Morgunblaðið - 04.04.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.04.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 4. APRÍL 1989 19 Viðstaddir afhendinguna voru frá vinstri Hjálmfríður Þórðardóttir úr stjórn Dagsbrúnar, Sigurð- ur Björnsson Iæknir, Ólafiir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Krabbameinsfélags íslands, Almar Grímsson formaður félagsins, sem tók við gjöfínni frá Ólafi Ólafssyni gjaldkera Dagsbrúnar, Páll Valdimarsson, Guðmundur J. Guðmundsson og Leifiir Guðjónsson úr stjórn Dagsbrúnar. Daffsbrún gefiir Krabba- meinsfélaginu milljón VERKAMANNAFELAGIÐ Dagsbrún hefur gefið Krabba- meinsfélagi íslands eina milljón króna, til rannsóknarstofu fé- lagsins í sameinda- og frumulíf- fræði. Að sögn Guðmundar J. Guð- mundssonar formanns Dagsbrún- ar, er féð veitt úr styrktarsjóði Dagsbrúnar, sem stofnaður var 1906 með það markmið að styrkja félagsmenn í veikindum. Allt frá árinu 1961 hefur 1% af launum félagsmanna runnið í sjóðinn og er sjóðurinn nú nokkuð öflugur. Nýtt ákvæði i lögum sjóðsins heimilar styrkveitingar til for- varna og hefur slíkur styrkur ver- ið veittur áður. „Ein milljón hrekkur skammt þegar haft er í huga að nær allar fjölskyldur í landinu hafa kynnst þessum sjúkdómi í einhverri mynd,“ sagði Guðmundur J. Guð- mundsson. „Þessi gjöf er fyrst og fremst til að minna á að við berum virðingu fyrir ykkar starfi og að við erum á ykkar bandi.“ Almar Grímsson formaður Krabbameinsfélags íslands tók við gjöfinni fyrir hönd félagsins og sagði það aðdáunarvert fram- tak þegar stéttarfélag ákvæði að styrkja rannsóknir á krabbameini. Vonandi ættu fleiri félög eftir að fylgja þessu fordæmi. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins: „Leiðari Alþýðublaðsins frekar þunnur í roðinu“ „ÞESSI leiðari staðfestir að rit- stjóri blaðsins metur það rétti- lega svo, að hann sé fijáls að sjálfstæðu mati á stjórnmála- ástandinu. Hann skrifar augljós- lega á þann veg, að hann verður ekki sakaður um það að vera einhver leigupenni ílokksyfir- valda, og það út af fyrir sig er gott,“ sagði Jón Baldvin Hannib- alsson, formaður Alþýðuflokks- ins, er hann var spurður álits á leiðara Alþýðublaðsins frá því sl. laugardag, en þar eru störf AI- þýðuflokksins í þessari ríkis- sýórn gagnrýnd harðlega undir fyrirsögninni: „Aðra „Eyðimerk- urgöngu“?“. Jón Baldvin sagðist í annan stað vilja segja þetta: „Mér fínnst leiðar- inn vera frekar þunnur í roðinu, út frá greiningu á ástandi. Auk þess vildi ég gjarnan sjá meiri pólitíska viti borna analysu á síðum Al- þýðublaðsins." I leiðaranum segir orðrétt: „Fylgi Alþýðuflokksins er sama sem ekki neitt o g hlýtur að leiða til innri íhug- unar foyrstufólks flokksins. Meðrík- isstjórnarþátttöku í hitteðfyrra átti að ljúka „eyðimerkurgöngu" Al- þýðuflokksinsv eins og formaðurinn komst að orði. Nú virðist stefna í aðra ekki síðri göngu um myrkviðu stjórnmálanna." Síðar segir: „Jóni Baldvin og öðrum forystumönnum (og konum) hefur ekki tekist að styrkja innviði flokksins og vekja tiltrú út á við sem sameiningarafl jafnaðar- Borgarmálaráð Alþýðuflokks- ins samþykkti á fimdi sínum á Iaugardag harðorða ályktun, þar sem menntamálaráðherra er gagnrýndur fyrir að hafa aug- lýst stöðu Sjalhar Sigurbjörns- dóttur, skólastjóra við Öldusels- skóla, lausa til umsóknar. „Borgarmálaráð Alþýðuflokksins fordæmir harðlega þá pólitísku að- för sem menntamálaráðherra stendur fyrir gegn Sjöfn Sigur- björnsdóttur. Þá brýtur hann gegn lýðræðinu með því að sniðganga manna. Gangan mikla inn í sæludal- inn hófst eiginlega aldrei. Og fram- undan blasir sama „eyðimörkin" verði ekkert að gert.“ Niðurlag leiðarans hljómar svo: „Sósíaldemókratísk hugsjón er hljómfegurri en svo að rúmist fyrir í einni persónu. Jafnvel þó að hún sé að vestan.“ fræðsluráð og borgarstjóm í þessu máli,“ segir í ályktun ráðsins. „Alþýðuflokkurinn getur ekki tekið þátt í að innleiða slík vinnu- brögð í íslenzk stjómmál. Borgar- málaráðið skorar á þingflokk og ráðherra að standa gegn þessari aðför og þola ekki þann órétt, sem í henni felst.“ í borgarmálaráðinu sitja tíu manns, allir þeir sem sitja í ráðum og nefndum Reykjavíkurborgar á vegum Alþýðuflokksins. Borgarmálaráð Alþýðuflokksins: Ráðherra gagnrýndur OSRAM 2486.-kr sparnodur * meö Dulux El sparnaöar perunni. Til dæmis Dulux El 15w • Sparar 2486 kr. í orkukostnaði miöaö við orkuverö Rafmagns* veitu Reykjavíkur 5,18 kr/kw.st. • Áttföld ending miöaö við venju- lega glóperu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.