Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 08.07.2019, Blaðsíða 30
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055. Elsku engillinn okkar, mamma, tengdamamma, amma og langamma, María Sigurborg Jonný Rósinkarsdóttir hjúkrunarheimilinu Eir, áður Melseli 8, kvaddi á Landspítalanum í Fossvogi mánudaginn 1. júlí. Útför fer fram frá Fossvogskirkju 18. júlí kl. 15. Sérstakar þakkir til starfsfólks Eirar og B2 fyrir fagmennsku, alúð og manngæsku. Ottó K. Ólafsson Björk Baldursdóttir Jakob Ólafsson Helena S. Leósdóttir Little Rósinkar S. Ólafsson Sólbjörg Gunnbjörnsdóttir Guðný Ólafsdóttir Ómar Þ. Gunnarsson Ásgeir K. Ólafsson Aðalheiður Gylfadóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, amma, langamma og sambýliskona, Eygló Anna Sigurðardóttir Suðurgötu 85, Akranesi, lést á Sjúkrahúsi Akraness þann 26. júní sl. Útför hennar fer fram frá Akraneskirkju 11. júlí kl. 13. Ágústa Árnadóttir Sigurður Bjarnason Þorbjörg Sólbjartsdóttir Árni Freyr Einarsson Fannar Sólbjartsson Erla Ösp Lárusdóttir Einar Ingi Kristinsson barnabörn og barnabarnabörn. Heiðrún Jónsdóttir ásamt eiginmanni sínum, Jóhannesi Sigurðssyni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Reyni að læra að njóta frekar en þjóta,“ segir athafnakonan Heiðrún Jónsdóttir frá Húsavík sem verður fimmtug á morgun. Heiðrún Jónsdóttir, lög-maður og athafnakona, fæddist 9. júlí 1969 á Húsavík. „Hidda“ eins og hún var kölluð af f jölskyldunni framan af eða „Heidda“ eins og vinirnir kalla hana, fór 16 ára í Samvinnuskólann að Bifröst þaðan sem hún lauk verslunar- prófi. Að loknu stúdentsprófi frá Versl- unarskóla íslands 1989 hélt hún til vetr- ardvalar í Þýskalandi. Hún lauk síðan kandídatsprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1995, prófi í starfsmanna- stjórnun frá Háskólanum á Akureyri 1999, löggildingu í verðbréfamiðlun 2006 og síðan AMP stjórnunarnámi frá IESE Business School 2017. Í dag starfar Heiðrún sem lögmaður en hefur einkum starfa af setu í stjórn- um nokkurra stærstu fyrirtækja lands- ins. Ræturnar „Ræturnar eru fyrir norðan,“ segir Heiðrún og ljómar öll. „Foreldrar mínir, hjónin Jón Helgi Gestsson og Halldóra María Harðardóttir, búa enn á Húsavík. Þar hafa þau búið í sama húsinu í 50 ár, ef frátalin eru árin 1978-1979 þegar við bjuggum í Svíþjóð. Heiðrún giftist Jóhannesi Sigurðs- syni árið 2014. Hann er dómari við Landsrétt. Hún á tvö börn, þau Jón Hallmar Stefánsson fæddan 1998 og Heiðveigu Björgu Jóhannesdóttur fædda 2005. Stjúpsynir eru þrír, þeir Sigurður Logi lögmaður, Andrés Már viðskiptafræðingur og Tómas Hrafn tölvunarfræðingur. Aðspurð um áhugamál segir Heið- rún þau séu aðallega útivist, ferðalög og fjölskyldan. „Að vera úti í náttúrunni á Íslandi er best af öllu, sérstaklega á sumrin. Trúlega er stutt í sveitastelp- una, en ég var mikið í sveit hjá ömmu Heiðveigu og afa Gesti í Múla í Aðal- dal.“ Annars hefur Skorradalur átt talsverðan tíma hennar frá árinu 2007. „Þar á fjölskyldan fallegt sumarhús. Þar er gott að vera,“ segir hún. „Þegar við ferðumst á Íslandi þá viljum við allra helst vera á fámennum stöðum frekar en yfirfullum tjaldstæðum. Ef ég á að uppljóstra um uppáhaldsstaðinn þá myndi ég segja Flateyjardalur í Þing- eyjarsýslu. Þaðan var Emilía langamma mín en hún var fædd árið 1903. Það er eitthvað við dalinn, söguna og að horfa yfir í Flatey á Skjálfanda. Í fyrra fórum við hjónin á Hornstrandir og gengum um í fjóra daga. Þá er alltaf gott að koma heim á Húsavíkina og nauðsyn- legt að komast á sjóstöng með Geira frænda,“ segir Heiðrún. Heilræðið Uppáhaldsborgir Heiðrúnar eru nokkrar. „Eftir vetrardvöl í Þýskalandi stendur München upp úr ásamt Berlín, en þar var ég stödd þegar múrinn féll í nóvem- ber 1989. Þá er Barcelona frábær borg og ég naut þess að vera þar í náminu við IESE Business School. Áhugaverðasta landið sem við höfum farið til er þó Víetnam.