Fréttablaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 14
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
Katrín Egilsdóttir
Bakkastöðum 1a,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir 2. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Sæmundur Pétursson
Eygló Baldursdóttir Guðmundur Jóhannsson
Kjartan Baldursson Edda Aradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir og afi,
Sveinn Þorgeir Brynjólfsson
Birkiteigi 33, Keflavík,
lést á Hrafnistu Nesvöllum,
föstudaginn 4. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hins látna. Alúðarþakkir til starfsfólks Nesvalla fyrir
frábæra umönnun.
Guðrún Helga Þorsteinsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
Elskuleg systir okkar,
mágkona og frænka,
Katrín Þóroddsdóttir
lést á öldrunarheimilinu Hlíð
sunnudaginn 13. maí.
Sæmundur Þóroddsson
Baldvin Þóroddsson Petra Verschüer
Snjólaug Þóroddsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson
Kristín S. Þóroddsdóttir
Guðjón S. Þóroddsson Kristín M. Magnadóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Karl Jóhannsson
Kringlumýri 1, Akureyri,
lést á hjúkrunarheimilinu Hlíð á Akureyri
10. maí. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju
þriðjudaginn 22. maí kl. 13.30. Starfsfólki á skurðdeild SAK
og hjúkrunarheimilinu Hlíð eru færðar bestu þakkir fyrir
kærleiksríka umönnun.
Reynir Karlsson Anna Sigríður Halldórsdóttir
Heimir Karlsson Elfa Hauksdóttir
Ragnheiður Antonsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn,
faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Gunnar Egilson
fv. flugumferðarstjóri og bóndi,
Grund 2, Eyjafjarðarsveit,
lést í faðmi fjölskyldunnar á
sjúkrahúsinu á Akureyri 6. maí sl. Útförin fer
fram frá Akureyrarkirkju miðvikudaginn 23. maí kl. 13.30.
Auður Birna Egilson
Þorsteinn Egilson
Bryndís Egilson Stefán Sch. Árnason
Kjartan Steinarr Egilson
Snæfríð Egilson Ivan Falck-Petersen
Agla Egilson Jónas Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskulegur bróðir okkar,
Ragnar Hallsson
frá Hallkelsstaðahlíð,
lést þann 12. maí, í Brákarhlíð
í Borgarnesi. Útförin fer fram frá
Kolbeinsstaðakirkju laugardaginn
19. maí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast
hans er bent á minningarsjóð Brákarhlíðar,
sjá heimasíðu: www.brakarhlid.is.
Sigríður Herdís Hallsdóttir
Anna Júlía Hallsdóttir
Sigfríður Erna Hallsdóttir
Margrét Erla Hallsdóttir
Sveinbjörn Hallsson
Elísabet Hildur Hallsdóttir
Halldís Hallsdóttir
Þetta er annað árið í röð sem við höldum þessa sumarhátíð sem við köllum Sumar í Havarí. Þetta byrjar núna tuttugasta maí. Við byrjum á því að Prinsinn
af Karlsstöðum ætlar að enda túrinn
sinn í Havarí á sunnudaginn og byrja
þar með Sumarið í Havarí,“ segir Svavar
P. Eysteinsson, bóndi, staðarhaldari
og tónlistarmaður, sem er í miðjum
klíðum við að undirbúa Havarí undir
sumarið þegar blaðamaður nær tali af
honum – en þar verður standandi festi-
val allt frá maí og langt fram í ágúst.
„Þetta er gamla fjárhúshlaðan á
bænum sem við tókum í gegn fyrir
tveimur, þremur árum og umturn-
uðum yfir í veitinga- og tónleikastað
– aðallega tónleikastað því að okkur
langaði að bjóða upp á lifandi músík,
myndlist og bíó, bara menningarvett-
vang. Svo eru veitingar líka: kaffi og
bulsur og með því. Svo fórum við bara
að bóka hljómsveitir – Jónas Sig opn-
aði þetta hjá okkur fyrir þremur árum.
Síðan hefur þetta bara undið upp á sig.
