Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 08.05.2018, Blaðsíða 36
Even Asteroids are not alone nefnist stutt heim-ildarmynd Jóns Bjarka Magnússonar sem var frumsýnd á sunnudaginn á alþjóðlegu heimildar- myndahátíðinni Ethnocineca sem fram fer nú um þessar mundir og er myndin tilnefnd til ESSA-verðlaun- anna á hátíðinni en verðlaunin eru tileinkuð ungum kvikmyndagerðar- mönnum. Myndin fjallar um vináttu og traust innan íslenska fjölspil- unartölvuleiksins EVE Online. Um er að ræða fyrstu mynd Jóns Bjarka – en myndina gerði hann í kúrsi í staf- rænni mannfræði sem hann stundar um þessar mundir meistaranám í við Freie Universität í Berlín. Myndin verður frumsýnd hér á landi á Skjaldborg- arhátíðinni sem fer fram dagana 18. til 21. maí. „Sjónræn mannfræði gengur í stuttu máli út á það að miðla mann- fræðirannsóknum með sjónrænum hætti, svo sem í gegnum heimildar- myndir, ljósmyndir og/eða einhvers konar innsetningar. Námið er mjög alþjóðlegt sem gerir það dýnamískt og útvíkkandi en samnemendur mínir eru frá yfir 20 þjóðlöndum. Ég hef starfað við blaðamennsku síðast- liðin tíu ár, og lagt stund á ljóðlist, en lengi viljað dýpka þekkingu mína á hinni sjónrænu hlið frásagnarlistar- innar og ekki síður aðferðum mann- fræðinnar. Eitt af skilyrðunum fyrir inngöngu í námið er einmitt einhvers konar bakgrunnur úr fjölmiðlum svo þetta virkaði einhvern veginn sér- sniðið fyrir það sem ég var að leita að.“ Jón Bjarki segir að rætur myndar- innar liggi líklega alveg aftur til ársins 2001 þegar starfsmenn CCP héldu fyr- irlestur í menntaskólanum hans um leik sem þá var í þróun, EVE Online. „Á þessum tíma vissi ég lítið sem ekkert um fjölspilunartölvuleiki en sú hugmynd að geta týnt sér á meðal „alvöru“ fólks hvaðanæva úr heim- inum í einhverju þeirra þúsunda lit- Rannsókn á samfélagi EVE Online spilara Heimildarmyndin Even Asteroids are not alone er fyrsta mynd Jóns Bjarka Magnússonar en hann gerði hana sem hluta af meistara- námi sínu í sjón- rænni mannfræði. skrúðugu sólkerfa sem þeir voru að teikna upp heillaði úthverfaungl- ingshjartað. Ég hef fylgst með leiknum alla tíð síðan, bæði með því að grípa niður í hann endrum og eins, en ekki síður með því að lesa mér til um það sem þar fer fram.“ Samfélagið í EVE dúkkaði svo aftur upp í huga Jóns Bjarka síðasta vetur þegar kom að því að vinna verkefni í einum kúrsinum í náminu. Honum varð hugsað til hins fjölskrúð- uga samfélags manna sem er saman- komið innan leiksins og hvernig það stendur í mótsögn við steríótýpuna um tölvuleikjaspilarann sem einmana og aflokaða persónu sem stundar áhugamál sitt í einrúmi. „Ég vildi draga fram aðra og dýpri mynd af þeim sem spila slíka tölvu- leiki og þetta var kjörinn rannsóknar- vettvangur til þess að leita svara við einfaldri sammannlegri spurningu: Hvernig eignast maður eiginlega vini hér? Með hana að leiðarljósi ferðaðist ég svo um geiminn í á annan mánuð, réði mig til „fyrirtækis“ í leiknum og kynntist fólki í gegnum leik og störf. Eignaðist vini sem buðu mig velkom- inn í þeirra hóp og voru tilbúnir til að deila sögum sínum með mér.“ Jón Bjarki segir vinnslu myndarinn- ar hafa gengið mjög vel og ekki tekið ýkja langan tíma eftir að búið var að negla niður hugmyndina. „Það tók mig svolítinn tíma að komast aftur inn í leikinn, átta mig á því hvernig og hvar ég ætti að leita að fólki sem hefði áhuga á að ræða við mig, en eftir því sem ég kynntist fleirum þeim mun auðveldara varð þetta allt saman. Framan af óttaðist ég kannski mest að það væri helst til lítið að koma út úr þessu brasi mínu en sá ótti reyndist óþarfur þegar leið á enda og reyndust viðmælendurnir einstak- lega gjafmildir á reynslusögur sínar og er ég þeim afar þakklátur fyrir það.