Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 6
1299 kr.kg Grísakótilettur, kryddaðar Ódýrt www.kronan.is ÍRAN Stjórnvöld í Íran hættu í gær að fylgja skilmálum JCPOA- kjarnorkusamningsins. Sextíu daga fresturinn sem Íransstjórn hafði gefið eftirstandandi aðildar- ríkjum til þess að skýla Íran gegn nýjum, bandarískum þvingunum rann þá út. Íran gerði samning inn við Bandaríkin, Kína, Frakkland, Þýskaland, Evrópusambandið, Rússland og Bretland árið 2015 en eftir að Donald Trump tók við embætti Bandaríkjaforseta rifti hann samningnum af hálfu Banda- ríkjanna. Trump-stjórnin lagði þá á nýjar þvinganir gegn Íran en samn- ingurinn gekk í meginatriðum út á að Íran frysti kjarnorkuáætlun sína gegn afléttingu þvingana. „Í dag rann sextíu daga fresturinn út og fyrst kröfum okkar er varða kjarnorkusamninginn og olíu- sölu var ekki svarað tökum við í dag skref númer tvö. Fyrir sextíu dögum lýstum við því yfir að við myndum hætta að fylgja ákvæðum um uppsöfnun auðgaðs úrans og nú tilkynnum við um að við ætlum ekki að fylgja ákvæðum um hversu auðgað úranið má vera,“ hafði íranski miðillinn Fars News eftir Abbas Araqchi, aðstoðarutanríkis- ráðherra Írans, í gær. Aukinheldur að Íran myndi draga aftur úr þátt- töku sinni í samningnum eftir sex- tíu daga til viðbótar. Þessa síðustu sextíu daga höfðu Íranar ekki selt úr landi lágauðgað úran. Það er alla jafna notað til þess að knýja kjarnorkuver. Háauðgað úran, sem Íran hyggst nú vinna í skilvindum sínum, er aftur á móti hægt að nota í rannsóknarkljúfum eða jafnvel kjarnorkuvopnum. Alla jafna er úran sem notað er í vopnum um níutíu prósent auðgað en Íran hyggst nú, samkvæmt því er emb- ættismenn sögðu í gær, vinna fimm prósent auðgað úran. Emmanuel Macron, forseti Frakk- lands, ræddi við íranska forsetann Hassan Rouhani í síma á laugardag. Hann tjáði Írananum að hann vildi alls ekki sjá samningnum rift og samþykktu leiðtogarnir að íhuga að hefja viðræður á ný. – þea Draga úr þátttöku í kjarnorkusamningi Abbas Araqchi aðstoðarutanríkisráðherra sést hér til hægri á blaðamannafundi gærdagsins. NORDICPHOTOS/AFP Kröfum okkar er varða kjarnorku- samninginn og olíusölu var ekki svarað. Abbas Araqchi, aðstoðarutanríkis- ráðherra Írans GRIKKLAND Útlit er fyrir að mið- hægriflokkurinn Nýtt lýðræði (ND) hafi unnið stórsigur í þingkosning- um sem fóru fram á Grikklandi í gær. Þegar um 80 prósent atkvæða voru talin hafði ND 39,67 prósent og 158 sæti af 300. Vinstriflokkurinn Syriza, sem hefur verið við völd frá árinu 2015, var með 31,68 prósent og 86 sæti. Jafnaðarmannaflokkurinn KINAL var með 7,92 prósent og 22 sæti, Kommúnistaflokkurinn 5,38 prósent og fimmtán sæti, MeRA25, f lokkur fyrrverandi fjármálaráð- herrans Yanis Varoufakis, með 3,48 prósent og 9 sæti og fasistaflokkur- inn Gullin dögun með 2,96 prósent. Missir þannig rétt af þriggja prósenta þröskuldnum og dettur út af þingi. ND er því óumdeilanlega sigur- vegari kosninganna. Syriza fékk 36,3 prósent atkvæða í kosningunum í september 2015. ND fékk nú 27,8 prósent og þar með hreinan meiri- hluta enda fær sá flokkur sem sækir sér flest atkvæði fimmtíu þingsæti í bónus. Kyriakos Mitsotakis, leiðtogi ND, fer á fund forseta á morgun og tekur væntanlega við sem forsætisráð- herra. Hann fagnaði sigri í gær og