Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 01.12.2017, Blaðsíða 50
instagram.com/Birta_vikuBlad vikublað - Ritstjóri: Margrét H. Gústavsdóttir Ábyrgðarmenn: Sigurvin Ólafsson og kolbrún bergþórsdóttir Markaðssamstarf: Svava kristín Gretarsdóttir s: 690 6900 Margrét H. gústavsdóttir margret@dv.is Da gur í l ífi Vikublað 1. desember 2017 2 Stundum gerum við okkur grein fyrir eigin fordómum og stundum ekki. Þegar ég var yngri var ég til dæmis mjög meðvituð um fordóma mína í garð ungmenna sem í dag ganga undir nafninu „trustafarians“. Nafnið er annars vegar dregið af orðinu „trustfund“, sem þýðir sjálfseignasjóður, og hins vegar „rastafarian“, sem er nafn á vinsælum trúarbrögðum á Jamaíku. Bob Marley var til dæmis rastafari. Þú þekkir þá á hárinu. Svona kögglahár sem kallast „dreadlocks“ á ensku. Svo reykja þeir oft mikið af kannabisefnum. Trustafarian er bleiknefjað ungmenni sem þiggur endalausa peninga úr sjóðum vel efnaðra foreldra. Þessi týpa spanderar formúu í að láta sérhæfða hárgreiðslu- meistara búa til „dreddlokka“ í ljósa hárið, kaupir lífrænt ræktað kaffi og er að sjálfsögðu vegan. Á hund með hálsklút. Rúllar eigin sígarettur í lífrænan sígarettu- pappír. Reykir ógrynni af kannabis. Á sama tíma og þessi trustafarian þarf ekkert að hafa fyrir lífinu, hefur viðkoman- di gjarna mjög háværar stjórnmálaskoðanir og sannarlega er krakkinn ekki hægri sinnaður. Nei. Ríkið á sko helst að sjá um allt saman frá A-Ö. Alveg eins og mamma og pabbi. Ekki að ég hafi neitt á móti vinstrisinnuðu fólki. Báðar áttir eru bráðnauðsynlegar. Ég nota til dæmis fingur bæði vinstri og hægri handar á lyklaborðinu, en svona dulbúnir kampavínskommar þykja mér alltaf ferlega vandræðalegir. Skoh! Þarna kom ég upp um mig. Ég hef enn fordóma fyrir þessum týpum og meira til. Akkúrat núna er ég með meðvitaða fordóma fyrir fólki sem vill ekki ferðast til útlanda, fólki sem leggur ofsalega mikla áherslu á að grænmeti sé ekki matur og svo hef ég auðvitað fordóma fyrir körlum sem hafa fordóma fyrir konum. Körlum sem halda að konur eigi eitthvað erfiðara með að hugsa skýrt en þeir. Hvernig skyldi ástandið í hausnum á þeim vera? Ætli þeir geri sér grein fyrir eigin fordómum? Maar speer seg. Játning: Ég hef fordóma fyrir … Hvað er besta ráð sem þér Hefur verið gefið? Ég er alinn upp við það að ég sé ekki merkilegri en aðrir og aðrir eru ekki merkilegri en ég. Þess vegna tala ég eins við alla. Ég held að þetta sé besta ráð sem ég hef fengið. Hvað myndir þú vilja ráðleggja öðrum? að taka fulla ábyrgð á eigin lífi. Ef einhver móðgar þig, þá er það þér að kenna að þú móðgist. Hættu að vorkenna þér. Hvað vildir þú að þú Hefðir vitað fyrr? að erfiðleikar eru ekki slæmir. Þorkell Máni Pétursson, eða Máni í Harmageddon, fæddist á vetrarsólstöðum, þann 21. desember árið 1976. Foreldrar hans eru þau Áslaug Björnsdóttir hjúkrunarfræðing- ur og Pétur Þorkelsson vélstjóri. Máni á eina yngri systur, Árdísi Ýr. Útvarpsmaðurinn skeleggi sleit barnsskónum í Garðabæ og þar býr hann enn. Hann er í sambúð með Bjarneyju Björnsdóttur, 39 ára leikskólastjóra á Litlu Ásum. Þau eiga tvo syni, Pétur Mána, 17 ára, og Róbert Frosta, 12 ára. Máni flosnaði upp úr menntaskólanum í Garðabæ á sínum tíma en lauk þó stúdentsprófinu með húfu og tilbehör þegar hann var 36 ára. Síðan segist hann hafa prófað að skrá sig á flestar brautir Háskólans en ekkert hefur heillað hann meira en útvarpsstarfið sem hann hefur nú sinnt nánast sleitulaust í tuttugu ár, þá aðallega á X-inu 977. 