Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1973, Blaðsíða 87
ELSE KAI SASS
BRJÓSTLÍKAN THORVALDSENS
AF JÓNI EIRÍKSSYNI
Höfundur þessarar greinar, Else Kai Sass, er prófessor í listsögu við háskól-
ann í Kaupmannahöfn. Greinin er fyrsti kafli í verki hennar í þremur bindum,
Thorvaldsens Portrætbuster I—III, Kph. 1963—65. Þar gerir hún ítarlega grein
fyrir öllum brjóstlíkneskjum Thorvaldsens, sem henni telst til að muni vera um
178. Elzt af þeim öllum hefur verið brjóstlíkanið af Jóni Eiríkssyni konferenz-
ráði, þótt ekkert hafi varðveitzt af því nema andlitið, sem er í Þjóðminjasafni
íslands, Mannamyndasafni nr. 1537. Sú mynd er meðal örfárra verka Thorvald-
sens hér á landi og auk þess sögulega merkileg. Þetta er langtum ítarlegasta
rannsókn sem til er um myndina, og þykir því vel á fara, að greinin birtist í
íslenzkri þýðingu hér í Árbólc, enda munu varla vera til mörg eintök af stór-
virki Else Kai Sass hér á landi. Hefur hún góðfúslega gefið leyfi til birting-
arinnar. — Þess skal getið, að kaflanum fylgja margar athugagreinar með
tilvitnunum til bóka og skjala og fróðleik um þá menn, sem nefndir eru. Þessu
er öllu sleppt hér, og verða þá þeir, sem vildu halda þessari rannsókn áfram, að
leita til frumritsins. En flestir islenzkir lesendur geta áreiðanlega notið grein-
arinnar til fulls án þessara athugagreina. — Árbók þakkar höfundi leyfi til að
birta greinina og frú Dyveke Helsted, Thorvaldsenssafni, lán myndamóta.
Just Mathias Thiele, ævisöguritari Thorvaldsens, skýrir svo frá
að Ferrini gullsmiður, sem var enn á lífi, þegar Thiele skrifaði æsku-
sögu Thorvaldsens, hafi sagt sér „að dag nokkurn árið 1787 hafi
hann mætt Bertel Thorvaldsen á götu, klyfjuðum spegilrömmum og
öðrum gylltum skrautmunum, sem hann var að ganga með milli
járnvörukaupmanna og bjóða til sölu. Þegar Ferrini sá Bertel með
þessa byrði, spurði hann hvort hann eða faðir hans hefði gert þessa
fögru hluti. Thorvaldsen svaraði því til að ef hann vildi koma heim
til sín skyldi hann sýna honum eitthvað af verkum sínum. Þegar
Ferrini heimsótti fjölskylduna nokkrum dögum seinna, fór Bertel
með hann inn í kamers og sýndi honum brjóstlíkan úr leir, sem hann
var að vinna við.“
Fróðlegt væri að vita af hverjum það brjóstlíkan var, sem sautján
ára listskólasveinninn var að gera, því að sennilega hefur þetta
verið fyrsta tilraun hans á því sviði, þar sem hann síðar átti eftir