og góð færni í mannlegum samskiptum • Hæfni til að miðla upplýsingum í töluðu og rituðu máli Nánari upplýsingar um starfið gefur Hlíf S. Arndal, núverandi forstöðumaður bókasafns í síma 483-4531 eða í tölvupósti boksafn@hveragerdi.is og Jóhanna M. Hjartardóttir, menningar og frístundafulltrúi í síma 483-4000, netfang jmh@ hveragerdi.is Starfsmaður í frístundaskóla og félagsmiðstöð Óskað er eftir drífandi og hugmyndaríkum einstaklingi í 100% stöðu við frístundaskóla bæjarins og félagsmiðstöðina Skjálftaskjól. Í starfinu felst þátttaka í skipulagningu og framkvæmd starfs frístundaskóla Hveragerðisbæjar. Börn í 1.- 4. bekk dvelja í frístundaskóla og taka þar þátt í skipulögðum frístund- um, frjálsum leik o.fl. Ennfremur mun starfsmaðurinn taka þátt í skipulagningu og framkvæmd starfs félagsmiðstöðvarinnar Skjálftaskjóls. Hana sækja börn í 5.-10. bekk eftir skóla, tvo daga í viku. Menntun, reynsla og hæfniskröfur: • Háskólapróf á sviði tómstunda- og félagsmálafræði eða sambærileg menntun er æskileg. • Reynsla af starfi með börnum og unglingum er skilyrði • Samviskusemi, vönduð og skipulögð vinnubrögð, ásamt framúrskarandi samskiptahæfni • Hreint sakavottorð í samræmi við lög og reglur Hveragerðisbæjar Nánari upplýsingar um starfið gefur Elín Ester Magnúsdóttir, forstöðumaður frístundaskóla og félagsmiðstöðvar, í síma 694-7614 eða í tölvupósti eline@hveragerdi.is. Vélamaður/verkamaður í áhaldahúsi Óskað er eftir áhugasömum, öflugum og úrræðagóðum starfsmanni í 100% stöðu við áhaldahús Hveragerðisbæjar. Í starfinu felast öll almenn störf við umhirðu og viðhald á stofnunum og opnum svæðum Hveragerðisbæjar. Menntun, reynsla og hæfniskröfur: • Vinnuvélaréttindi eru mjög æskileg • Sjálfstæði í vinnubrögðum • Samviskusemi, vönduð og skipulögð vinnubrögð • Rík þjónustulund og mikil færni í mannlegum samskiptum er nauðsyn Nánari upplýsingar veitir Höskuldur Þorbjarnarson umhverfisfulltrúi, í síma 660-3908 eða í tölvupósti hoskuldur@hveragerdi.is. Matreiðslumaður/matráður á leikskóla Óskað er eftir jákvæðum, drífandi og frumlegum einstaklingi í 100% starf matreiðslumanns við Leik- skólann Undraland. Leikskólinn flutti í nýtt glæsilegt húsnæði í október 2017. En leikskólinn mun, fullnýttur, verða 6 deilda. Glæsilegt eldhús er í hinum nýja leikskóla en fyrir- hugað er að þar verði eldað fyrir báða leikskóla bæjarins en stefnt er á að það fyrirkomulag hefjist á vormánuðum 2018. Unnið er eftir ráðleggingum og markmiðum Lýðheilsustöðvar hvað varðar hollustu og næringargildi matvæla. Starfið felur í sér allt sem viðkemur rekstri mötuneytis af þessari stærðargráðu. Mótun og upp- byggingu hollra matarvenja, matseld, skipulagningu matseðla, innkaup og mannaforráð. Menntun, reynsla og hæfniskröfur: • Menntun á sviði matreiðslu og/eða reynsla af matreiðslu í stóreldhúsi • Góð þekking á næringarfræði og rekstri mötuneyta • Skipulagshæfni, nákvæmni og sjálfstæð vinnubrögð • Lipurð og mikil færni í samskiptum er skilyrði Nánari upplýsingar gefur leikskólastjóri Anna Erla Valdimarsdóttir, sími: 483-4234 eða í tölvupósti undraland@hveragerdi.is Leikskólakennarar Leitað er að metnaðarfullum, skapandi og jákvæðum einstaklingum með góða hæfni í mannlegum samskiptum til starfa við Leikskólann Óskaland. Viðkomandi þurfa að vera tilbúnir til að taka þátt í uppeldi og menntun barna í nánu samstarfi við stjórnendur og hafa góða íslenskukunnáttu. Leikskólinn er 4ra deilda skóli fyrir börn á aldrinum 12 mánaða til 5 ára. Á honum er starfað í anda Reggio Emilia. Menntun, reynsla og hæfniskröfur: • Leikskólakennaramenntun • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður • Hreint sakavottorð Fáist ekki menntaðir leikskólakennarar eða fólk með aðra uppeldismenntun og eða reynslu kemur vel til greina að ráða leiðbeinendur tímabundið í lausar stöður! Vakin er athygli á því að starfið hentar jafnt konum sem körlum. Nánari upplýsingar veitir Gunnvör Kolbeinsdóttir, leikskólastjóri í síma 4834139 eða á netfangið: oskaland@hveragerdi.is Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Umsóknareyðublöð má nálgast á heimasíðu Hveragerðisbæjar www.hveragerdi.is eða á bæjarskrifstofunni, Breiðumörk 20. Starfsferilsskrá ásamt öðrum upplýsingum sem umsækjandi vill koma á framfæri skal fylgja starfsumsókn. Umsóknum ber að skila á skrifstofu Hveragerðisbæjar, Breiðumörk 20, 810 Hveragerði fyrir 1. febrúar n.k. Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst. www.hveragerdi.is 1 3 -0 1 -2 0 1 8 0 4 :3 9 F B 1 2 0 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E B C -7 C 2 0 1 E B C -7 A E 4 1 E B C -7 9 A 8 1 E B C -7 8 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 2 0 s _ 1 2 _ 1 _ 2 0 1 8 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.