Helgarpósturinn - 18.12.1981, Blaðsíða 6
6
Frumsýning
í Háskólabíói
og í Borgarbíói
fyrir norðan —
á annan í jólum
Föstudagur 18. desember 1981 h^lgsrpásturínn
Atriöi úr kvikmyndinni „Jón Oddur og Jón Bjarni” — tvlburarnir Páll og Wilhelm, þ.e. Jón O. og Jón B. borða grautinn undir yfir-
umsjón Soffiu frænku sem Sólrún Yngvadóttir leikur.
JÓN ODDUR OG JÓN BJARNIJÓLAMYND
Tveir grallarar úr
Hliðahverfinu, tviburarnir
Páll Jósefs og Wilhelm Jósefs
Sævarssynir, niu ára, eru
orðnir kvikmyndastjörnur.
Þeir leika aðra tvibura sem
heita Jón Oddur og Jón Bjarni
i kvikmynd eftir Þráin
Bertelsson, en sú mynd er
vitanlega byggð á sögum
Guðrúnar Helgadöttur um
hina stórmerku tvibura,
fjölskyldu þeirra og ævintýrin
sem spennandi hversdagslifið
býður upp á.
Fjölskyldumyndin, „Jón Oddur og Jón
Bjarni” verður frumsýnd á annan í jólum
i Háskólabió og i Borgarbiói á Akureyri.
Með þeirri frumsýningu lýkur formlega
rúmlega ársvinnu við gerð kvikmyndar,
sem hlýtur aökallast „stórmynd” á okkar
islenska mælikvarða. Þrjátiu leikarar
fara með hlutverk i myndinni, en auk þess
koma um tvö hundruð aukaleikarar fram.
„Jón Oddur og Jón Bjarni” er tekin i
Reykjavik, á Seltjarnarnesi og svo i
Hveragerði og i Grafningi og Þingvöllum,
þvi fjölskyldan fer i ferðalag út úr bæn-
um. Leikurinn berst þannig um
nágrennið, lika upp i Borgarfjörð, þegar
tviburarnir fara i Vatnaskóg. Viö spurð-
um Þráin Bertelsson leikstjóra hvort
myndin væri kannski eins konar skýrsia
um daglegt lif reykviskrar fjölskyldu sem
á uppátækjasama tvibura? „Já, ég vona
að myndin sé þaö — skýrsla um lif venju-
legrar fjölskyldu hér og viða annars
staðar, bæði hér á landi og kannski i
nágrannalöndunum. Myndin er um
venjulega fjölskyldu — sem þó er að þvi
leytinu ööruvisi að hún á tviburuna Jón
, Odd og Jón Bjarna.”
Nú nutu bækur Guðrúnar Helgadóttur
fádæma vinsælda, ekki siöur meðal
fullorðinna en barna — er myndin lika
fyrir alla fjölskylduna?
„Já, þetta er fjölskyldumynd. Hún er
fyrir börn og fullorðna, fjallar um atburði
daglegs lifs, atburði sem flestir kannast
við úr eigin lifi. Það eru ævintýri sem
virðast kannski i sjálfu sér litil, en eru i
raun þau ævintýri sem flestir upplifa sem
stór. Það geristótal margt í myndinni. Ég
vonaa mönnum finnist myndin fjölbreyti-
leg og lifandi og gamansöm. En eins og
allt sem er veruiega skemmtilegt, þá er
alvörunni blandað þar saman við.
Nú — við teljum að þessi mynd standist
ströngustu kröfur sem gerðar eru til
kvikmynda tæknilega — að minnsta kosti
hér á landi. Þótt „Jón Oddur og Jón
Bjarni” kallist „fjölskyldumynd”, þá
þýðir það ekki að eitthvað sé til sparað,
eins og stundum hefur viljað brenna við
þegar barnaefni er annars vegar”.
— Hvernig féll þér að leikstýra börn-
um?
„Það sem skilur kannski á milli barna
og fullorðinna er, aö það þarf aö leggja
meiri vinnu viö aö móta börnin i hlutverk-
unum. Þau hafa vitanlega ekki neinar
mótaðar hugmyndir þegar að verkinu
kemur. Og svo er það vitanlega spurning
um þolinmæði. Ég held að þetta hafi allt
farið vel hjá okkur, þvi að strákarnir, Páll
og Wilhelm eru ákaflega stæltir, bæði
andlega og likamlega.”
Gamalkunnug atvik og ný
Sem fyrr segir byggir kvikmyndin „Jón
Oddur og Jón Bjarni” á þremur sögum
Guðrúnar Helgadóttur, en Þráinn
Bertelsson skrifaði handrit fyrir mynd-
ina.byggtá þessum sögum. Atburðarásin
er nokkuð frábrugðin þvi sem er i bókum
Guðrúnar, en mörg atvikanna eru þau
sömu og nokkur ný koma til, sem Þráinn
sagði „að gætu vonandi eins vel verið i
bókunum — og hlaut enda blessun
Guðrúnar”. Persónurnar i myndinni eru
þær sömu i bókunum, þannig að
aðdáendur bókanna um þá heiðurs-
grallara Jón Odd og Jón Bjarna eiga eftir
aö sjá ljóslifandi á hvita tjaldinu
ógleymanlegar persónur eins og ömmu
dreka, Kormák afa, Soffiu og hann Simba
og önnu Jónu og svo náttúrlega pabba og
mömmu tviburanna. Það er Steinunn Jó-
hannesdóttir sem leikur mömmuna og
Egill ölafsson sem leikur pabba þeirra.
