Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 08.09.2022, Blaðsíða 10
n Halldór n Frá degi til dags ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@ frettabladid.is , Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is . Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is, MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is, HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Þarna er komin dýnamíkin sem dregur vagninn í þeim lýð- ræðissam- félögum þar sem almenn- ingur á hvað greiðastan aðgang að áhrifum og eiginlegum völdum í landinu. Áskorunin er ávallt sú sama – að við fáum öll jöfn tækifæri. Sigmundur Ernir Rúnarsson ser @frettabladid.is Það er áhyggjuefni að ítrekað sé farið á hendur stjórnmálaöflum hér á landi með alvarlegum hótunum og þaðan af verri dólgshætti, en dæmi í þessa veru eru að verða býsna algeng á síðari tímum. Nú síðast voru stofnanda Sósíalistaflokks Íslands settir afarkostir, en annað tveggja léti hann af yfirlýsingum sínum í ræðu og riti, ell- egar hann mætti hafa verra af – og sá sem hafði í þessum hótunum lét að því liggja að hann vissi vel hvar fjölskylda sósíalistaforingjans hefðist alla jafna við, og mátti túlka þau orð rit- subbunnar að hún myndi allt eins láta til skarar skríða einn daginn. Áður hafa aðrir f lokkar landsins mátt sæta álíka yfirgangi, þar á meðal með skotárásum á höfuðstöðvar sínar og nægir þar að benda á atvik tengd Samfylkingunni, Sjálfstæðis- flokknum og Pírötum, en þá fyrst stóð fólki kannski ekki á sama þegar skotárás var gerð á einkabifreið borgarstjóra við heimili hans í Þingholtunum. Það ber að taka þessar hótanir alvarlega, að ekki sé talað um aðgerðirnar þegar látið er til skarar skríða. Í öllum tilvikum er um aðför að einni meginstoð samfélagsins að ræða, lýð- ræðinu, sem er þegar allt kemur til alls, einn ríkasti þátturinn í sjálfsvitund þjóðarinnar og hugmynd hennar um réttlæti og sanngirni. Auðvitað geta menn verið ósáttir við lýðræðis- lega framvindu, að ekki sé talað um niður- stöður einstaka kosninga, en meginatriðið í kröftugu og áhugaverðu lýðræðissamfélagi er að þar geti fólk og f lokkar þeirra komið ólíkum sjónarmiðum sínum á framfæri og tekist á um það á málefnalegan hátt hvað sé landi og þjóð fyrir bestu, heima fyrir og á alþjóðavísu. Og í því efni er ekki einungis knýjandi heldur líka beinlínis nauðsynlegt að öll stjórnmála- flóran fái notið sín í ábyrgum og uppbyggj- andi málflutningi fyrir umbótum, ellegar viðvarandi ástandi, kjósi menn svo. Þarna er komin dýnamíkin sem dregur vagninn í þeim lýðræðissamfélögum þar sem almenningur á hvað greiðastan aðgang að áhrifum og eiginlegum völdum í landinu. Árásir og aðdróttanir um líkamsmeiðingar á hendur ólíkum flokkum og foringjum þeirra er yfirlýsing um að snúa af braut lýðræðis og tjáningarfrelsis þar sem menn geta um frjálst höfuð strokið í skoðanaskiptum sínum. Yfir- gangur af þessu tagi er krafa um eina skoðun – og enga aðra. Og tilraunir af því tagi eru á ruslahaugi sögunnar. n Skiptar skoðanir Framtíðin er mætt – hlaðin reynslu og þekkingu fyrri tíma sem varðar leið þjóðarinnar til að ná árangri sem eitt atvinnusvæði. Forsenda heildstæðs atvinnu- svæðis er framúrskarandi aðgengi að tæknilausnum og innviðum svo landsbyggðirnar allar, íbúar lands- ins, geti sótt sér menntun og atvinnu við hæfi óháð staðsetningu og skapað okkur samkeppnisforskot í alþjóðaþorpinu. Samfélagið í heild tapar á einsleitni og lykillinn að velgengni eru nýjar skapandi nálganir. Breidd í lýðbreytum á borð við aldur, kyn og upp- runa er atvinnulífinu lífsnauðsynleg sem grunnstoð grósku, nýsköpunar og sjálfbærni. Það þarf þorp til að ala upp barn og í þessu þorpi styðjum við hvert annað og lærum af hvert öðru. Konur á Íslandi eru rétt tæplega helmingur virks vinnuafls og 18,6% þeirra teljast innflytjendur. Fjöl- breytileiki íbúa landsins er raunveruleiki og styrkur. Það skiptir sköpum að konur og reyndar öll kyn hafi jafnt aðgengi að fjármagni, ákvörðunartöku og valdi í stofnunum og fyrirtækjum landsins, óháð atvinnu- vegum. Áskorunin er ávallt sú sama – að við fáum öll jöfn tækifæri. Ákvörðunin um jafnrétti hefur verið tekin á Íslandi og nauðsynlegar aðgerðir eins og jafnt fæðingarorlof, jafnlaunavottun, niðurgreidd dagvistun og hlutfalls- kvóti kynja hafa rutt brautina þar sem jafnréttið er ekki meðfætt og sjálfvirkt heldur meðvituð og mark- viss ákvörðun. Ísland er á fullri jafnréttisvegferð og þrotlausar æfingar munu skila framúrskarandi niður- stöðu. Af hverju? Af því við lifum jú samfélagið sem við viljum vera. Framtíðin er núna og framkvæmdin okkar. Hlúum að barninu í okkur öllum, verum virkir þorpsbúar, fjár- festum jafnt í öllum lýðbreytum og stundum linnu- lausar æfingar í jafnrétti á degi hverjum með mark- vissum mælanlegum aðgerðum. Ísland er skást í heimi í jafnréttismálum og stefnir á afburðamennsku – eins og á öðrum sviðum. Áfram Ísland! n Fjárfestum í framtíðinni og framkvæmum núna Sigríður Hrund Pétursdóttir stjórnarfor- maður FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu gar@frettabladid.is Sjónvarp ársins Leikur íslenska landsliðsins í fótbolta við Holland í fyrrakvöld hélt þjóðinni í heljargreipum. Okkar konur áttu vægast sagt í vök að verjast, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem hvert krafta- verkið á fætur öðru kom í veg fyrir að Hollendingar kæmust yfir og settu íslenska liðið í þá stöðu að komast ekki beint á HM heldur fara erfiða fjallabaksleið í úrslitakeppnina. Svo hart var sótt að okkar konum að það var ekki fyrr en tvær mínútur voru eftir af uppbótartímanum að maður fór að hafa trú á því að liðið myndi ná að hanga á jafnteflinu. Sú trú entist í fimmtán sekúndur. Karlar sem horfa á konur Morguninn eftir leikinn var leikurinn krufinn af knatt- spyrnuspekingum á kaffistofum landsins. Fór karlpeningurinn þar mikinn og hafði skýringar á reiðum höndum eins og alla aðra daga. Leikur Íslendinga var sagður hafa verið hörmulegur og þjálfarinn fékk falleinkunn. Snúið færi sem okkar lið fékk var sagt hafa verið dauðafæri og var á mannskapnum að skilja að þar hefði meðaljóninn skorað af öryggi. Fæstir hafa þó þessir spekingar spilað leik þar sem tuttugu þúsund manns gera að þeim hróp og þátttökuseðill á HM er undir og hundruð millj- óna króna að auki. n � 18. SEPTEMBER � KL. 20.00 � ELDBORG Náðu þér í boðsmiða á HARPA.IS og TIX.IS SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 8. september 2022 FIMMTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.