sagðist ætla að vinna af hörku fyrir alla Grikki. Alexis Tsipras, fráfarandi forsætisráðherra og leiðtogi Syriza, játaði ósigur og sagðist samþykkja niðurstöðurnar. Kosningarnar áttu upphaf lega að fara fram í haust. Tsipras ákvað hins vegar að flýta kosningum eftir að Syriza laut í lægra haldi fyrir ND í Evrópuþingkosningunum í maí síðastliðnum. Tsipras tók fyrst við embættinu eftir þingkosningar í janúar 2015. Á þeim tíma leiddi hann Grikki í gegn- um erfiðar viðræður við Evrópusam- bandið um skuldastöðu ríkisins og nýja neyðaraðstoð. Þegar hann hafði tryggt þriðja neyðarpakka Grikkja boðaði hann til nýrra kosninga. Þær fóru fram í september sama ár og stjórnin hélt velli. Síðan þá hefur Tsipras hins vegar gengið erfiðlega. Árið 2015 lofaði Syriza því að láta af niðurskurðar- stefnu fyrri ríkisstjórna. Allt kom hins vegar fyrir ekki og neyddist stjórnin til að framfylgja skilmálum sem ESB og Alþjóðagjaldeyris- sjóðurinn settu fyrir áframhald- andi aðstoð. Atvinnuleysi hefur lítið minnkað og mælist enn í rúmum þrjátíu prósentum á meðal ung- menna, um tuttugu prósent heilt yfir. Sé litið til annarra mála en efna- hagsmála má nefna óánægju meiri- hluta Grikkja með samkomulagið sem Syriza-stjórnin gerði við Make- dóna um að nafni ríkisins yrði breytt í Norður-Makedónía. Óánægjan stafar af því að þótt forskeytinu sé bætt við þykir Grikkjum enn ótækt að nágrannarnir kalli sig sama nafni og gríska héraðið og forngríska kon- ungsríkið Makedónía. Þá verður að nefna þann mikla fjölda flóttamanna sem hafa streymt til Grikklands og illa hefur gengið að sjá um, sem og skógarelda síðasta sumars sem felldu hundrað og urðu að pólitísku deilumáli vegna mis- taka yfirvalda og meintra ólöglegra byggða. Fátt getur nú komið í veg fyrir að Kyriakos Mitsotakis, leiðtogi ND, taki við af Tsipras sem forsætisráð- herra. Mitsotakis er af valdaættum. Sonur fyrrverandi forsætisráð- herrans Konstantinos, bróðir Dora Bakoyannis, fyrrverandi utanríkis- ráðherra, og frændi fyrrverandi forsætisráðherranna Eleftherios Venizelos og Sofoklis Venizelos. Samkvæmt því sem Nikos Marant- zidis, prófessor í stjórnmálafræði við Makedóníuháskóla í Þessalóníku, sagði við Vox Europ í síðustu viku er Mitsotakis ekki sérstaklega vinsæll hjá hörðustu fylgismönnum Nýs lýð- ræðis. „Mitsotakis er miðjumaður úr frjálslyndri fjölskyldu. Hann er langt til vinstri við flokkinn. Flokksmenn hafa aldrei litið á Mitsotakis-klanið sem hluta af miðju-hægrinu heldur sem boðflennur. En af hverju eru þeir þá að kjósa Kyriakos Mitsotakis? Af því að þeir vita að hann getur unnið.“ thorgnyr@frettabladid.is Mitsotakis sigurvegari í Grikklandi Alexis Tsipras forsætisráðherra og flokkur hans, Syriza, töpuðu fylgi í þingkosningum á Grikklandi. Nýtt lýðræði fær hreinan meirihluta. Kyriakos Mitsotakis, leiðtogi Nýs lýðræðis, fer á fund forseta Grikklands í dag og tekur væntanlega við af Tsipras. 40% kusu Nýtt lýðræði í kosn- ingum gærdagsins. Kyriakos Mitsotakis virtist afar sáttur við niðurstöðurnar, enda með hreinan meirihluta. NORDICPHOTOS/AFP 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R6 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 6 1 -2 8 B 8 2 3 6 1 -2 7 7 C 2 3 6 1 -2 6 4 0 2 3 6 1 -2 5 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.