Fréttablaðið - 08.07.2019, Síða 4

Fréttablaðið - 08.07.2019, Síða 4
Fáðu fréttablað dagsins í tölvupósti kl. 3.00 á morgnana. Skráðu þig á póstlista blaðsins á www.frettabladid.is#nyskraning Það kostar ekkert. Vertu fyrst/ur að lesa blaðið Glencore , Trimet Aluminium og Liberty House vilja eignast Rio Tinto. UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 jeep.is JEEP ® CHEROKEE SUMARTILBOÐ SUMARPAKKI 1: Málmlitur TILBOÐSVERÐ MEÐ AUKAHLUTUM: 7.390.000 KR. - LISTAVERÐ 8.110.000 KR. Helsti staðalbúnaður Jeep® Cherokee Longitude Luxury*: • 2.2 lítra 195 hestafla díselvél, 9 gíra sjálfskipting • Jeep Active Drive I Select Terrain með 4 drifstillingum, • Rafdrifin snertilaus opnun á afturhlera • Leðurinnrétting • 8,4” upplýsinga- og snertiskjár • Íslenskt leiðsögukerfi • Bakkmyndavél með bílastæðaaðstoð • Hágæða Alpine hljómflutningskerfi með bassaboxi • Apple & Android Car Play ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF *Aukahlutir ekki í tilboði: Hjól og hjólafestingar. SUMARPAKKI 2: Málmlitur, borgarpakki, þægindapakki og glerþak (panorama). TILBOÐSVERÐ MEÐ AUKAHLUTUM: 8.090.000 KR. - LISTAVERÐ 8.860.000 KR. DÓMSTÓLAR „Það eru engin slík líkindi milli laganna sem gefa til kynna að You Raise Me Up sé stæl- ing á Söknuði,“ segir í greinargerð tónlistarprófessorsins Lawrence Ferrara sem lögð er fram af hálfu lögmanna Warner Music og Uni- versal Music. Eins og kunnugt er hefur tón- listarmaðurinn Jóhann Helgason stefnt norska lagahöfundinum Rolf Løvland og tónlistarfyrirtækjunum Warner og Universal og f leiri fyrir alríkisdómstól í Los Angeles vegna meints stuldar á laginu Söknuði sem kom út árið 1977. Telur Jóhann að lagið You Raise Me Up sem Løvland sendi frá sér árið 2001 sé eftiröpun á Söknuði. Lögmenn Universal og Warner í málinu réðu Lawrence Ferrara til að gera fyrir sig samanburðargrein- ingu á lögunum tveimur. Greinar- gerð Ferrara hefur nú verið lögð fram við dómstólinn. Ferrara segir að á grundvelli greiningar sinnar finnist engin marktæk líkindi milli uppbygging- ar laganna Söknuðar og You Raise Me Up. Það sama gildi um hljóm- setningu, laglínu og takt laganna. Enn fremur segir Ferrara að þeir tónlistarlegu þættir sem komi fram í bæði You Raise Me Up og Söknuði séu til staðar í nokkrum eldri verkum. Hann nefnir til dæmis samstofna írsku þjóðlögin Danny Boy, The Young Man’s Dream og Londonderry Air. Einn- ig norska þjóðlagið Eg kan ikke gløyme og jólalagið When a Child Was Born sem kom út í nóvember 1976 sem sé í raun lagið Soleado frá árinu 1974. Ferrara segir að á grundvelli tónlistarfræðilegrar greiningar sinnar sé það sitt faglega mat að þótt Söknuður og You Raise Me Up deili nokkrum tónlistarlegum líkindum þá séu þau til staðar í vel þekktum eldri verkum. Þau líkindi hafi verið aðgengileg fyrir höfunda beggja laganna. Þessi líkindi megi rekja til þjóðlaga frá átjándu og nítjándu öld, sér í lagi til írskra þjóðlaga. Samkvæmt upplýsingum sem Ferrara gefur um sig sjálfan í grein- argerðinni er hann tónlistarpró- fessor við New York háskóla. „Ég hef lagt til greiningar og álit í tengslum við höfundarréttarmál í tónlist í meira en tuttugu ár,“ segir hann. „Þetta kemur ekkert á óvart,“ segir Jóhann Helgason. „Þetta var búið að koma fram áður við rekstur málsins í Englandi og þá var búið að hrekja þetta vel og vandlega. Þá var hins vegar ekki til fjármagn til að halda áfram með málið.