Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 34
Heitustu grillin! weber.is Kolagrill Gasgrill Rafmagns grill www.hókuspókus.is Verslun og vefverslun Laugavegi 69 S. 551-7955 Grímur og skraut Helíum frá 2990 BÆKUR Hernaðarlistin Höfundur: Sun Tzu Þýðandi: Brynjar Arnarson Blaðsíður: 118 Útgefandi: Ugla Samkvæmt rótgróinni staðal­ ímyndinni hugsa Kínverjar aldir ef ekki árþúsund fram í tímann, ólíkt bleiknef junum á Vestur­ löndum sem mega teljast góðir ef framtíðarsýn þeirra nær fram yfir næstu mánaðamót. Gæti haft eitt­ hvað að gera með það að á meðan okkar heimshluti er á hraðferð lóð­ beint til andskotans er gula hættan í stórsókn, meira að segja með hin voldugu Bandaríki í efnahagslegu hálstaki. Sun Tzu skrifaði kverið Hernað­ arlistin fyrir 2.500 árum eða svo en þar fór hann yfir nokkur grundvall­ aratriði sem geta á vígvellinum skil­ ið milli milli feigs og ófeigs, sauðina frá höfrunum og sigurvegarana frá töpurunum. Og þegar horft er yfir heimskortið bendir ýmislegt til þess að Kínverjar eigi jafn auðvelt með að skilja Hernaðarlistina og við hérna megin Litlu gulu hænuna. Tröllatrú höfundar á verki sínu og herkænsku var slík að hann mark­ aðssetti hana með loforði um að hver sá sem les bókina vandlega og tileinkar sér speki hennar bara geti ekki tapað. Hvorki orrustu né stríði. Fólk trúir þessu enn enda sjálfsagt engu logið ef tekið er tillit til þess að þarna horfði stríðsherrann fram hjá hugsanlegum veikleikum og göllum lesenda sinna. The Art of War hefur löngum verið aðgengileg í enskum þýð­ ingum en er nú loksins komin út í aðgengilegri og auðlesinni íslenskri þýðingu sem Hernaðarlistin. Vel til fundið og síðan er það í höndum hvers og eins hversu vel bókin gagnast þeim í átökum. Pissað í vínið Hinn heimspekilega sinnaði og djúptþenkjandi stríðsherra Sun Tzu leggur mikla áherslu á að þekking á veðurfari, staðháttum og pólitík geti skipt sköpum þegar til átaka kemur. Þá er voðinn alveg vís ef herforingjar þekkja ekki óvininn jafn vel, ef ekki betur, en sjálfa sig. Hégómi, skapofsi og tilfinningasemi eru til dæmis veikleikar sem upplagt er að nýta gegn óvininum og sam­ kvæmt Sun Tzu er það óvinurinn sem skapar þér tækifærin til sigurs. Blekkingar, lygar, njósnarar og gagnnjósnarar, mútur og mis­ vísandi upplýsingar eru beitt vopn og árangursríkar andlegar hernað­ araðgerðir geta vegið þyngra en liðsstyrkur. Reiður andstæðingur sem ryðst fram í bræði og fljótfærni á vígvelli sem þú hefur valið þér er búinn að tapa áður en á hólminn er komið. Upplagt til dæmis í aðdraganda orrustu að upplýsa óvininn um að þú hafir verið búinn að pissa í hrís­ grjónavínið sem hann drakk í gær. Skák og mát! Lífsbaráttan Stríðskeisarinn og taparinn annál­ aði Napóleón Bónaparte var að sögn ákaflega hrifinn af Hernaðar­ listinni og þeir sem vilja þykjast voða klárir og herkænir hafa undar­ lega tilhneigingu til þess að vitna í Napóleon og orð hans um að maður eigi aldrei að trufla andstæðinginn á meðan hann er að gera mistök. Sá stutti lærði þetta að vísu af Sun Tzu og fékk síðan að gera sín mistök ótruflaður. Lífið er stríð, endalaus barátta alla daga þannig að speki Sun Tzu er í