Breiðfirðingur - 01.04.1946, Blaðsíða 68
58
BREIÐFIRÐINGUB
GÓÐIR STOFNAR
uýiion
Ari Steinsson, tómthúsmaður í Flatey á Breiðafirði,
faðir Jóhanns Arasonar, skipstjóra í Flatey, er dó þar
árið 1925, er þjóðkunnur maður fyrir einn visubotn, er
hann kvað á móti Matthíasi skáldi Jochumssyni, vísa
sú er þannig:
Matth. Veifaði hneilinn hvössum dör,
hreifadrellir missti fjör.
Ari. Sveif að velli köld við kjör,
kleif eru svell á feigðarskör.
Tildrög þessarar visu hafa mér verið sögð þessi:
Matthías var um þessar mundir i Flatey að læra undir
skóla, og dvaldi liann þá hjá Brynjólfi Benediktsen, sem
um það bil var settur sýslumaður i Barðastrandarsýslu.
Brynjólfur var valmenni hið mesta.
Eitt sinn að morgni dags gengu þeir ut sér til liress-
ingar, Brynjólfur og Matthías. Þeir gengu þá fram á
Ara Steinsson, þar sem hann var að flá sel. Selaskot
voru stranglega bönnuð, og selur friðaður á innanverð-
um Breiðafirði. Þröngt var í búi hjá sumum búlausum
mönnum, og varð því sumum það á að líta fram hjá
lögunum, og á þann hátt afla sér málsverðar. Ari var
skytta góð, og hafði nú orðið á að hleypa af á kóp.
Yfirvaldið, Benediktsen, ávarpar Ara og segir: „Sei,
sei, Ari, þetta varðar við lög, þú verður sektaður, en
þar sem þú ert nú fátækur, skal ég nú sleppa kæru
á hendur þér, ef þú nú á stundinni botnar þrælslegustu
vísu, sem Mattliías byrjar, en um seladráp verður hún