Helgarpósturinn - 01.08.1985, Blaðsíða 9

Helgarpósturinn - 01.08.1985, Blaðsíða 9
Með tilskipan ráðherra um auk- ið vægi áfengisvarnanefnda í þess- um málum hefur þess orðið vart að nefndirnar eru ekki jafnfljótar að mæla gegn leyfum. Sigurður Jörgensson sagðiað fundum hefði fjölgað og myndi fjölga mikið í nefndinni. „Það er ljóst að við verðum að skoða málið frá fleiri hliðum en áður, þótt það sé ekki á okkar verkefnalista; það eru auð- vitað áfengisvarnirnar sem að okkur snúa.“ Viðmælendur HP úr hópi áfeng- isvarnanefndanna vildu undir- strika að valdið væri ennþá í höndum ráðherra, þótt hann hlustaði meira á viðhorf nefnd- anna en ef til vill áður. „Nefndirn- ar hafa ekkert vald,“ sagði Ólafur Haukur Arnason áfengisvarna- ráðunautur. „Það er eftir sem áður ráðherrans." Engu að síður er ljóst að sumar nefndir hika við að mæla með synjun við ráðherra. Þannig end- urskoðaði t.a.m. áfengisvarna- nefnd Reykjavíkur fyrri afstöðu varðandi veitingastaðinn „Uppi og niðri". Nefndin hafði i fyrstu mælt á móti ieyfi, en umsóknin var ítrekuð af hálfu eigenda og í annarri lotu ákvað nefndin að mæla ekki gegn leyfisveitingu. Helgarpósturinn hefur sannfrétt að ástæður þessara skoðanaskipta hafi legið í því, að fulltrúum í áfengisvarnanefnd hafi verið gerð grein fyrir því, að slíkir fjármunir væru í húfi hjá eigendum, að margar fjölskyldur færu á hausinn ef leyfið fengist ekki. Það var og ofarlega á baugi hjá fulltrúum áfengisvarnanefndanna að það væri afleit staða fyrir þá að standa frammi fyrir því að aðilar hefðu sett milljónir króna í hús- næði og innréttingar með tiltek- inn rekstur í huga, þar á meðal vínveitingar, og svo væri það sett á herðar áfengisvarnanefndanna að brjóta allt niður með því að vera á móti áfengissölu. Veitingahúsaeigendur verða að fara í gegnum fleiri síur en áfengis- Páll Daníelsson, formaður áfengisvarna- nefndar I Hafnarfirði, segir nefndina eiga að vera á móti leyfisveitingu. varnaráð. Þeir þurfa líka vottorð frá heilbrigðiseftirlitinu og síðan frá matsnefnd veitingahúsa. For- maður matsnefndarinnar, Pór- hallur Halldórsson, sagði að ýmsar kröfur væru gerðar um að- búnað á stöðum þar sem eigendur hygðust sækja um leyfi til vínsölu. Sérstaklega væru gerðar kröfur um fjölbreytileika í mat. En það er ekki fyrr en veitinga- staðir hafa tekið á sig endanlega mynd, fjárfrekum framkvæmdum er lokið og umbeðnir stimplar fengnir, að spurningin um vínveit- ingaleyfi er tekin upp. Margar milljónir Siggja undir Helgarpósturinn hafði samband við fjölmarga veitingahúsaeigend- ur, og þá einkanlega þá sem ný- verið hafa standsett húsnæði sitt, og spurði um kostnað við fram- kvæmdir. Vilhjálmur Svan, einn eigenda „Uppi og niðri" sagði að innréttingar hefðu kostað milljón- ir króna. „Þetta hefur verið erfið bið,“ sagði hann aðspurður um þá tilfinningu að hafa margra millj- óna króna húsnæði undir höndum en ekki leyfi til alhliða veitinga. „Við höfum bókstaflega gengið um gólf í heilan mánuð og nagað neglurnar." Það er hins vegar eitur í beinum áfengisvarnanefnda, þegar veit- ingamenn halda því fram að vín- veitingar skipti sköpum um fjár- hagsafkomu staðarins. Það sýni samtengingu Bakkusar og pen- ingaaflanna. „Vínveitingahúsaeig- endur hafa mikið umleikis," sagði Hilmar Jónsson, stórtemplar og formaður áfengisvarnanefndar Keflavíkur. „Þeir líða ekki skort, að því er virðist." „Afengisauðvaldið" var sömu- leiðis orð sem viðmælendur HP í hópi þessara aðila notuðu talsvert. Það virðist hins vegar deginum ljósara að þeir staðir sem vilja telja sig fyrsta flokks og geta ekki boðið upp á áfengi, verða undir í sam- keppninni. „Maður auglýsir ekki Hilmar Jónsson stórtemplar segir dóms- málaráðherra hafa tekið rökum templara. stað sem fyrsta flokks ef ekki er þar fáanleg mjólk eða gosdrykkir," sagði Vilhjálmur Svan Jóhannes- son. „Létt vín tilheyrir t.a.m. hjá fjölmörgum þegar þeir fara út að borða. Og veitingahús verða að getaboðiðupp á það sem fólk vill.