Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 25
Þann 28. mars 2018 birtist í Fréttablaðinu grein eftir Ingólf Ásgeirsson. Þar gefur hann sig út fyrir að tala máli náttúruverndar- sinna í stað þess að koma fram í nafni hagsmunaaðila sem hann sannarlega er. Fjallað hefur verið um viðskipta- hugmyndir hans í fjölmiðlum, m.a. er hann leigði Þverá/Kjarrá fyrir 111,7 milljónir króna árlega í fimm ár. Í grein Ingólfs kom fram að hann hafði haft samband við norska fræði- manninn Keven Glover í tilefni af nýbirtum rannsóknarniðurstöðum hans og umfjöllun um þær hér- lendis. Niðurstöður Glovers benda til þess að þegar hlutfall sleppifiska í á verður um 5-10% í 50 ár verði áhrif erfðablöndunar mjög lítil. Það er ekki fyrr en hlutfallið fer upp í 30-50% sem breytingar verða augljósar á þessu sama tímabili. Niðurstöðurnar benda til þess að hætta á erfðablöndun eldis- laxa við villta laxastofna sé stórlega ofmetin af leikmönnum. Rannsókn Glovers tók til Norður- Atlantshafslax en það er sá lax sem er að finna bæði á Íslandi og í Nor- egi. Ingólfur gefur sér að niðurstöður rannsóknarinnar hafi ekki þýðingu hér á landi og að ekki sé hægt að heimfæra þær yfir á Ísland þar sem stofnar hér séu ólíkir þeim norsku. Hins vegar má benda Ingólfi á að sömu náttúrulögmál gilda á Íslandi og í Noregi. Reyndar mætti Ingólfur lesa fræðigreinar af meiri athygli áður en hann ríður fram á ritvöllinn, en í grein Glovers kemur einmitt fram að því óskildari sem aðkomulaxinn er villta laxinum því ósennilegra er að hann skilji eftir sig spor. Í grein Glovers kemur fram að sam- setning ákveðinna þátta, eins og lítill árangur eldislaxins við hrygningu, náttúrulegt val sem hyglir aðlöguðum fenótýpum/genótýpum frá hinum villtu stofnum sem og fenótýpískur sveigjanleiki, dregur úr hraða og stærðargráðu breytinga í fenótýpum/ genótýpum og lýðfræðilegum ein- kennum villta laxastofnsins sem hefur upplifað innstreymi frá eldislaxi. Þetta er í samræmi við niðurstöður annarra aðila í fræðaheiminum svo sem Hind- ar, Norsku hafrannsóknastofnunar- innar og fleiri. Það þarf mikla, stöðuga og viðvarandi innblöndun af eldislaxi í áratugi til að hætta á erfðablöndun sé raunveruleg (Hindar; 2006, 2017). Um þetta eru fræðimenn nokkuð sammála í Noregi og víðar. Í grein sinni kemur Ingólfur Ásgeirsson fram sem einn af stofn- endum Icelandic Wildlife Fund. Af þessu enska heiti félagsins myndu menn ætla að um væri að ræða öflug náttúruverndarsamtök sem hefðu rödd á alþjóðavettvangi en þegar betur er að gáð reynist Icelandic Wildlife Fund vera óþekkt sjálfseign- arstofnun. Hér á þessari afskekktu og fámennu eyju hafa fyrirbæri í gegnum tíðina fengið stærri nöfn en innistæða er fyrir eða leitast hefur verið við að upphefja heitið með útlenskum blæ. Slíkt er að mörgu leyti falleg og sak- laus sveitamennska. Það sem vekur hins vegar furðu er að sjá mann stíga fram í tómstundum sínum sem stofnanda samtaka til verndar náttúrunni og hugsjóna- mann á meðan sá sami hefur að aðalstarfi að fljúga breiðþotum um heiminn á krítískum tímum „global warming“ eða hnatthlýnunar. Það er allt að því leikhúsleg upplifun að sjá menn gefa sig út fyrir að vera bar- áttumenn fyrir villtri náttúru á sama tíma og þeir verja dögum sínum í að skilja eftir sig stór kolefnisspor í einni mest mengandi atvinnustarf- semi sem stunduð er. Sé stofnanda framangreindra náttúruverndarsam- taka alvara ætti hann að hafa í huga þá gullnu reglu að byrja á að breyta sjálfum sér ætli maður að breyta heiminum. Að sýna gott fordæmi væri eðlilegt fyrsta skref. Stofnanda áhugamannafélagsins IWF svarað Gunnar Steinn Gunnarsson líffræðingur Niðurstöðurnar benda til þess að hætta á erfðablönd- un eldislaxa við villta laxa- stofna sé stórlega ofmetin af leikmönnum. GE bílar Reykjanesbæ www.gebilar.is 420 0400 Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 / www.bl.is Sparneytnir sportjeppar Renault Captur, verð frá: 2.750.000 kr. Renault Kadjar, verð frá: 3.550.000 kr. Renault Koleos, verð frá: 5.490.000 kr. KADJAR, KOLEOS & CAPTUR E N N E M M / S ÍA / N M 8 8 0 8 4 r e n a u lt 3 x b íl a r c ro s s o v e r 5 x 2 0 m a í S k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 17Þ R i ð J u D A G u R 8 . m A í 2 0 1 8 0 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F B 5 -0 2 4 8 1 F B 5 -0 1 0 C 1 F B 4 -F F D 0 1 F B 4 -F E 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.