Skagablaðið - 16.01.1992, Page 1
2. TBL. 9. ARG.
FIMMTUDAGUR 16. JANUAR 1992
VERÐ KR. 150,-
Framkvæmdr við HvaHjarðargöng hefjast eflir 12-15 mánuði:
Endanleg ákvörðun hefur verið tekin um að Hnausaskersleiðin
verði fyrir valinu fyrir jarðgöng undir Hvalfjörð. Eins og Skagablaðið
hefur margsagt frá áður voru yfirgnæfandi líkur á að hún yrði valin
fremur en Kiðafellsleið. Þetta eru góðar fréttir fyrir Akurnesinga.
Með þessu vali aukast líkurnar á vegtengingu gangnganna við Þjóð-
veg 1 vestur fyrir Akrafjall að mun. Endanleg ákvörðunar þar að lút-
andi er þó ekki á döfinni á næstu misserum
. ðeins er nú beðið formlegrar
Lsamþykktar Halldórs
urböm
Blöndal, samgönguráðherra, á
framkvæmdinni en stjórnarmenn
Spalar hf. áttu fund með honum
á mánudag. Málið fór síðan fyrir
ríkisstjórn í fyrradag, þar sem
það var kynnt.
Rannsóknarþættinum vegna
ganganna er nú að mestu lokið.
Þær viðbótarniðurstöður sem
fengist hafa á síðustu mánuðum
hafa rennt styrkari stoðum undir
þær niðiurstöður sem fengust við
frumrannsóknir.
Vonast er til þess að fram-
kvæmdir við göngin geti hafist
snemma á næsta ári eða eftir 12 -
15 mánuði. Áætlaður fram-
kvæmdakostnaður er 3,4 mill-
jarðar króna. Erlendir bankar,
m.a. tveir stórbankar í Japan auk
Barclays bankans í Bretlandi svo
og Oppenheimer fjármögnunar-
fyrirtækisins í Bandaríkjunum,
hafa sýnt áhuga á að fjármagna
framkvæmdina. Að líkindum
verður skýrt frá framvindu þeirra
mála á allra næstu vikum.
Hugmyndin er að afla um 20%
kostnaðarins með sölu hlutafjár í
Speli hf., þ.e. um 700 milljóna
króna. Afganginn, 2,7 milljarða
króna, er ætlunin að fá erlenda
aðila til að fjármagna. Ef marka
má þau viðbrögð sem fregnin um
göngin hefur þegar fengið er-
lendist virðist ætla að verða auð-
veldara að fjármagna þau en ráð
var fyrir gert.
Börn úr sérdeild Brekkubæj
arskóla gera það aldeilis ekki
endasleppt á myndlistarsvið-
inu. Sl. sunnudag voru fjórum
þeirra afhent verðlaun frá
Búlgarska rauða krossinum
fyrir framlag þeirra til alþjóð-
legrar myndlistarsamkeppni
fjölfatlaðra barna.
Alls komu átta verðlaun
komu í hlut íslenskra
barna, þar af fóru fern til
Akraness. Sannarlega glæsi-
legur árangur. Þetta er í þriðja
sinn sem börn frá sérdeild
Brekkubæjarskóla vinna til
verðlauna í þessari sömu sam-
keppni. Auk Akurnesinganna
fjögurra fengu þrír Vestmanna
eyingar verðlaun svo og eitt
barn úr Reykjavík.
Frá íslandi fóru alls 59 verk í
þessa keppni. Öll verkin í sam-
keppninni voru til sýnis í
Sofíu, höfuðborg Búlgaríu, frá
8. - 18. maí á síðasta ári.
Verðlaunahafarnir Jón Einarsson, Kristjana Björnsdóttir, Guðmundur Örn Björnsson og Einar Sigurðs-
son ásamt Gísla Björnssyni, formanni Akranesdeildar RKÍ og Helgu Garðarsdóttur, yfirkennara sérdeild-
arinnar.
Viðburðarikt ár framundan á 50 ára kaupstaðarafmæli Akraness:
Háh'ðaidagskrá aiman suimudag
Tæpast hefur það farið
framhjá nokkrum Skagamanni,
að Akranes á 50 ára kaupstaðar-
afmæli á þessu ári. Það var þann
1. janúar 1942 að Akranes fékk
formleg réttindi sem kaupstaður
en fyrsta kosning til bæjarstjórn-
ar fór fram 25. janúar. Bæjar-
stjórn kom fyrst saman til fundar
daginn eftir. Skagablaðið ræddi
við Gísla Gíslason, bæjarstjóra,
og innti hann eftir því hvað helst
yrði á döfinni á afmælisárinu.
nfmælishaldið hefst með form
legum hætti sunnudaginn 26.
janúar með hátíðardagskrá
bæjarstjórnar í nývígðum sal
Fjölbrautaskóla Vesturlands.