Hljómsveitirnar vilja koma og okkur
hefur gengið vel að draga hljómsveitir
á staðinn, fólk hefur verið duglegt
að mæta þannig að þetta hefur verið
dúndrandi stemming hérna hjá okkur á
sumrin. Við erum að miða við að það sé
gigg aðra hverja helgi en svo hefur þetta
aðeins breyst – stundum eru nokkur
gigg í viku, fer svolítið eftir því hvenær
listamennirnir eru á ferðinni og svona.“
Listafólk staldrar reglulega við í
Havarí enda alltaf heitt á könnunni og
glóðvolgar bulsur á grillinu og stjörnu-
meðferð í boði frá ábúendum.
„Við reynum líka að bjóða lista-
mönnunum að vera bara eins og þeir
vilja, að slaka á hjá okkur og gera
eitthvað úr þessu, njóta lífsins og við
reynum að dekra við þau eins og við
getum.“
Og dagskráin er þétt og má finna
helsta tónlistarfólk landsins á henni.
Emmsjé Gauti kemur þarna við á ferða-
lagi sínu um landið, en það verður allt
kvikmyndað og birt í sérstökum net-
þáttum. Um miðjan júní verður Sing-
a-Long sýning á Með allt á hreinu. Í
júlí verður Regnbogahátíð í samstarfi
við Pink Iceland. Svo er það hæglætis-
hátíðin um verslunarmannahelgina.
„Við ætlum að fara í bakkgírinn í
slökun. Við gerðum þetta í fyrra og
þá vorum við með jógagöngur niður í
fjöru og tónlistarmaraþon með tónlist
um hafið og bara alls konar hæglætis-
vitleysu. Við vitum ekki nákvæmlega
hvað við ætlum að gera eða hverjir ætla
að spila – en það eru nokkrir í pottin-
um. Við mælum bara með að fólk taki
frá verslunarmannahelgina fyrir austan
og við sjáum um skemmtunina.“
Sumrinu lýkur svo með Ed Hamell,
listapönkara frá Bandaríkjunum.
„Það verður logandi stuð á sviðinu í
allt sumar og dansgólfið alveg rennandi
blautt.“
stefanthor@frettabladid.is
Logandi stuð í Havarí
Hátíðin Sumar í Havarí byrjar nú í lok maí og stendur yfir fram í lok ágúst. Þetta er í ann-
að sinn sem hátíðin er haldin formlega. Mikið af tónlist og fjöri er komið á blað, meðal
annars verður Hæglætishátíð um verslunarmannahelgina þar sem verður sett í bakkgír.
Svavar og Berglind verða með fullt fjós af fjöri í allt sumar. FréttaBlaðið/Valli
Sumar í Havarí
20. maí
Prins Póló
1. júní
Emmsjé Gauti
2. júní
Ævintýri Presi-
dent Bongo og
Tilbury
15. júní
Með allt á hreinu
– Söngbíó
30. júní
Valdimar
6. júlí
FM Belfast +
Hermigervill
9. júlí
Olga Vocal En-
semble
12. júlí
Austurvígstöðv-
arnar
13. og 14. júlí
Regnbogahátíð í
samstarfi við Pink
Iceland.
Hljómsveitin Eva
og Lay Low.
19. júlí
Hildur
26. júlí
Ösp Eldjárn
29. júlí
GÓSS – Sigríður
Thorlacius, Sigurð-
ur Guðmundsson
og Guðmundur
Óskar
verslunarmanna-
helgin
Hæglætishátíð –
dagskrá auglýst
síðar
11. ágúst
Hildur Vala og Jón
Ólafsson
18. ágúst
Ed Hamell
Eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Sif Sigurðardóttir
kennari,
Kvisthaga 27,
Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 10. maí. Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 29. maí klukkan 15. Blóm og
kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar
er bent á líknardeild Landspítalans í Kópavogi.
Atli Heimir Sveinsson
Sjöfn Blöndal
Auðunn Árni Blöndal Stefanía Björg Eggertsdóttir
Edda Lúvísa Blöndal Páll Hólm Sigurðsson
og barnabörn.
1 6 . m a í 2 0 1 8 m I Ð V I K U D a G U R14 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a Ð I Ð
tímamót
1
6
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
3
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
C
8
-0
F
4
C
1
F
C
8
-0
E
1
0
1
F
C
8
-0
C
D
4
1
F
C
8
-0
B
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
4
8
s
_
1
5
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K