“ Ætli ég verði ekki að loka Einn þeirra níu umsækjenda sem bíða nú afgreiðslu dómsmála- ráðherra er Sjöfn Gunnarsdóttir, sem komið hefur upp smekkleg- um veitingastað í Hafnarfirði, sem hún hefur nefnt Riddarann. Um- sókn Sjafnar er nú hjá áfengis- varnanefnd Hafnarfjarðar og sam- kvæmt orðum formanns þeirrar nefndar, Páls Daníelssonar, hér á undan, má ganga út frá því sem gefnu að nefndin mæli með synj- un leyfisins. Afstaða bæjarstjórnar skiptir þá ekki máli. Ráðherra mun ekki veita leyfið. „Það er hrikalegt ef ég fæ ekki leyfið," sagði Sjöfn Gunnarsdóttir í samtali við HP. „Ætli ég verði ekki að loka.“ Hún undirstrikaði að Ridd- arinn væri engin krá eða ,,pub“, heldur úrvals veitingastaður í mat og drykk. „Ég hef byggt þennan stað upp með það í huga að geta verið með allar veitingar, þ.m.t. vínveitingar, og m.a. af þeim ástæðum lagt meira í innréttingar en ella, enda kröfurnar meiri þeg- ar svo er. Þetta hefur kostað mig margar milljónir og það væri grát- legt að þurfa að leggja niður skott- ið núna, rétt eftir að ég er búin að opna.“ Sjöfn nefndi sem dæmi að á næstu dögum væri væntanlegur hópur erlendra ferðamanna sem kæmu í mat beint utan af Keflavík- urflugvelli. Þeir hefðu óskað eftir léttu víni með matnum. „Á ég ekki að fá tækifæri til að sinna ósk- um viðskiptavina minna,“ spurði eigandi Riddarans. Atvinnugrein í hættu Tölur frá vínveitingahúsaeig- Ingimar Eydal gegnir lykilhlutverki á Akur- eyri; stúkumaður og formaður áfengisvarna- ráðs. endum um kostnað við uppbygg- ingu og innréttingar staðanna voru á bilinu frá fjórum til tólf milljónum króna, þannig að ljóst er að mikið liggur undir. Og veit- ingamaður í biðstöðu segir: „Og samkeppnin er hörð. Eg hafði fengið vilyrði frá sveitarstjórninni hérna um að mælt yrði með leyfi til ráðuneytis og treysti á það þeg- ar ég lagði peningana í uppbygg- ingu. Síðan leyfir ráðherra sér það með einni handasveiflu að taka valdið úr höndum bæjarstjórna og setja í hendur bindindismönnum í bænum, sem mega hvergi vín sjá. Hvernig er hægt að una slíkum hentistefnuvinnubrögðum?" Og Erna Hauksdóttir, fram- kvæmdastjóri Sambands veitinga- og gistihúsaeigenda, sagði í þessu sambandi að auðvitað væri ekki hægt að halda úti víðtækum og öflugum atvinnurekstri á þessu sviði, þegar skyndiákvarðanir og framsal á valdi til ákveðinna skoð- anahópa í þjóðfélaginu kipptu stoðum undan rekstrarmöguleik- um. „Við hjá SVG höfum harðlega mótmælt þessum vinnubrögðum," sagði Erna Hauksdóttir. 3,3 lítrar á mann En hver er áfengisneysla íslend- inga? Hrafn Pálsson hjá heilbrigð- isráðuneytinu sagði erfitt að segja til um það hve stór hópur íslend- inga neytti víns, hins vegar hefðu ýmsar kannanir í framhaldsskól- um leitt í ljós að 80—90% ung- menna hefðu neytt áfengis. Ekki væri fjarri lagi að álykta að svipuð hlutföll væru hjá hinum sem eldri væru, þótt ekkert lægi fyrir í þeim efnum. Aftur á móti eru til tölur um heildarneyslu áfengis hér á landi. Samkvæmt þeim drakk hver íslendingur 3,3 lítra af alkó- hóli á síðasta ári. 10 árum áður var þessi tala 3,04 lítrar. Á þessu tíu ára tímabili, frá 1974—1984 fjölg- aði vínveitingastöðum úr því að vera 26 talsins í 87; geysileg fjölg- un á þeim vettvangi sem haldið hefur áfram fram á mitt þetta ár. Ekki virðist þó bein samsvörun á milli fjölgunar vínveitingastaða og aftur stóraukinnar áfengisneyslu — neyslan hefur ekki aukist svo mikið að hlutfalli. Fyrir rúmum 100 árum (1880) var áfengisneysl- an 2,38 lítrar á mann og voru þá engir vínveitingastaðir í stíl við þá sem nú eru. Erna Hauksdóttir hjá Sambandi veitinga- og gistihúsaeigenda sagði að tölur sýndu