Herdis Þorvaldsdóttir leikur ömmu dreka
og Gisli Halldórsson ieikur Kormák afa.
Laufey Sigurðardóttir leikur önnu Jónu,
Sólrún Yngvadóttir Soffiu og Tómas
RagnarssonerSimbi. Auk þessara birtast
á tjaldinu ýmsir frægir leikarar og marg-
ir minna frægir. Þar á meðal má nefna
Sigurö Hallmarsson, Asdisi Skúladóttur,
Jón Sigurbjörnsson, Ketil Larsen, Sigriði
Hagalin og Þórhall „Ladda” Sigurðsson.
Kristin Pálsdóttir klippti myndina, Bald-
ur Hrafnkell kvikmyndaði og Tinna
Gunnlaugsdóttir var aðstoðarleikstjóri.
Egill ólafsson samdi tónlist og Sólveig
Eggersdóttir annaðist búningagerð.
Dýr mynd —
fullkomin tæki
„Jón Oddur og Jón Bjarni” er
breiðtjaldsmynd ilitum og við kvikmynd-
unina, voru notuð fullkomin tæki, sem
kvikmyndafyrirtækið sem myndina gerði,
Norðan 8 h.f., leigði hingað frá Þýska-
landi. Helgi Gestsson framkvæmdastjóri
myndarinnar, tjáði okkur aö kostnaður
við gerö hennar hefði verið um þrjár
milljónir nýkróna og reiknaði hann með,
aö þeir þyrftu að fá um einn þriöja allra
Islendinga til að sjá myndina, til að
sleppa hallalaust Jrá tiltækinu. Sem fyrr
segir verður myndin um tviburuna Jón
Odd og Jón Bjarna og ættingja þeirra og
vini frumsýnd á annan i jólum, bæði i
Háskólabiói og Borgarbiói á Akureyri.
— GG.
Jón Oddur og Jón Bjarni (Páll Jósefs og Wilhelm Jósefs) viö sjúkrabeö Kormáks afa
(Gisli Halldórsson). Auk þeirra má sjá ömmu dreka (Herdis Þorvaldsdóttir),
Pabba (Egill Ólafsson) og Mömmu (Steinunn Jóhannesdóttir).
Tveir nýir leikarar
á stjörnuhimninum
Hinar nýsköpuðu
kvikmyndastjörnur, Páll
og Wilhelm Jósefs
Sævarssynir, eru niu ára
heiöursmenn úr Hliöunum
og eru amk. nákvæmlega
eins og blaðamaður hafði
imyndaö sér þá Jón Odd og
Jón Bjarna. Sjálfir fullyröa
þeir, að þeir séu ekki lakari
hrekkjalómar og sögöu aö
vinnan við kvikmyndina
hefði verið skemmtileg.
Þeir stunda reyndar nám i
Hliöaskóla og máttu varla
vera að þvi að koma i viötal
við Helgarpóstinn sökum
anna, en létu þó til leiðast.
Viö spuröum hvort ckki
hefði veriö erfitt aö læra
textann utanbókar?
Willi: Já.
Palli: Nei. Svo fengum við
stundum að búa til sjáifir
pínulitið inn i.
Ætlið þið að verða
leikarar, þegar þið verðið
stórir?
Palli: Veit það ekki,
kannski leikari, kannski
lögga.
Willi: Lögga eða leigubila-
maður.
Hvers vegna lögga?
Palli: Held það sé gaman.
Willi: Þær eiga búning.
Hvernig lfst ykkur á að
verða bióstjörnur — haldið
þið að þið fáið nokkurn frið
á götunum eftir þetta?
Palli: Ætli þaö. Það verður
hundleiðinlegt.
Willi: Gerir ekkert til.
Eruð þið prakkarar eins
og tviburarnir i myndinni?
Palli: Já,okkur finnst mest
gaman að hringja á dyra-
bjöllum og hlaupa svo.
En hvaðgerist ef þiö eruð
gripnir?
Palli: Við erum ekki
gripnir. Ekki ég.
Willi: Viö erum fljótir að
hlaupa.
Palli: Ég er fljótur að
hlaupa.
En eitthvaö geriö þið
fleira en hringja á
dyrabjöllur hjá fólki?
Palli: Við berum út blöð
stundum.
Willi: Og seljum.
Ruglast fólk ekki oft á
ykkur af þvi þið eruð svo
likir?
Palli: Jú,jú. Við leikum
stundum á fólk.
Willi: Fyrst fer Palli og
rukkar og svo kem ég á eft-
ir.
Hvað er skemmtilegast
að gera i skólanum?
Palli: Reikna og lita.
Willi: Ekki reikna, skrifa
og lesa.
Hvað fannst ykkur
erfiðast að gera i
myndinni?
Palli: Það var alltaf verið
aö taka aftur og aftur.
Willi: Það var allt i lagi.
Verður ekki gaman að
sjá sjálfan sig á kvikmynd?
Palli: Jú.
Willi: Nei.
— GG.