Tíðindi Prestafélags hins forna Hólastiftis - 01.01.1975, Page 140
143
FRÉTTIR
Hin forna gjöf Gissurar
Félag presta í hinu forna Hólastifti hefir það á stefnuskrá
sinni, að vinna að endurreisn Hólabiskupsdæmis. Um það
segir í 3. grein 'laganna: „Sérstaklega telur félagið það til-
gang sinn að vinna að endurreisn fullkomins biskupsstóls
á Norðurlandi.“
Um mál þetta hafa prestar rætt á fundum sínurn og gert
fleiri samþykktir þar að lútandi. Það hafa fleiri félagssam-
tök á Norðurlandi gert, m. a. Hólafélagið, Fjórðungssam-
band Norðlendinga, sýslunefnd Skagafjarðarsýslu. Einstakl-
ingar úr hópi lærðra og leikra hafa tekið í sama streng.
Þessum óskum hefir biskup íslands herra Sigurbjörn Ein-
arsson mætt með því að gera þær að sínum eigin. Á presta-
stefnu 1909 sagði hann m. a.: „Væri það ekki maklegt, að
Norðlendingar fengju biskupsstól sinn aftur?“ Og hann gat
þess í tilefni þjóðhátíðarársins, að það væri afmælisgjöf,
sem hann vildi kjósa þjóð sinni og kirkju til handa. Bisk-
upinn á þar sess með Gissuri Isleifssyni biskupi sem árið
1106 gaf Norðlendingum biskupsstólinn og gerði að öðru
biskupsdæmi í landinu.
Hér er þess að geta, að nriverandi kirkjumálaráðherra Ól-
afur Jóhannesson skýrði frá því sl. haust í boði, sem hann
hélt kirkjuþingsmönnum í ráðherrabústaðnum við Tjarn-
argötu í Reykjavík, að það væri ætlun sín að vinna að end-
urreisn Hólastóls. — Um það er skoðanamunur meðal
áhugamanna um mál þetta, hvort biskup norðan lands eigi
að sitja að einhverju eða öllu leyti á Hólum. Akureyri er
miðsvæðis í umdæminu og hefur auk þess tekið við því hlut-
verki Hóla að vera höfuðstaður Norðurlands. Því er eðli-
legt, að sá staður komi mjög til greina sem framtíðar bisk-
upssetur. Ákvörðun um endurreisn biskupsdæmisins er í
höndum Alþingis, eins og lög þau, er kirkjuna varða.
P. S.