raun ein merkilegasta og gagn­ legasta sjálfshjálparbók sem til er. Hernaðarfræði eru til dæmis grunnur allrar markaðsfræði en á þeim vígvelli, rétt eins og í öllum viðskiptum, skiptir öllu að sjá fleiri leiki fram í tímann en keppinautur­ inn, vita meira en hann og auðvitað helst að geta blekkt hann, reitt til reiði, koma fáti á hann þannig að hann missi sig í f ljótfærni. Stjórnendur fyrirtækja, þjálf­ arar íþróttaliða og í raun allir með mannaforráð eða sem eiga góðan árangur undir sterkri og einbeittri liðsheild geta lært margt af hug­ myndum Sun Tzu um hvernig her­ foringjar geta hámarkað árangur hersins, þjappað fólki að baki sér og fengið sem mest út úr hverjum og einum. Í þeim efnum mælir Sun Tzu til dæmis ekki með að gullið sé sparað. Rétt að halda því vandlega til haga. Listin að lesa til gagns Þótt margir hafi eða þykist hafa lesið bókina virðist boðskapur­ inn vefjast leiðinlega oft fyrir fólki. Sun Tzu sagði til dæmis: „Í stríði er alla jafna best að ná ríki ósködduðu; að leggja það í rúst er síðri kostur.“ Þetta vefst eitthvað fyrir stríðsherrum vorra tíma. Að maður tali ekki um þessa aug­ ljósu staðreynd: „En að sigra hundrað sinnum í hundrað orr­ ustum er ekki æðsta stig her­ kænsku. Að buga óvininn án vopnaviðskipta, það er snilld.“ Hér er ég vitaskuld kominn í algera mótsögn við sjálfan mig og leyfi skyldu gagnrýnandans að slæva dómgreind mína. Ef ég færi að ráðum Sun Tzu myndi ég vitaskuld gefa bókinni 0 stjörnur, dæma hana úr leik og ráða fólki eindregið frá því að lesa hana. Vegna þess að auðvitað styrkir það mig í væringum daglegs lífs, hafandi lesið Hernaðarlistina, að sem fæstir geri slíkt hið sama. Víg­ staða þess sem þekkir þessi fræði er auðvitað betri en þess sem ekkert veit í sinn stríðshaus. Hjónaskilnaður sem ég fór í gegnum fyrir mörgum árum er gott dæmi. Við erum bæði bókelsk í meira lagi og mest gekk á þegar kom að því að skipta bókasafni upplausnarheimilisins. The Art of War var eina bókin sem við þurftum ekki að rífast um vegna þess að við áttum hvort sitt eintakið. Eitt er þó að lesa og annað að skilja. Hún hirti bílinn, ísskáp­ inn, sófasettið, vínskápinn (ég var að vísu búinn að tæma hann), þvottavélina, þurrkarann, plötu­ spilarann minn og magnarann. Ég náði helmingi skuldanna og mínu eintaki af Hernaðarlistinni. Þann­ ig að ekki þarf að hafa mörg orð um hvort okkar er gleggri lesandi. Þórarinn Þórarinsson NIÐURSTAÐA: Hernaðarlistin e í raun yfir gagnrýni og stjörnugjöf hafin, haf- andi sannað sig í 2.500 ár sem eitursnjall lífsleiðarvísir sem hefur verið færður í letur. Algert lykilrit í hernaði sem getur einnig skipt sköpum í viðskiptum, stjórn- málum og á öllum öðrum átakasvæðum tilverunnar. Sjálfshjálparbók sigurvegara Napóleon las Hernaðarlistina af miklum áhuga. Hver er toppurinn á þínu sumri? 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R18 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð MENNING 0 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 1 -2 8 B 8 2 3 6 1 -2 7 7 C 2 3 6 1 -2 6 4 0 2 3 6 1 -2 5 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 0 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.