glögglega að áfengisneysla ykist ekki með fjölg- un vínveitingastaða, enda væri staðreyndin sú að aðeins 15% af heildarneyslu áfengis færi fram á slíkum stöðum; afgangurinn sennilega í heimahúsum. „Hitt er rétt að neysluvenjur hafa breyst, þannig að algengara er að fólk fari út að borða og dreypi á léttu víni með og mikil aukning í sölu léttra vína staðfestir þetta og sannar. Er það svo slæm þróun?" Áfengisneysla hér á landi í lítr- um talin hefur rokkað til síðustu fimm árin — á því tímabili sem vínveitingastöðum hefur fjölgað hvað örast. Neyslan var 3,1581. ár- ið 1980, en þá voru vínveitinga- staðir 37 talsins. Neyslan var 3,133 1. 1982 og veitingastaðafjöldinn þá orðinn rúmlega 50. Síðan fór þessi tala upp í 3,31. á síðasta ári eins og fyrr greindi. Sveitarstjórnarmenn halda því mjög á lofti að á rétt þeirra sé gengið með vinnubrögðum dóms- málaráðherra. Áfengisvarna- nefndirnar séu undirnefndir sveit- arstjórna og ráðgefandi. Talsmenn nefndanna hafna þessu og segja að þótt sveitarstjórnir kjósi í nefndirnar þá séu þær alls ekki settar undir viðkomandi sveitar- stjórn. „Við höfum sjálfstætt verk- svið," sagði t.a.m. Páll Daníelsson hjá áfengisvarnanefnd Hafnar- fjarðar, „og erum ráðgefandi fyrir langtum fleiri en bæjarstjórn. Við erum því ekki dæmigerð undir- nefnd bæjarstjórnar. Það er af og frá.“ Var staða Jóns í stúkunni í hættu? En eftir stendur spurningin: Hvað kom til að Jón Helgason dómsmálaráðherra ákvað skyndi- lega að breyta vinnureglu í ráðu- neytinu í þessum málum? Við- mælendur Helgarpóstsins, hvort sem þeir voru úr röðum bindindis- manna eða veitingamanna, voru um það sammála að ráðherra hefði ekki staðist þá gagnrýni samherja sinna í bindindishreyf- ingunni að hann væri orðinn sá dómsmálaráðherra sem hefði skrifað upp á flest vínveitingaleyfi. „Já, okkur fannst hann alltof eftir- gefanlegur," sagði Hilmar Jónsson stórtemplar og sagði aðspurður að bindindismenn hefðu ekki hvað síst gert kröfur til Jóns Helgasonar þar sem hann væri stakur bindind- ismaður og stúkumaður að auki. „Við gagnrýndum Jón mikið og ég er ekki frá því að hann hafi ekki staðist frýjunarorð okkar og því ákveðið að stíga á hemlana." — Gengur þad fyrir félaga í stúku eins og Jón Helgason ad mœla með áfengisveitingum í einni eða annarri mynd? Hefði það ekki þýtt brottrekstur úr Góð- templarareglunni ef hann hefði haldið áfram að afgreiða leyfi til vínveitinga? „Ekki skal ég um það segja. Hins vegar viljum við vissulega að okkar fólk sé á móti áfengi og þar yar Jón ekki nógu harður til að byrja með. Ég man í þessu sam- bandi að Jón Kjartansson, for- stjóri Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, sagði sig úr hreyfingunni hjá okkur þegar hann tók við starfi sínu. Enda getur maður ekki þjónað tveimur herrum," sagði Hilmar Jónsson stórtemplar. Sókn Góðtemplara Samkvæmt þessu hefur dóms- málaráðherra haldið stöðu sinni innan Góðtemplarahreyfingarinn- ar eftir ákvörðun sína frá 10. júní síðast liðnum. Hvort það hafi haft einhver áhrif á ákvörðun ráðherra verður ekkert fullyrt um. Hitt er ljóst að félagar hans í Góðtempl- arareglunni sem eru 900, eru víða fjölmennir í áfengisvarnanefnd- um um allt land. Sambandið fer því sennilega batnandi milli ráð- herra og félaga í bindindishreyf- ingunni. Veitingahúsaeigendur eru hins vegar óánægðir; sveitar- stjórnarmenn súrir. Almennings- álitið er erfiðara að spá í. Óhætt er að fullyrða að mikill meirihluti al- mennings smakkar vín og vill hafa aðgang að þeim veigum. Hvort fólk telur að nóg sé komið af út- sölustöðum og vínveitingastöðum skal ósagt látið. En bindindismenn hafa óneitanlega tekið stjórn þess- ara mála í sínar hendur. Þeirra er mátturinn. Dýrðin er hjá ráð- herra. HELGARPÓSTURINN 9

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.