“ Fólkið sem er fylgst með í myndinni kemur fram undir spilaranöfnum sínum og þá sést aldrei í andlit þeirra en allt myndefni verksins er tekið úr leiknum sjálfum. „Ég vildi vera trúr skáldskapnum sem á sér stað inni í leiknum því þó að nöfnin séu hreinn tilbúningur og andlitsmyndir persónanna sem þau leika tölvugerðar þá eru raddirnar sannar, og jafnvel sannari einmitt vegna þess að þau sem eru raunveru- lega á bak við þær fá að hvíla í skugg- anum. Ég er inspíreraður af franska heimildarmyndagerðarmanninum og mannfræðingnum Jean Rouch í þessu samhengi, en hann nýtti sér skáldskap ítrekað í myndunum sínum og trúði á hann sem verkfæri til þess að draga fram ummerki „sannleikans“. Sögusviðið er mestmegnis innan leiksins en það teygir sig út fyrir hann rétt eins og vináttan sjálf, sem verður oft til innan leiksins en þróast svo áfram og út yfir í hinn „raunverulega“ heim. Þannig skarast mörk veru- leikans og sýndarveruleikans ítrekað svo oft getur hreinlega verið erfitt að greina á milli hvort kom á undan, og ekki síður hvort sé eiginlega raunveru- legra.“ Í EVE Online er samvinna milli leik- manna lykilatriði til að geta spilað leikinn á sem skilvirkastan og bestan hátt – því verður þarna til ákveðinn vettvangur fyrir félagsleg tengsl. „Fólk safnast saman í fyrirtækjum sem setja upp bækistöðvar í ákveðnum sólkerfum þar sem þau stunda námuvinnslu, framleiðslu, viðskipti og/eða heyja styrjaldir við önnur fyrirtæki um yfirráð auðlinda. Söguper- sónurnar lýsa því margar hverjar hvern- ig einfalt spjall um tæknileg atriði í leiknum sjálfum þróast smám saman yfir í persónulegar samræður um lífið sjálft. Hér kynnist fólk í gegnum leik- inn sjálfan – það að leika sér og leika einhvern annan – sem getur ef til vill verið frelsandi fyrir fullorðið fólk sem var að ljúka erfiðum vinnudegi upp- fullum af stressandi og alvörugefnum samskiptum í veruleikanum. Þannig lýsir maður á sextugsaldri því til dæmis hvernig hann hafi tengst sjötugum bróður sínum í gegnum þetta tól sem þeir fengu til þess að leika sér saman.“ Jón Bjarki segist aðspurður vera að vinna að tveimur myndum núna og er önnur hluti af lokaverkefni hans. Hann segir að þeirra megi vænta á næstu misserum. stefanthor@frettabladid.is SöguSViðið ER MESt- MEgniS innan lEikSinS En það tEygiR Sig út fyRiR hann Rétt EinS Og Vináttan SJálf. Sögusviðið í myndinni er tölvuleikurinn EVE Online. PURE COMFORT hvít teygjulök Stærðir Fullt verð Tilboðsverð 80/100 x 200/220 x 35 2.990 kr. 1.794 kr 90/100 x 200/220 x 35 3.490 kr. 2.094 kr 120/140 x 200/220 x 35 3.990 kr. 2.394 kr 160 x 200/220 x 35 4.990 kr. 2.994 kr 180/200 x 200/220 x 35 5.490 kr. 3.294 kr Frábært verð! • Svæðaskipt pokagormakerfi • Burstaðir stálfætur • Sterkur botn • 320 gormar á m2 • Vandaðar kantstyrkingar Stærð í cm Fullt verð Tilboðsverð 160x200 134.900 101.175 180x200 149.900 112.425 Smáratorgi | Holtagörðum | Akureyri | Ísafirði Vikutilboð 3. til 10. maí OP IÐ Á SU NN UD ÖG UM Í DO RM A SM ÁR AT OR GI Afgreiðslutími Rvk Mánudaga til föstudaga kl. 10–18 Laugardaga kl. 11–17 Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi) www.dorma.is Holtagörðum, Reykjavík Smáratorgi, Kópavogi Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafirði NATURE’S SUPREME heilsurúm m/Classic botni Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á Classic botni. 25% AFSLÁTTUR TILBOÐ www.dorma.is V E F V E R S LU N ALLTAF OPIN 40% AFSLÁTTUR TILBOÐ Ertu í lEit að draumastarfinu? Finndu þitt starf á atvinna.frettabladid.is 8 . m a í 2 0 1 8 Þ R I Ð J U D a G U R28 l í f I Ð ∙ f R É T T a B l a Ð I Ð Lífið 0 8 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :5 8 F B 0 4 0 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F B 4 -F 3 7 8 1 F B 4 -F 2 3 C 1 F B 4 -F 1 0 0 1 F B 4 -E F C 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.