Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 40
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5800 Ritstjórn 512 5801 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild 512 5401 auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja mest lesna dagblað landsins. ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ. Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu. Jóns Sigurðar Eyjólfssonar BAkþAnkAR Salöt frá 649 kr. Opið allan sólarhringinn í öllum verslunum Þegar við mannskepnurnar hyggjumst hrinda í fram-kvæmd hugmyndum sem runnar eru undan oflæti okkar kann náttúran ýmis brögð til að stöðva óvitaskapinn. Ég var ungur þegar ég komst að þessu en í þá daga var diskótek í skólanum á föstudögum og einn sunnudaginn var svo uppi á mér typpið að ég lagði á ráðin um að taka stúlku eina á löpp sem í þá daga var hvers drengs draumur. Var ákafinn svo mikill að ég kom ekki auga á þá staðreynd að þetta væri feigðar- flan. Þennan sunnudag sá ég í huga mér hvernig ég myndi nálgast hana með svipinn hans Clints Eastwood framan í mér, sjarmera hana upp úr skónum og loks þegar hún væri farin að skjálfa í hnjánum myndi ég bjóða henni í bíó. Á mánudag var ég strax farinn að finna fyrir þunga þessara ráðagerða og á þriðjudaginn var ég farinn að skjálfa í hnjáliðum. Á miðvikudeginum kviknaði í hausnum á mér þegar ég mætti henni á skólaganginum. Á fimmtu- daginn stappaði ég hins vegar í mig stálinu á ný. Það var því töggur í mér þegar ég vaknaði á föstudagsmorguninn örlagaríka, fór ég inn á salerni og þvoði mér í framan en þá blasti við mér þessi risavaxna bóla sem veifaði mér frá nefbroddinum. Ekki bætti úr skák þegar karl faðir minn gerði því skóna að ég þyrfti að fara með hana niður á Hagstofu til að fá fyrir hana kennitölu. Ég hætti við áformin svo þar sparaði náttúran mér og stúlkunni mikið ómak. Eftir Ég líka byltinguna hefur þetta svo bara aukist, ég fékk til dæmis bólu á nefið nýverið. Þó stóð ekkert meira til en að vera kammó við konuna í bakaríinu. Náttúran tekur þátt í Ég líka 0 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 4 -C B F 8 1 F B 4 -C A B C 1 F B 4 -C 9 8 0 1 F B 4 -C 8 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.