Breiðfirðingur - 01.04.1957, Blaðsíða 36
34
BREIÐFIRÐINGUR
Þeim hjónum varð 6 barna auðið, en tvö þeirra létust á
bernskuskeiði, Unnur og Guðmundur. Hin fjögur eru öll
etin á lífi og búsett í Reykjavík. Þau eru: Sigríður, gift Egg-
erti póstmanni, frænda sínum, Péturssyni; Gunnar, starfs-
maður hjá Morgunblaðinu, kvæntur Sigurlaugu Guðmunds-
dóttur; Þuríður, gift Magnúsi Finnssyni starfsmanni í Sæl-
gætisgerðinni Freyju; Margrét, gift Lúðvík Guðmundssyni,
stórkaupmanni.
Hávaðalaus var vinur minn, Eggert, í lífi sínu og dagfari,
og hávaðalaust hvarf hann úr heimi þessum.
ólajur Jónsson frá Ellidaey.
Vorvísur
Tekur fönn af tindunum,
tórnar grænka í rindunum,
syngur í sumarvindunum,
í svölum niðar lindunum.
Ljúft er kvak í lóunum
og langvellið hjá spóunum,
kvæðamergð hjá kjóunum
kveður við í flóunum.
Hlusta ég eftir hljómunum
af hreinu fuglarómunum,
yndi er mér að ómunum
og anganinni af blómunum.
I»óra M. Stefánsdóttir.