Morgunblaðið - 02.10.1999, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ
42 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 1999
Lyfjataka
Rúmlega 60% sjúklinganna
höfðu „miklar áhyggjur" af
því að fá röng lyf.
Unglingar
Á unglingsárum breytist
dægursveiflan sem stjóm-
ar svefnvenjum fólks.
Mataræði
Helmingur bandarísku
þjóðarinnar of feitur
innan fárra ára.
Háþrýstingur
Því hæmi sem blóðþrýst-
ingur var í upphafí því
meiri beinhrömun.
Þreyttir
táningar
þurfa
meiri
svefn
Washington, AP.
TÁNINGURINN fullyrðir að hann geti ekki
sofnað fyrr en eftir miðnætti. Á hverjum
morgni þarf hróp og köll til að vekja hann
svo hann verði ekki of seinn í skólann. Hon-
um finnst mannkynssögutímarnir skemmti-
legir, en það era fyrstu tímarnir og hann á til
að sofna í þeim.
Svona er tilvera milljóna skólabarna og
foreldra þeirra. Sé einhverjum huggun í að
vita það, þá fullyrða vísindamenn að ekki sé
við táningana að sakast; ástæða óreglulegs
svefns táninga er líffræðileg, og það leysir
engan vanda að skipa unglingnum að fara
íyrr í háttinn.
Umfangsmiklar rannsóknir á svefnvenjum
unglinga hafa leitt í ljós að þeir þurfa meiri
svefn - níu klukkustundir og fimmtán mínút-
ur - en þær átta klukkustundir sem mælt er
með fyrir fullorðna. En þegar líður á kyn-
þroskaaldurinn leysir líkaminn hormónið
melatónín, sem hefur áhrif á svefn, úr læð-
ingi á öðram tímum en venjulega, og þá
breytist hin venjulega dægursveifla sem
stjórnar svefnvenjum fólks. Þótt táningurinn
fáist til að slökkva ljósið klukkan tíu er allt
eins líklegt að hann liggi vakandi fram yfir
miðnætti.
í mörgum framhaldsskólum í Bandaríkj-
unum hefst kennsla klukkan 7.15 og ungling-
ar þar í landi sofa að meðaltali 6,5 klukku-
stundir á nóttu, sumir mun minna. Svefn-
leysi dregur úr minni og heftir sköpunargáf-
una, þannig að þreyttir unglingar geta ekki
lært mikið.
Svefnskortur venst ekki
Einnig bendir margt til þess að nægur
svefn sé mikilvægur fyrir öflugt ónæmiskerfi.
Það gerir svo illt verra, að margir vansvefta
unglingar aka í skólann á morgnana, þegar
þeir vildu helst vera sofandi. Ekki er vitað
hversu mörg bílslys, þar sem unglingar eiga í
hlut, má rekja til svefnskorts, en vísinda-
menn segja nauðsynlegt að rannsaka það.
Talið hefur verið að líkaminn aðlagist
minni svefni, en dr. Mary Carskadon við
Brown-háskóla í Bandaríkjunum segir svo
ekki vera. Hún hefur gert ítarlegar rann-
sóknir á svefnvenjum unglinga. „Heilinn í
manni venst þessu ekki,“ segir hún.
Komið hefur í Ijós, að margir unglingar
geta sofnað djúpum svefni mun hraðar en
fullorðnir. En um hálfátta á kvöldin hætta
unglingarnir að geta blundað, þegar hin
óvenjulega dægursveifla þeirra fer að hafa
áhrif og þeir verða glaðvakandi. Þessar nið-
urstöður hafa leitt til þess að í sumum skól-
um í Minnesotaríki hefur byrjun skóladags-
ins verið seinkað frá 7.20 til 8.30 á morgnana.
Þótt enn sé of snemmt að fullyrða nokkuð
segja rannsakendur að einkunnir nemenda
hafi hækkað og dregið hafi úr hegðunar-
vandamálum.
Hvað er „borderline“persónuleikaröskun?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆÐINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: í niðurstöðum geð-
rannsókna, sem gerðar era af
ýmsu tilefni, m.a. fyrir dómstóla,
kemur stundum fram að viðkom-
andi einstaklingur sé haldinn per-
sónuleikaröskun. Ef slík röskun
er nánar skilgreind sem
„borderline“ þykir það bera vott
um alvarlegt geðrænt ástand,
sem svari illa meðferð. í hverju
felst „borderline" persónuleika-
röskun aðallega?
Svar: í þessum pistlum hefur
nokkrum sinnum verið reynt að
svara spurningum um persónu-
leikaröskun, bæði almennt og af
sérstöku tagi. Aldrei hefur þó
sérstaklega verið fjallað um svo-
kallaða „borderline" röskun. Eins
og nafnið bendir til er þetta sjúk-
dómsástand á einhvers konar jað-
arsvæði í geðsjúkdómakerfinu og
þá helst á milli geðveiki (psyklos-
is) og hugsýki (neurosis). Islensk
heiti á þessu sjúkdómsheilkenni,
t.d. hambrigðapersónuleikarösk-
un og jaðarheilkenni, hafa enn
ekki náð fótfestu í málinu.