“ En eru ekki miklar annir vegna setu í öllum þessum stjórnum? „Jú, það er rétt en þetta er fjölbreytt og skemmtilegt,“ segir hún. „Það er mér mikilvæg leið- sögn að taka verkefnin alvarlega og gefa engan afslátt af því, en taka mig sjálfa ekki alvarlega um of. Mikilvægasta heilræðið sem ég hef fengið er trúlega frá Heiðveigu ömmu sem var efnislega eitthvað á þessa leið: „Aldrei verða geð- lurða, mér leiðist fólk sem hefur engar skoðanir.“ Ég læt svo lesendum eftir að lesa í hvaða merkingu orðið geðlurða hefur haft í Þingeyjarsýslu á síðustu öld,“ segir Heiðrún brosandi. Afmælið Hvað ætlar athafnakonan að gera af þessu tilefni? „Á föstudagskvöldið síðasta fagnaði ég með fjölskyldunni, vinum og góðu samferðafólki með veislu í Kópavogi. Á sjálfan afmælisdaginn ætla ég hins vegar að láta lítið fyrir mér fara og hafa það rólegt.“ En hvernig leggst þessi aldur í þig? „Ég er þakklát fyrir hvert ár, það er ekkert sjálfgefið. Ég er að reyna að læra að njóta fremur en að þjóta,“ segir afmæl- isbarnið og athafnakonan Heidda frá Húsavík. david@frettabladid.is Amma sagði mér að verða aldrei geðlurða Athafnakonan Heiðrún Jónsdóttir Heiðrún hefur víðtæka reynslu af stjórnarsetu frá árinu 1998. Hún hefur meðal annars verið formaður stjórna Norðlenska, Íslenskra verðbréfa, Gildis lífeyrissjóðs og stjórnarmaður í stjórnum Ístaks, Reiknistofu bankanna, Arion verð- bréfavörslu, Þekkingar, Landssam- bands lífeyrissjóða og Símans. Þá sat hún í stjórn Lögmannafélags Íslands og var varaformaður þess síðasta ár. Heiðrún hefur verið stjórnar- maður í Icelandair frá mars 2018, í bankastjórn Íslandsbanka frá apríl 2016, í stjórn Olíuverzlunar Íslands hf. frá nóvember 2013 og í stjórn Regins frá mars 2019. Það var glatt á hjalla 4. júlí þegar 24 íslenskir læknanemar útskrifuð- ust frá Jessenius-háskólanum í Martin í Slóvakíu. Þetta er annar íslenski útskriftar- árgangurinn. Alls eru um 150 íslenskir nemendur í skól- anum. Runólfur Oddsson, ræðis- maður Slóvakíu, sem hefur haft milligöngu um sam- starfið síðan árið 2012 og hefur fylgst grannt með framvindunni. Hann segir að hækkanir á skólagjöldum í Ungverjalandi hafi gert Slóv- akíu vinsælli en tungumálið er einnig auðveldara. Árið 2012 innrituðust 8 íslenskir læknanemar í Jessenius. Ári síðar var talan rokin upp í 48 og í dag eru Íslendingar næstfjölmennasti hópur erlendra nema, á eftir Norðmönnum. Nú er hægt að þreyta inntökupróf fyrir Jessenius bæði í MK og MA. Námsefnið í háskólanum er kennt á ensku. Anja Rún Egilsdóttir er ein af þeim sem hófu nám árið 2013 og útskrifast nú. Martin er 55 þúsund manna bær en lítill að f latarmáli og allt í göngufæri að sögn Önju. „Við Íslendingarnir höld- um hópinn. Þegar ég var á öðru ári var stofnað sérstakt nemendafélag fyrir íslenska læknanema, FÍLS. Við höldum okkar árshátíð, förum í skíða- ferðir, pöbbkvis og fleiri við- burði. Einnig erum við í sam- skiptum við Landspítalann varðandi verknám.“ Hún segir námið mjög krefjandi. „En þetta er líka búið að vera mikið ævintýri og ég mæli hiklaust með þessum skóla.“ Hún segir langflesta fara heim í kandídatsnám. – ds Stór árgangur Íslendinga útskrifast í Slóvakíu Það var glatt á hjalla hjá íslensku nemunum sem útskrifuðust úr læknanámi frá Jessenius-háskólanum í Martin í Slóvakíu. 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 M Á N U D A G U R14 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 0 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 6 1 -0 6 2 8 2 3 6 1 -0 4 E C 2 3 6 1 -0 3 B 0 2 3 6 1 -0 2 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 0 s _ 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.