07.15 Ég læt klukkuna hringja korter yfir sjö en er yfirleitt ekki kominn á lappir fyrr en átta. Snúsa í þrjú korter. Mér finnst í fyrsta lagi leiðinlegt að vakna en svo dreymir mann líka oft svo skemmtilega á þessu snús tímabili. Í morgunmat reyni ég yfirleitt að fá mér eitthvað smúþísull eða dós af skyri og ef ég vakna mjög snemma þá renni ég við hjá Te og Kaffi í Hamraborg og fæ mér sojalatte eftir að hafa skutl- að yngri syninum í skólann. 08.45 Ég er vanalega mættur í vinnuna svona korter í níu. Klukkan níu byrjar útvarpsþátturinn sem við æskuvinur minn, Frosti Logason, höfum stjórnað í tíu ár. Við höfum reyndar unnið á X-inu frá því við vorum krakkar. Það eru orðin tuttugu ár frá því við byrjuðum í útvarpi. Á þessum árum höfum við breyst í gamla karla með pólitískar skoðanir. Ég hef reyndar alltaf haft áhuga á pólitík en þetta kom seinna hjá Frosta. Hann er óþroskaðari en ég og hefur alltaf verið. 12.00 Þegar þátturinn er búinn fer ég í það að setja inn klippur úr þættin- um og annað útvarpsefni á visi.is til sirka þrjú. Ég borða sjaldnast í há- deginu en ef ég náði ekki í sojalatte í Hamraborg um morguninn þá skýst ég í Borgartún um þetta leyti og fæ mér einn. Svo fer restin af deginum í að bóka Friðrik Dór Jónsson í alls konar partí í gegnum bókunarstofuna mína Paxal. 17.00 Að vinnudegi loknum reyni ég yfir- leitt að kíkja í World Class í Laug- um, einungis vegna þess að það er enn ekki komin stöð í Garðabæ. Einhver sagði að aðalmálið væri að mæta í ræktina svo ég legg áherslu á það og ef ég geri eitthvað þá hleyp ég á brettinu af því mér leiðast lyftingar. 18.00 Ég er oftast kominn heim milli klukkan sex og sjö. Kvöldmatar- tímar heima hjá mér eru hins vegar mjög óskipulagðir og það skrifast á æfingar og tómstundir strákanna. Sjálfur elda ég ekki mikið en það stendur þó alltaf til að breyta því enda er ég hræðilegur kokkur og hef átt stórslysastundir í eldhúsinu. Hef meira að segja brennt hakk. Það er alltaf á planinu að fara á kokkanámskeið en svo geri ég ekk- ert í því. Kannski að ég prófi bara YouTube. Ég lærði að minnsta kosti að gera bindishnút þar. 20.00 Á kvöldin kemur fyrir að ég kíki á fundi hjá leynifélagi sem ég er í og að þeim loknum fer ég yfirleitt heim að horfa á eitthvert rusl í sjónvarpinu þrátt fyrir áform um bókalestur. Ég horfi oftast á einhverja ofurhetjuþætti, vísinda- skáldsögur eða annað óraunveru- legt. Lífið er of raunverulegt til að maður fari líka að horfa á raun- verulegt sjónvarpsefni. Máni Pétursson - sojalatte, vísindaskáldsögur, brennt hakk og bindishnútanámskeið á YouTube„Á þessum árum höfum við breyst í gamla karla með pólitískar skoðanir. Ég hef reyndar alltaf haft áhuga á pólitík en þetta kom seinna hjá Frosta. Hann er óþroskaðari en ég og hefur alltaf verið. smúþísull í morgunmat Í morgunmat reyni ég yfirleitt að fá mér eitthvað smúþí sull eða dós af skyri og ef ég vakna mjög snemma þá renni ég við hjá Te og kaffi í Hamraborg og fæ mér sojalatte eftir að hafa skutlað yngri syninum í skólann. Mynd Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.