Megineinkenni persónuleika-
raskana, sem skilur þær frá öðr-
um geðsjúkdómum, er að ein-
kenni þeirra koma niður á um-
hverfi sjúklingsins, öðra fólki,
fremur en honum sjálfum. Hann
lagar sig illa að siðum og reglum,
hefur laka stjórn á hvötum sínum
og löngunum og á erfitt með að
tengjast öðrum nánum tilfinn-
ingaböndum.
Alþjóðleg flokkun geðsjúk-
dóma hefur breyst talsvert á und-
anförnum áratugum. Ekki á þetta
síst við um persónuleikaraskanir.
Fyrir fáum áratugum var þeim
skipt annars vegar í psykopatia,
sem á íslensku var nefnd geðvilla,
og hins vegar í skapgerðartrufl-
anir af ýmsu tagi, sem voru væg-
ari gerð og skyldari hugsýkinni.
Geðvilla var gjarnan talin með-
fædd, en skapgerðartraflanir
orðnar til fyrir áhrif umhverfís og
uppeldis. I geðvillu fólst oftast
andfélagsleg hegðun, siðblinda og
samviskuleysi. Orðið psykopat
var iðulega notað sem skammar-
Persónu-
leikaröskun
yrði. Nú er það ekki notað lengur,
en andfélagslegur persónuleiki er
sérstakur arftaki þess.
í nýjustu útgáfu af bandaríska
sjúkdómaflokkunarkerfinu DSM-
IV, sem er hvað mest notað sem
viðmiðun um þessar mundir, era
skilgreindar 11 tegundir persónu-
leikatruflana. Mörgum þykir að
reynt sé að greina á milli of
margra tegunda, enda skarast
þessar gerðir, þar sem sami ein-
staklingurinn hefur oft einkenni
margra tegunda. „Borderline"
persónuleikaröskun er tiltölulega
nýr flokkur meðal persónuleika-
raskana og hefur verið að mótast
á undanförnum 20 árum, en er í
dag með algengustu tegundum
truflana af þessu tagi. Sumir telja
þessa greiningu jafnvel ofnotaða,
en einkenni hennar era mjög
blönduð. Samkvæmt DSM-IV era
megin einkenni þessarar per-
sónuleikaröskunar óstöðugleiki í
mannlegum samskiptum, óljós
sjálfsmynd, stjórnlitlar tilfinning-
ar og hvatvísi. Sjálfseyðileggjandi
hegðun er algeng, svo sem stjóm-
laus eyðsla, óhóflegt kynlíf, of-
neysla áfengis og lyfja og ofát.
Sjálfsvígstilraunir eða hótanir um
slíkt eru algengar og einnig eiga
sjúklingar með þessa greiningu
til að skaða sjálfa sig líkamlega.
Tilfinningasveiflur eru miklar,
allt frá miklu þunglyndi og kvíða,
sem á það síðan til að hverfa að
skömmum tíma liðnum, en við-
varandi er tómleikakennd. Þessir
sjúklingar eiga oft erfitt með að
hafa stjóm á reiðitilfinningu,
kenna öðrum um og finnst fólk
vera á móti sér.
Þetta era margvísleg einkenni
sem koma fyrir í öðram tegund-
um persónuleikaraskana og
reyndar öðrum geðsjúkdómum.
Eitt öraggasta skilmerkið sem
liggur að baki hinum ýmsu ein-
kennum, er líklega hin óvissa
sjálfsmynd einstaklingsins. Hann
á erfitt með að afmarka sig,
landamæri hans gagnvart öðru
fólki eru óviss. Sjálf (ego) hans er
veikt. Hann hefur því oft tilhneig-
ingu til að verða háður öðram,
þarfnast annarra og leitar eftir
nánd, sem hann á þó erfitt með að
nýta sér. Þótt persónueinkenni
sjúklingsins komi niður á öðrum,
er óhætt að segja, að hann er yfir-
leitt sjálfum sér verstur.
Þeim, sem vilja kynna sér
„borderline" persónuleikaröskun
nánar, er bent á ágæta og ítar-
lega umfjöllun Magnúsar Skúla-
sonar geðlæknis í afmælisriti
Davíðs Davíðssonar prófessors,
Bók Davíðs (Rv. 1996), bls. 395-
434.
• Lesendur Morgunblaðsins geta spurt
sálfræðinginn u/n það seni þein/ liggur á
hjarta. Tekið cr á móti spumingum á
virkum dögum milli klukkan 10 og 17 í
síma 569 1100 og bréfum eða símbréfum
merkt: Vikulok, Fax: 569 1222. Ennfrem-
ur símbréf mcrkt: Gylfí Ásmundsson,
Fax: 560 1720.