“ Lög maðu r Jóha nns Helga- sonar, Michael Machat, hefur nú frest fram  yfir miðjan ágúst hið minnsta til að af la álits tónlistar- sérfræðings fyrir Jóhanns hönd. Vegna þess hversu viðamikil greinargerð Lawrence Ferrara er hefur  Machat óskað eftir  fram- lengdum fresti fyrir starf síns sér- fræðings. Þá hafa lögmenn áðurnefndra tónlistarfyrirtækja lagt fram kröfu um frávísun málsins. Hafni dómar- inn henni er áætlað að réttarhöld með kviðdómi verði á dagskrá á næsta ári. gar@frettabladid.is Sérfræðingur stórfyrirtækja hafnar líkindum við Söknuð Prófessor sem starfar fyrir lögmenn Warner Music og Universal Music í dómsmálinu sem Jóhann Helga- son rekur gegn tónlistarfyrirtækjunum í Los Angeles segir í 110 síðna greinargerð að engin marktæk líkindi séu með laginu Söknuði og laginu You Raise Me Up. Bæði lögin eigi fyrirmyndir í eldri lögum. Jóhann Helgason kynnti í apríl 2018 áform um endurnýjaðan málarekstur vegna lagsins Söknuðar. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR VIÐSKIPTI Svissneska fyrirtækið Glencore, einn stærstu eigenda Century Aluminum sem svo aftur á Norðurál, hefur áhuga á því að kaupa eignir Rio Tinto á Íslandi, í Svíþjóð og Hollandi fyrir allt að 350 milljónir dala. Tvö fyrirtæki til við- bótar hafa áhuga sömuleiðis, það eru hið þýska Trimet Aluminium og breska fyrirtækið Liberty House. Sólveig Bergmann, talsmaður Norðuráls, gat ekki tjáð sig um málið þegar eftir því var leitað. Rio Tinto hóf söluferli sitt á ný undir lok síðasta árs með hjálp f ranska f jár festingarbankans Natixis en áður hafði Norsk Hydro hætt við kaup og kennt töfum á samþykkt frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um. Heim- ildarmenn The New York Times sögðu það ef til vill hafa verið vegna áhyggna af áhrifum á samkeppni á álmarkaði. Talsmenn Glencore vildu ekki tjá sig um málið.  – þea Eigandi Norðuráls horfir til Rio Tinto BRETLAND Breskir þingmenn úr bæði Íhaldsflokki og Verkamanna- f lokki sögðust í gær vera að leita leiða til þess að koma í veg fyrir að næsti forsætisráðherra beiti sér fyrir samningslausri útgöngu úr Evrópusambandinu, þvert gegn vilja þingsins. Boris Johnson mælist í könnunum líklegastur til þess að taka við forsætisráðuneytinu þegar Theresa May stígur til hliðar. Hann hefur heitið því að Bretar virði útgöngudagsetninguna, 31. október, og fresti ekki útgöngu líkt og áður hefur verið gert, jafnvel þótt það þýði útgöngu án samnings. „Við myndum knýja fram van- traust satk væðag reiðslu þegar við erum sannfærð um að þeir Íhaldsmenn sem hafa sagst styðja slíka tillögu til að koma í veg fyrir samningslausa útgöngu séu líklegir til að styðja hana í raun og veru,“ sagði Barry Gardiner, upplýsinga- fulltrúi Verkamannaf lokksins, við Sky News. Sam Gyimah, þingmaður Íhalds- f lokksins, sagði við sama miðil að það væri síðasta úrræði að greiða atkvæði gegn ríkisstjórninni og að hann ætlaði sér það ekki. Hann væri hins vegar, líkt og um þrjátíu aðrir þingmenn f lokksins, vilj- ugur til þess að styðja frumvörp sem myndu hindra samningslausa útgöngu. – þea Hafa áhyggjur af samningsleysi Boris Johnson, líklegur arftaki. LEIÐRÉTTING Rangt var farið með föðurnafn oddvita Fljótsdalshrepps í blaðinu á laugardag. Hún heitir Gunnþórunn Ingólfsdóttir. 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 1 -1 4 F 8 2 3 6 1 -1 3 B C 2 3 6 1 -1 2 8 0 2 3 6 1 -1 1 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.