Dagskráin, sem þau Kristín
Steinsdóttir, Guðmundur Vé-
steinsson, Ásmundur Ólafsson
og Ólína Jónsdóttir hafa undir-
búið, verður flutt af Skagaleik-
flokknum og hefst kl. 14. Söng-
hópurinn Sólarmegin syngur við
þetta tækifæri og Skólahljóm-
Víða stórafmæli í ár
Það er ekki einasta Akraneskaupstaður sem fagnar stórafmæli
á árinu 1992. Prentverk Akranes fagnar einnig á árinu 50 ára af-
mæli sínu svo og BíóhöIIin.
Þá fagnar Hf. Skallagrímur því nk. fimmtudag að 60 ár eru
liðin frá stofnun félagsins og síðar á árinu á Sjúkrahús Akra-
ness 40 ára afmæli.
Það verður því væntanlega nóg að gera í tertubakstrinum þetta
árið!
sveit Akraness tekur á móti gest-
um með dynjandi lúðrablæstri,"
sagði Gísli.
Hátíðardagskráin er nú á loka-
stigum vinnslu og verður nánar
auglýst í Skagablaðinu í næstu
viku. Gísli sagðist geta lofað
bæjarbúum góðri stundu annan
sunnudag. Að dagskránni lok-
inni yrði bæjarbúum svo boðið í
kaffi og að sjálfsögðu viðeigandi
afmælistertu.
Gísli sagði hvern atburðinn
reka annan á afmælisárinu. Gef-
inn hefur verið út afmælispening-
ur í 500 tölusettum eintökum
sem kaupa má á bæjarskrifstof-
unni. Skólar bæjarins munu á
næstu vikum leggja sitt af mörk-
um til afmælisársins og þá tekur
íþróttahreyfingin virkan þátt í af-
mælinu með mótahaldi af ýmsum
toga.
Ætlunin er að nýta sumarið vel
til skógræktarátaks og vegleg
dagskrá verður í kringum 17.
júní. Hápunktur afmælisársins
verður svo væntanlega í byrjun
júlí er forseti íslands, frú Vigdís
Finnbogadóttir, sækir Akranes
heim.
„Ég leyfi mér að bera þá von í
brjósti að allir Akurnesingar
verði í afmælisskapi á þessu
merkisári og taki virkan þátt í
því sem boðið verður upp á til
fróðleiks og skcmmtunar," sagði
Gísli Gíslason, bæjarstjóri.
Eldurínótt
Eldur kom upp í mjölþurrkara
í síldarverksmiðjunni laust
eftir miðnætti í nótt. Slökkvilið
var kallað á vettvang og réði
niðurlögum eldsins á skömmum
tíma. Litlar skemmdir urðu og
var vinnsla í verksmiðjunni með
eðlilegum ætti í morgun.
Þrátt fyrir að atvinnuleysi
á landinu í desember
hafi verið það mesta í 16 ár
eða frá 1975 vekur það at-
hygli þegar tölur yfir einstök
kjördæmi eru skoðaðar að
Vesturland kemur betur út
en oft áður í slíkum saman-
burði. Atvinnuleysi á Vest-
urlandi í desember var 1,9%
af mannafla.
Gengið var frá sölu á
Rauðsey, skipi Haraldar
Böðvarssonar hf., til Húsa-
víkur fyrir áramótin. Skipið
hafði verið á sölu um nokkra
hríð. Óhætt er að segja að
hlaupið hafi á snærið hjá
þeim HB mönnum í lok ný-
liðins ár því samningar um
sölu á togaranum Skipaskaga
tókust einnig.
Hafsteinn Gunnarsson hef
ur verið ráðinn sem sér-
stakur útbreiðslustjóri get-
rauna hér á Akranesi á veg-
um Knattpsyrnufélags ÍA og
Körfuknattleiksfélags Akra-
ness. Gengið hefur verið frá
nýjum samstarfssamningi fé-
laganna tveggja og er ætlunin
að reyna að stórefla þáttöku
Akurnesinga á þessum vett-
vangi.
Gunnar Sigurðsson, um-
boðsmaður Olís hér á
Akranesi, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Olís fyrir
allt Vesturland. Með þessu
vill fyrirtækið auka valddreif-
ingu innan þess. Gunnar
mun m.a. hafa eftirlit með
umboðum og söluaðilum á
Vesturlandi. Einnig mun
hann annast eftirlit með eign-
um fyrirtækisins og sjá til
þess að þeim sé viðhaldið.
Hann verður umboðsmönn-
um og söluaðilum á Vestur-
landi einnig til ráðgjafar í
samræmi við þær reglur sem
settar eru af stjórnendum
fyrirtækisins.
Skólanefnd Tónlistar-
skóla Akraness sam-
þykkti á fundi sínum fyrir
nokkru að hækka skólagjöld
um 6% frá og með 1. janúar
sl.
*
Asdís Kristmundsdóttir
frá Akranesi kemur til
með að syngja annað tveggja
kvenhlutverka í uppsetningu
Óperusmiðjunnar á La Bo-
heme í marsmánuði. „Þetta
er meiriháttar og mjög
spennandi," sagði Ásdís er
Skagablaðið ræddi við hana.
Þetta er fyrsta stórhlutverk
hennar á söngsviðinu hér-
lendis en hún hefur haldið
nokkra einsöngstónleika.